Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2013, Blaðsíða 9

Læknablaðið - 15.12.2013, Blaðsíða 9
RITSTJÓRNARGREIN Nálarstungur úr launsátri - um öryggi starfsmanna á sjúkrahúsum Magnús Gottfreðsson yfirlæknir á Landspítala og prófessor við læknadeild Háskóla íslands magnusgo@landspitali. is Sjúkrahús getur verið hættulegur staður, ekki aðeins fyrir sjúklinga heldur einnig starfsfólk. Eftir hrun hefur mikið verið rætt og ritað um öryggi sjúklinga, en minna er fjallað um öryggi heilbrigðisstarfsmanna á sínum vinnustöðum. Þekkt er að meira en 30 mismunandi tegundir sýkla geta borist úr sýktu blóði eða líkamsvessum yfir í heilbrigðisstarfsfólk og valdið því alvarlegu heilsutjóni. Mörg dæmi eru um smit með lifrarbólguveiru B og C og jafn- vel HIV vegna stunguslysa, en rannsóknir sýna að þessi slys er oftast hægt að fyrir- byggja ef rétt er staðið að málum. Erlendar rannsóknir sýna að næstum allir læknar lenda í því að stinga sig eða skera meðan á námsárum stendur, sumir ítrekað. Samt er aðeins lítill hluti þessara atvika tilkynntur og skráður með formlegum hætti. Af ein- hverjum ástæðum standa læknar sig ver í þessu efni en hjúkrunarfræðingar, samt er nýgengi stunguslysa hærra meðal lækna. Vitneskjan um smithættuna virðist ekki duga til að tilkynningum og forvörnum sé nægjanlega vel sinnt. Samt sem áður eru til ágæt bóluefni gegn lifrarbólguveiru B sem koma í veg fyrir smit og hægt er að veita heilbrigðisstarfsmanni tímabundna lyfjameðferð gegn HIV ef grunur leikur á að blóð „gjafans" sé sýkt af HIV. Engin viðurkennd forvörn er hins vegar til gegn lifrarbólguveiru C. Reynslan segir okkur að örðugt getur reynst fyrir hinn nýsmitaða að sækja rétt sinn gagnvart vinnuveitanda; sú barátta bætist iðulega við glímuna við heilsubrest og tekjutap. Hvernig er staðan að þessu leyti hér á landi? Til að svara þeirri spurningu er nauðsynlegt að meta umfang vandans og viðbrögð við honum á stærsta spítala landsmanna undanfarin ár. Þess vegna er rannsókn Ásdísar Elfarsdóttur og sam- starfsmanna sem birt er í þessu hefti Lækim- blaðsins afar þörf og sérstakt fagnaðarefni. í rannsókninni er lýst faraldsfræði stungu- óhappa, líkamsvessamengunar og bita sem starfsmenn Landspítala urðu fyrir í störfum sínum á árabilinu 1986-2011. Nið- urstöðurnar sýna að í þriðjungi tilvika var ekki unnið samkvæmt grundvallarsmitgát og ætti að vera hægt að bæta úr því með aukinni árvekni, notkun öryggisnála og fræðslu. í annan stað kom í ljós að aðeins 17,9% tilkynninga komu frá læknum eða læknanemum, sem hlýtur að teljast lágt hlutfall. Á því eru að minnsta kosti tvær mögulegar skýringar, annars vegar þær að íslenskir læknar séu mun ólíklegri til að stinga sig en kollegar þeirra erlendis og séu þar með „bestir í heimi" eða - sem er líklegra - að þeir hafa látið undir höfuð leggjast að tilkynna þessi óhöpp með form- legum hætti. Hugsanlegt er að læknar bregðist við þessum atvikum engu að síður og fari í blóðrannsókn en greini ekki form- lega frá atvikunum. Slík vinnubrögð orka mjög tvímælis, sérstaklega ef vinnuveit- andi ber seinna brigður á frásögn þeirra. Rannsókn Ásdísar og samstarfsmanna var afturskyggn með þeim annmörkum sem slíkri aðferðafræði fylgir. Á rannsóknar- tímabilinu voru tveir einstaklingar taldir hafa smitast af lifrarbólgu C við störf sín. í samtölum mínum við þá sem vel þekkja til málaflokksins hafa tvö tilvik komið í ljós til viðbótar þar sem læknar smituðust af lifrarbólgu, að líkindum eftir stungu- óhöpp, en tilkynningar voru ekki sendar. Sönnunarfærsla er erfið í slfkum málum. Bólusetning gegn lifrarbólgu B er mikil- væg forvörn fyrir starfsfólk sjúkrahúsa, en notkunin á Landspítala hefur verið alltof lítil fram á síðustu ár. Niðurstöður Ás- dísar og félaga sýna að ástandið í þessum efnum hefur þó batnað frá árinu 2008 og má ætla að nú hafi um 80% starfsmanna fengið bólusetningu. Það er ánægjulegt, en markmiðið hlýtur að vera að allir séu varðir við störf sín. Því þarf að herða róð- urinn, finna og bólusetja þá sem hafa orðið útundan. Einnig er mikilvægt að muna eftir bólusetningu annarra stétta sem eru útsettar fyrir stungum í starfi sínu, til að mynda fangavarða og lögreglumanna. í framtíðinni kæmi til greina að fella þessa bólusetningu inn í ungbarnabólusetningar, líkt og gert er víða erlendis. Fleiri rannsókna er þörf, þar á meðal kortlagning berklasmita, MÓSA sýklunar og sýkinga, auk heilsufarsvandamála sem rakin hafa verið til myglu í rakaskemmdu húsnæði Landspítala. Rannsóknum á lyfja- meðferð við lifrarbólgu C hefur fleygt fram og einnig er unnið að þróun bóluefna gegn veirunni; hvort tveggja mun í framtíðinni bæta öryggi heilbrigðisstarfsmanna. Hér gildir sem oft áður, að fjárfesting í forvörn- um er skynsamlegasta og hagkvæmasta lausnin. Occupational needlestick injuries in hospitals Magnús Gottfredsson, MD, PhD, FACP, Consultant, Landspitali University Hospital, and Professor of medicine, Faculty of Medicine, School of Health Sciences, University of lceland LÆKNAblaðið 2013/99 557
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.