Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.12.2013, Page 13

Læknablaðið - 15.12.2013, Page 13
RANNSÓKN Tafla II. Nýgengi tilkynntra óhappa á Landspítala. Ár 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 Nýgengi/100.000 legudaga 52,3 79,6 81,4 64,8 71,0 71,1 88,6 81,3 100,8 Nýgengi/100 inniliggjandi sjúklinga 19,1 29,1 29,7 23,7 25,9 26,0 32,4 29,4 36,8 Nýgengi/100 unnin stöðugildi Vantar Vantar 4,9* 5,7 5,6 5,3 6,2 4,7 7,5* 'frá 01.05.2005 Mynd 1. Hlutfallsleg dreifing tilkynntra óhappa eftir deildum á irunum 1986-2011. yfir árabilið 2003-2011. Samsvarandi hækkun sást þegar nýgengi óhappa eftir fjölda inniliggjandi sjúklinga var skoðað. Það hækk- aði um 92,6% yfir árabilið 2003-2011 og var að meðaltali 27,7/100 inniliggjandi sjúklinga á ári. Nýgengi á 100 stöðugildi hækkaði um 53,1% á tímabilinu 01.05.2005-31.12.2011 og var að meðaltali 5,7/100 stöðugildi á ári. I heildina fundust 94 óhappatilkynningar þar sem sjúklingur var sagður smitandi og var hlutfall áhættuóhappa 2,6% af til- kynntum óhöppum. Blóðs var aflað úr 2578 sjúklingum sem tengdust tilkynntum stunguóhöppum, eða í 71,8% tilvika. í kjölfar 995 óhappa var blóðs ekki aflað hjá sjúklingi þar sem hann var óþekktur, eða læknir taldi það óþarft í kjölfar áhættumats á smit- hættu. Alls fundust 80 óhappatilkynningar þar sem sjúklingur var sagður smitandi af HBV, HCV eða HIV í kjölfar blóðrannsóknar. Á 14 óhappatilkynningum var tilgreint að vitað væri að sjúklingur væri smitandi og blóðrannsókn ekki framkvæmd. Fjöldi áhættu- óhappa var misjafn milli ára og sum árin fundust engin en árin 2005 og 2011 voru áhættuóhöpp 5,2% tilkynntra óhappa (tafla I). Algengast var að sjúklingar sem tengdust áhættuóhöppum væru smitandi af HCV, eða í 64,9% tilvika (n=61). í 18,1% tilvika (n=17) ■ Hjúkruntrfraeðingsr og nemar Mynd 2. Tildrög tilkynntra óliappa eftir starfsstéttum á árunum 1986-2011. var sjúklingur með HIV og í 12,8% tilvika HBV (n=12). Um sam- sýkingu af völdum HIV og HBV var að ræða í 3,2% tilvika (n=3) og HBV og HCV í 1,0% tilvika (n=l). Tveir starfsmenn sem tilkynntu óhapp greindust með HCV smit á tímabilinu. Það jafngildir smiti í 3,2% tilvika þar sem sjúk- lingur var sagður smitandi af HCV í óhappatilkynningu. Fyrra tilvikið tengdist uppsetningu æðaleggs en seinna tilvikið líklega skurðaðgerð. Það fundust engir starfsmenn sem höfðu smitast af HBV eða HIV á tímabilinu. Á tímabilinu 2005-2011 skiluðu 1288 starfsmenn óhappatil- kynningu og fóru í blóðrannsókn í kjölfar óhapps en 1790 blóð- sýni merkt „stunguóhöpp" fundust á veirufræðideild fyrir þetta tímabil. Því fóru 502 fleiri starfsmenn í blóðrannsókn eftir stungu- óhapp en þeir sem bæði tilkynntu óhapp og fóru í blóðrannsókn. Samkvæmt því var vanskráning óhappa 28% á tímabilinu en hún sveiflaðist milli ára. Lægst var vanskráningin árið 2007 (21%) en hæst árið 2008 (38,2%). Umræður Á rannsóknartímabilinu urðu að minnsta kosti 4089 óhöpp en af þeim voru 3587 tilkynnt. Af tilkynntum óhöppum reyndust 85,4% vera stunguóhöpp tengd holum nálum og beittum hlutum, sem er í samræmi við niðurstöður erlendra rannsókna.6-9 Hjúkrunarfræðingar og hjúkrunarnemar tilkynntu flest óhöpp og læknar og læknanemar næstflest. Ungt starfsfólk og starfs- fólk með stuttan starfsaldur tilkynntu um þriðjung óhappanna og bæði stéttir og starfsaldur eru sambærileg við erlendar rann- sóknaniðurstöður. 3‘7'10-n Hlutfall starfsmanna sem voru bólusettir gegn HBV þegar þeir tilkynntu óhapp hækkaði yfir tímabil rannsóknarinnar. Það var komið í 81,1% í lok tímabilsins en meðaltalshlutfallið yfir tímabilið var 50,3%. Erlendar rannsóknir sýna að 40,0% til 94,5% starfs- manna eru bólusettir gegn HBV.12'15-17 Algengustu tildrög óhappa á Landspítala tengdust því að setja nál í hulstur, skurðaðgerðum og blóðtökum en saumaskapur tengdist fáum óhöppum. Flest óhöppin voru tilkynnt af starfs- fólki lyflækningadeilda og því næst af starfsfólki á skurðstofum. Erlendar rannsóknir sýna að þar sem notkun á öryggisnálum og öryggishlutum er lítil tengjast stunguóhöpp oft notkun holra nála.6-19-20 Þar sem notkun á öryggisnálum og öryggishlutum er mikil fækkar óhöppum tengdum holum nálum og þá eru al- gengustu tildrög óhappa skurðaðgerðir, lyfjagjöf með stungu og saumaskapur. Óhöpp á skurðstofum verða áberandi, sem skýrist af því að þar er mikil notkun á beittum og oddhvössum áhöldum en oft lítil notkun á öryggishlutum (til dæmis öryggisskurðhnífar, öryggissaumnálar og fleira) og hætta á líkamsvessamengun er mikil.7-9-14-20-26 LÆKNAblaðið 2013/99 561

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.