Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.12.2013, Side 20

Læknablaðið - 15.12.2013, Side 20
RANNSÓKN Mynd 2. Nýgengi utanlegsþykktar á íslandi árin 1985-2009. Tölur um fjölda ulan- legsþykkta 1985-1998 eru fengnar úr rannsókninni „Utanlegsþykkt á Islandi 1985- 1994",6 tölur um fjölda utanlegsþykkta árið 1999frá Embxtti landlæknis en árin 2000- 2009 úr þessari rannsókn. Umræða Nýgengi utanlegsþykktar lækkaði á rannsóknartímabilinu og breyting varð á meðferð utanlegsþykktar með aukinni notkun kviðsjáraðgerða í stað opinna skurðaðgerða. MTX-meðhöndlun tí- faldaðist á seinna tímabili rannsóknarinnar og aðgerðum fækkaði að sama skapi. Nýgengi utanlegsþykktar á íslandi var í hámarki um 1992 þegar það fór í 31,1/1000 skráðar þunganir,6 en í lok núverandi rannsóknartímabils hafði nýgengið lækkað í 13,2/1000 þunganir, sem er nær 58% lækkun (mynd 2). Svipuð þróun sást í Noregi og Hollandi fram til áranna 2004-2005.1,7 Talið er að lækkunin á Norðurlöndum eftir 1990 hafi verið vegna bættrar skimunar og meðhöndlunar á klamýdíusmituðum konum.10 Með skimun í áhættuhópum minnkar algengi eggjaleiðarabólgu.23 Auk þess hefur notkun hormónalykkju í stað koparlykkju aukist, en hún dregur að einhverju leyti úr egglosi og hindrar betur bólfestu fósturvísis.24 Nýgengi utanlegsþykktar var hærra á íslandi en lýst hefur verið í nálægum löndum. í Noregi var það 8,4/10000 konur á ári 2000-2004’ en á sama tíma hér 14,1/10000. í Bretlandi var nýgengið 11,0-11,3/1000 þunganir á árunum 2000-2008,8 en 15,6/1000 þunganir á íslandi. Rétt er að hafa í huga að undanfarin ár hefur nýgengi klamýdíu verið hærra hér á landi en á hinum Norðurlöndunum.25 Nýgengi í hverjum aldurshópi miðað við 1000 skráðar þunganir jókst með hærri aldri, sem hefur sést annars staðar.1'4'714 Breytingar á eggjaleiðurunum með aldri gætu gert þá móttækilegri fyrir utanlegsþykkt.14 Eggjaleiðarabólga er þó sjúk- dómur yngri kvenna og búast má við afleiðingunum 5-15 árum seinna.4-7 Nýgengislækkunin milli tímabila rannsóknarinnar varð einkum meðal kvenna 30 ára og eldri. Hugsanlega má rekja þessa lækkun til algengari notkunar hormónalykkju meðal kvenna í þessum aldurshópi. Metótrexat-meðferð var einungis veitt á Landspítala frá árinu 2002, þó einstaka konur hafi verið-meðhöndlaðar þannig milli áranna 1995 og 1999.6 Hlutfall lyfjagjafar (6,4%) var ekki óveru- legt miðað við rannsókn frá sjúkrahúsi í Þýskalandi, þar sem 1,7% kvenna með utanlegsþykkt voru meðhöndlaðar með MTX á svipuðu árabili, en þó talsvert lægra en í Bretlandi (17,3%),26 og Bandaríkjunum (20,7-35,5%).14 Notkun lyfjameðferðar ætti að geta orðið algengari í framtíðinni. I Svíþjóð voru 29% kvenna meðhöndlaðar með MTX á árunum 1995-1997,27 og á Nýja Sjá- landi fengu 11% MTX á árunum 1996-2001,28 sem einnig er meira og fyrr en hér. Af konunum sem fengu MTX á Landspítala urðu 22% að fara í aðgerð vegna misheppnaðrar lyfjameðferðar. Svipað hlutfall hefur sést annars staðar í Evrópu (23-25%),26-27-29 en lægra á Nýja-Sjálandi (18,9%),28 og Bandaríkjunum (14,7-15,3%).14'30 Meðal- talsþéttni þ-hCG við upphaf meðferðar þar sem MTX-meðferð bar árangur var lægri en þar sem aðgerð þurfti eftir MTX-meðferð. Því hærri sem þéttni (S-hCG er, þeim mun líklegra er að MTX-meðferð misheppnist.31 Vegna þess hve fáar konur fengu MTX sem fyrstu meðferð er í okkar rannsókn ekki hægt að álykta um forspárgildi (1-hCG fyrir meðferðarárangur. Líklega má auka enn frekar hlut- fall lyfjameðferðar í meðhöndlun utanlegsþykktar á íslandi. Skurðaðgerðir eru enn sem fyrr aðalmeðferðin. Mikil framþró- un hefur orðið á notkun kviðsjártækni við að fjarlægja utanlegs- þykktir. Á árunum 1990-1994 fóru 38,5% kvenna í kviðsjáraðgerð eingöngu,6 samanborið við 80,5% kvenna á árunum 2000-2004 og 91,1% árin 2005-2009. ísland er nokkuð framarlega í notkun kviðsjáraðgerðartækni í samanburði við önnur lönd, en 65,2% kvenna fóru í kviðsjáraðgerðir í Bandaríkjunum á árunum 2002- 2007,14 og nýlegar breskar rannsóknir frá mismunandi sjúkrahúsum sýndu að 84-90% aðgerða voru kviðsjáraðgerðir.32'33 Á sjúkrahúsi í Þýskalandi fóru allar konur í kviðsjáraðgerð á árunum 1998-2007 og aldrei þurfti að skipta yfir í opna aðgerð,29 sem bendir til að nánast allar aðgerðir megi gera með kviðsjártækni. Ólíklegt er þó að opnar skurðaðgerðir hverfi, til dæmis í alvarlegu lostástandi hjá konu með utanlegsþykkt. Ef eggjaleiðarinn er skilinn eftir er hætt við að einhver hluti þungunarvefjar verði eftir í vegg eggja- leiðarans. Þetta gerðist hjá 11,7% kvennanna þar sem þessi aðferð var reynd og í kjölfarið þurfti frekari meðhöndlun með MTX eða endurtekna aðgerð. Tölur frá Danmörku (8-11,5%),34 35 og Þýska- landi (4,9%),19 hafa verið örlítið lægri. Breytingar hafa orðið á aðgerðartækni samhliða auknu aðgengi að tæknifrjóvgun. Á árunum 1985-1994 var eggjaleiðari skilinn eftir í 45% aðgerða til að láta reyna á þungun gegnum hann eða gera við hann síðar,6 en í okkar rannsókn hafði sú tala lækkað í 28%. Þar sem auknar líkur eru á annarri utanlegsþykkt ef eggja- leiðarinn er skilinn eftir, er líklegt að þetta hafi haft einhver áhrif til lækkunar á nýgenginu. Nær allar konur sem meðhöndlaðar voru á landsbyggðinni fóru í skurðaðgerð. Ein ástæða fyrir því gæti verið að erfitt er að koma við eftirliti þar sem vegalengdir eru langar. Aukning varð á notkun kviðsjáraðgerða alls staðar á landinu. Á Landspítala voru rúmlega 7 sinnum meiri líkur á að eggjaleiðari væri tekinn í opinni skurðaðgerð en þegar kviðsjá var beitt. Þessu virtist öfugt farið á landsbyggðinni, þar sem líkur á að eggja- leiðari væri tekinn í opinni skurðaðgerð voru tvöfalt minni en í kviðsjáraðgerð. Erfiðara er að fjarlægja aðeins utanlegsþykktina í kviðsjáraðgerð en að taka eggjaleiðarann, auk þess sem blæðingar- hætta frá sárinu í eggjaleiðaranum eykst ef hann er skilinn eftir.21 Þjálfun til að fjarlægja utanlegsþykkt í kviðsjáraðgerð þarf að viðhalda með því að framkvæma nægilega margar slíkar aðgerðir á ári, sem er erfiðara þar sem tilfellin eru fá. Skiptar skoðanir hafa verið um hvort betra sé að fjarlægja eggjaleiðara eða skilja hann eftir. Ef eggjaleiðari er tekinn næst venjulega allur fósturvefur, en á móti hafa konur með aðeins einn eggjaleiðara nokkru minni frjósemi.19'34 Nú er í gangi stór alþjóðleg rannsókn á mörgum sjúkrahúsum þar sem er slembiraðað í tvo hópa: í öðrum hópnum 568 LÆKNAblaðið 2013/99

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.