Læknablaðið - 15.12.2013, Síða 26
SJÚKRATILFELLl
Mynd 2. Myndfrá vélindaspcglun sýnir hvítleitar útfellingar íslímhúð og rákir eftir
endilöngu sem hefur verið lýst í tengslum við rauðkyrningabólgu í vélinda.
Seinna tilfelli
Stúlka var þriðja barn foreldra sinna og fæddist eftir eðlilega 40
vikna meðgöngu. Strax á fyrstu vikum var hún óvær, kastaði upp
og frá upphafi ungbarnaeftirlits var þyngdaraukning slæleg. Hún
var eingöngu á brjósti fyrstu 6 vikurnar en var mjög óvær við
brjóst, hætti oft að drekka í miðri gjöf og varð loks afhuga brjósti.
Því var foreldrum ráðlagt að hætta brjóstagjöf vegna óværðar og
vegna þess að hún þyngdist ekki. Vansæld og vanþrif héldu þó
áfram, hitaeiningatalning benti til þess að hún innbyrti ekki nóg.
Fram yfir eins árs aldurs var hún tíður gestur á heilsugæslu og
bráðamóttöku vegna þessara einkenna. Bakflæðilyf breyttu engu
né lystarörvandi lyf (Cípróheptadín). Itarlegar rannsóknir sýndu
eðlilegan almennan blóðhag, sölt, lifrarensím, skjaldkirtilspróf,
zink, insúlínvaxtarþætti 1 og insúlínbindipróf, jafnframt eðlilega
litninga, og þvagprufur. Myndgreining af vélinda, maga, görn og
höfði var eðlileg. Við rúmlega eins árs aldur hafði stúlkan fallið
um tvö staðalfrávik á vaxtarkúrfu í lengd og þyngd frá fæðingu
og áhyggjur vöknuðu um seinan hreyfiþroska. Var hún þá spegluð
og vefjasýni frá vélinda sýndu rauðkyrningabólgu í vélinda. Of-
næmispróf bæði á húð og í blóði sýndu svörun við mjólk, eggjum
og fiski. í framhaldi var prófuð þurrmjólk sem innhélt niðurbrotin
eggjahvítuefni (Nutramigen). Þannig eggjahvítuefni í þurrmjólk-
inni eru tví- og þrípeptíð eða amínósýrur eingöngu og því litlar
líkur á ofnæmisvökum. Stúlkunni leið nú betur en þyngdist samt
hægar en ásættanlegt var vegna lítils áhuga á fæðu og var hún því
spegluð aftur hálfu ári seinna. Enn sást rauðkyrningabólga í vefja-
sýnum, þó í minna magni. Næst var því prófuð þurrmjólk sem
eingöngu innihélt amínósýrur (Neocate) og var hún gefin í fyrstu
gegnum magaslöngu í nefi. Þyngdist hún vel, þroski og orka tóku
við sér. Hún hafði hins vegar takmarkaðan áhuga á mat eða drykk
og var því sett varanleg magaslanga með magaraufun.
Við 5 ára aldur er hún enn með magaslöngu og fær stóran hluta
næringar sinnar frá amínósýrublöndu vegna þess hve takmarkað
hún þolir af fæðutegundum. Hún er jafnfætis jafnöldrum í þroska.
Hún hefur töluvert exem og astma sem versnar ef hún kemst í tæri
við þekkta ofnæmisvalda í fæðu.
Umræða
I þessum sjúkratilfellum lýsum við tveimur birtingarformum
rauðkyrningabólgu í vélinda. Við viljum með þessu vekja athygli á
tiltölulega nýjum sjúkdómi. Við teljum tilfellin lýsa vel einkennum
bólgunnar, erfiðleikum við að finna undirliggjandi orsök einkenna
og ólíkri meðferð. Einkenni rauðkyrningabólgu í vélinda eru ólík
eftir aldri, yngri börn eru óvær, neita að borða og þyngjast jafnvel
illa, en í stálpuðum börnum eru einkennin oft frekar uppköst og
magaverkir og í eldri börnum og unglingum er lýst brjóstverkjum
og kyngingarerfiðleikum.61 töflu I eru helstu einkenni bólgunnar
tekin saman.
Rauðkyrningabólgu í vélinda í börnum var fyrst lýst á 10. ára-
tug síðustu aldar þegar barnalæknar sáu að börn sem höfðu verið
greind með vélindabólgu svöruðu ekki meðferð gegn vélindabak-
flæði sem fram að því var talin nær eina ástæða vélindabólgu, að
frátöldum sýkingum. Þegar vefjasýni frá vélinda barna sem ekki
svöruðu sýruhemjandi lyfjum voru skoðuð nánar, kom í ljós að
þau innihéldu fleiri rauðkyrninga samanborið við sýni frá börn-
um með vélindabólgu vegna staðfests sýrubakflæðis sem höfðu
lagast á sýruhemjandi lyfjum.2'4
Rauðkyrningabólga í vélinda er greind með vélindaspeglun,
ákveðinni áferð slímhúðar í speglun hefur verið lýst, annars
vegar hvítum rákum eftir endilöngu vélinda eins og í tilfelli 1 og
einnig stundum hringjum. Útlit slímhúðar eitt og sér nægir ekki
til greiningar. Endanleg greining er eingöngu fengin með því að
taka sýni úr vélinda sem meinafræðingur skoðar. Rauðkyrningar
eru ekki til staðar í heilbrigðu vélinda en þá má stundum sjá sem
hluta af bólgusvari í vélindabakflæði. Rauðkyrningar í bólgunni
eru fleiri en sjást að öllu jöfnu í vélindabakflæði og dreifast um
allt vélindað og eru jafnvel flestir í nærlægu vélinda, ólíkt því
sem sést í vélindabakflæði þar sem bólga er fyrst og fremst við
vélindamagamót. Eftir nokkra endurskoðun eru nýjustu viðmið
fyrir greiningu á rauðkyrningabólgu í vélinda 15 rauðkyrningar
í HPF (high power field), einnig eru rauðkyrningaörkýli, úrkornun
Tafla I. Einkenni rauðkyrningabólgu ivéiinda ibörnum og fullorðnum.5s
Börn Unglingar/Fullorðnir
Vanþrif Kyngingarörðugleikar
Uppköst/gúlpa upp í munn Fæðuklumpar fastir í vélinda
Nábítur/brjóstsviði, svara ekki sýruhömlun Nábitur/brjóstsviði, svara ekki sýruhömlun
Kyngingarörðugleikar
Fæðuklumpar/ótilar i vélinda
Verkir í efri hluta kviðar
574 LÆKNAblaðið 2013/99