Læknablaðið - 15.12.2013, Síða 32
Lyfjaskömmtun
Enn hagkvæmari
kostur2013
í nýju greiðsluþátttökukerfi lyfja á árinu
2013 verður lyfjaskömmtun Lyfjavers enn
hagkvæmari kostur og þar njóta viðskipta-
vinir bestu kjara.
Fylgist vel með á Lyfjaver.is
gera er að skerpa fókus spítalans;
leggja megináherslu á kjarna-
starfsemi, sérhæfðari og flóknari
þjónustu sem aðrir geta ekki
sinnt. Gott dæmi um slíka vinnu
er ákvörðun frá því í haust að
opna hjúkrunardeild fyrir aldr-
aða á Vífilsstöðum og létta þar
með álagi af lyflækningasviði
Landspítala. Þarna er ákveðinn
fjöldi sjúklinga sem þarf á
umönnun hjúkrunardeildar að
halda en ekki flókinni spítala-
þjónustu. Með því að flytja fólk
sem þarf hjúkrunarrými af
bráðadeildum, minnkar álagið
á spítalanum og hjúkrunar-
sjúklingarnir fá betri umönnun í
rólegra umhverfi."
Framtíðin bíður ekki
Þessu fjölþætta hlutverki fylgir
sérstök þörf fyrir húsnæði og
þau mál hafa verið til umræðu
um árabil. Undirbúningur að
byggingu nýs spítala á Land-
spítalalóðinni við Hringbraut
er vel á veg kominn en óljóst er
um framhaldið. „í mínum huga
er bygging nýs Landspítala ekki
spurning um hvort heldur hve-
nær. Nútímalæknisfræði af þeim
gæðum sem við viljum stunda á
Landspítala kallar á nýjar bygg-
ingar og breytingar á þeim sem
fyrir eru. Það er löngu tímabært
að ráðist sé í slíkt. í rauninni
lýkur ekki þeirri vegferð sem
hófst með sameiningu sjúkra-
húsanna í Reykjavík um aldamót
fyrr en bráðastarfsemi og rann-
sóknastofur eru allar komnar
á einn stað. Þetta ástand sem
við höfum búið við síðan ráðist
var í sameininguna var þá og
er enn bráðabirgðalausn sem
er óheyrilega kostnaðarsöm og
neyðir okkur til að gera ýmsa
hluti á mörgum stöðum sem
hagkvæmara og öruggara væri
að gera á einum stað. Þó að
mönnum vaxi kannski í augum
að kostnaður við nýjar bygg-
ingar sé jafnvel um 60 milljarðar,
er ársvelta spítalans um 40
milljarðar og það getur varla
kallast óraunhæft að byggja á
þeim forsendum. Það er ekki
boðlegt að þurfa stundum að
flytja bráðveikt fólk á milli Foss-
vogs og Hringbrautar - nema
til algerra bráðabirgða, á meðan
verið er að byggja upp á einum
stað. Rekstur spítalans á ýmsum
stöðum í Reykjavík kostar spítal-
ann um 3 milljarða aukalega
á ári. Þetta kalla ég að henda
peningum útum gluggann.
Við getum hins vegar ekki
bara beðið nýs húsnæðis. Upp-
bygging verður að hefjast strax,
við þurfum fé í það sem ég hef
kallað viðspyrnu. Það er bæði fé
til að bæta Landspítalann sem
vinnustað og við stjórnendur
höfum nú í haust verið að kort-
leggja leiðir til þess. En það þarf
líka fé til að gera ýmsar ráð-
stafanir og breytingar í skipu-
lagi sjúkrahússins með flæði
sjúklinga í huga. Breytingar sem
ekki er hægt að bíða með. Svo
ég nefni sem dæmi þá verður
ekki lengur beðið með að kaupa
aðgerðaþjarka til skurðlækninga
í neðra kviðarholi, svo sem þvag-
færa- og kvensjúkdómaskurð-
lækninga. Þetta er dýrt tæki sem
við getum ekki beðið lengi með
að kaupa ef við eigum ekki að
missa af ungum sérfræðingum
sem vilja ekki vinna með öðru
en bestu fáanlegu tækjum með
besta mögulega árangri. Fram-
tíðin bíður ekki eftir okkur. Við
þurfum að stíga ákveðin skref og
gefa fólkinu okkar von um fjár-
muni til viðspyrnu svo það geti
veitt bestu mögulega þjónustu
og laðað til baka ungt fólk með
nýjustu þekkingu í læknisfræði
og heilbrigðisvísindum."
APDTEK + LYFJASKÖMMTUN
SUÐURLANDSBRAUT 22 + SÍMI 533 6100 + LYFJAVER.IS
580 LÆKNAblaðið 2013/99