Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.12.2013, Qupperneq 34

Læknablaðið - 15.12.2013, Qupperneq 34
UMFJÖLLUN O G GREINAR Erfið barátta framundan - segir Sigurveig Pétursdóttir formaður samninganefndar LÍ ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson „Hugur íslenskra lækna hefur aldrei staðið jafn sterkt til þess að fara héðan og núna," segir Sigurveig Pétursdóttir formaður samninganefndar Læknafélags Islands. Framundan eru kjaraviðræður við samninganefnd ríkisins og Sigur- veig segir ljóst að verulegar kjarabætur, launahækkanir, verði að koma til yfir línuna eigi læknar ekki einfaldlega að greiða atkvæði unnvörpum með fót- unum. „í Noregi og Svíþjóð vantar alls staðar lækna og þar kvarta læknar yfir lækna- skorti og miklu vinnuálagi þess vegna. Það er því auðfengin vinna annars staðar og íslenskir sérfræðilæknar hafa aldrei snúið aftur út í jafnmiklum mæli og nú; íslenskir læknar erlendis hafa aldrei verið jafn tregir og nú til að flytja heim og þar við bætist sístækkandi hópur sem vinnur hlutavinnu í Noregi og Svíþjóð en er þó enn búsettur hér á íslandi, þó farið sé út allt að 2-3 vikur í mánuði. Loks eru unglæknarnir sem greinilega reyna allt hvað þeir geta til að komast sem fyrst út í sérnám og staldra því skemur við eftir almenna læknanámið en tíðkaðist. Aður voru þeir kannski hér heima í tvö til fjög- ur ár, nú eru það eitt til tvö að meðaltali." Sigurveig er sérfræðingur í bæklunar- skurðlækningum barna og starfar sem læknir á bæklunardeild Landspítalans. Hún lauk læknanámi frá Háskóla íslands 1984 og stundaði framhaldsnám og sér- fræðilækningar í Svíþjóð um 15 ára skeið áður en hún flutti heim aftur til íslands fyrir um 11 árum. Hún er í 100% starfi á Landspítala og starfar ekki sjálfstætt utan hans. Hún vakti athygli á aðalfundi Læknafélags íslands í október þar sem hún stóð upp og skýrði heilbrigðisráðherra frá því að laun hennar væru um 515.000 á mánuði með alla þessa menntun að baki, ábyrgð í starfi og mánaðarlegar vinnu- stundir. Svar hans var að laun hans sem alþingismanns væru svipuð. „Þessi samanburður er móðgandi þar sem hann er kosinn vinsældakosningu óháð menntun en ég ekki. Ég gæti tekið að mér hans starf fyrirvaralaust en hann ekki tekið við mínu. Svo einfait er það." Aðspurð um hvaða áhrif það hafi á starfið á spítalanum að margir læknanna eru í hlutastarfi erlendis, segir Sigurveig að það hafi augljósar takmarkanir í för með sér. „Viðkomandi læknir er ekki við nema að hluta og ekki hægt að ná í hann svo auðveldlega ef eitthvað kemur uppá þar sem hann er í öðru landi. Hann er ein- faldlega ekki í vinnu hér á meðan hann er erlendis svo einhver annar verður að vinna vinnuna því ekki er alltaf hægt að segja sjúklingum að bíða. Þetta finnum við sem erum þó enn í fullri vinnu hér á spítalanum." Allir að skoða auglýsingar Sigurveig dregur enga fjöður yfir að and- inn meðal íslenskra lækna hafi gerbreyst á undanförnum misserum. „Það eru allir að velta því fyrir sér hvort þeir eigi að fara eða vera. Hvar sem maður kemur í hóp lækna er umræðuefnið það sama. Nánast allir fylgjast með atvinnuauglýsingum erlendis frá og velta því fyrir sér - í mis- mikilli alvöru sannarlega - hvort þeir eigi að slá til. Hér áður var fólk ekkert að spá í þetta og hafði engan áhuga á því hvort væru lausar læknisstöður á sjúkrahúsum í Noregi eða Svíþjóð. Nú er þetta aðalum- ræðuefnið. Á mínu heimili hefur þetta enn ekki komið til umræðu þó eiginmaður minn sé sænskur og atvinnumöguleikar hans talsvert meiri þar en hér. Þegar ég spurði hann um daginn hvort hann væri til í að flytja út aftur sagði hann: „Láttu mig bara vita hvenær ég á að setja niður í töskurnar." Það sem heldur í okkur er 14 ára gömul dóttir okkar sem vill alls ekki flytja og ég veit að tregða til að rífa börnin upp úr umhverfi sínu er ein algengasta ástæða þess að fólk situr enn um kyrrt." Greiða atkvæði með fótunum Unglæknum hefur fækkað, segir Sigur- veig, og það veldur ýmsum vandkvæðum í daglegu starfi spítalans. „Það munar verulega um það hvort unglæknarnir eru hér að meðaltali í tvö ár áður en þeir fara í framhaldsnám eða bara eitt og hálft ár. Það er ekki svo auðvelt að fylla í það skarð þó það virðist ekki stórt. Og aðalatriðið hvað unglæknana varðar er að þeir fá betri laun annars staðar. Ef launin þeirra væru sómasamleg lægi þeim ekki svona á að komast í burtu. Það er einfaldlega að stinga hausnum í sandinn að ímynda sér að nýjar byggingar og ný tæki muni leysa allan vanda. Það er hluti af lausninni en án betri launa er það til lítils." Framundan er kjarabarátta sem Sigur- veig segir alveg ljóst að verði að færa læknum verulegar launahækkanir ef sátt eigi að nást. „Laun lækna hafa dregist aftur úr sambærilegum háskólastéttum og sér- staklega hafa laun almennra lækna dregist afturúr. Þau eru einfaldlega skammarlega lág og er þá nánast sama við hvað er miðað. í umræðunni um laun lækna hefur gjarnan verið horft á heildarlaunin sem fengin eru með gríðarlega mikilli vinnu, ýmist endalausum vöktum eða bakvakta- 582 LÆKNAblaðið 2013/99
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.