Læknablaðið - 15.12.2013, Side 40
UMFJÖLLUN O G GREINAR
Lækning eða kukl?
Hendur&
inngrip
Hugmyndir&
hugrænar meðferðir
Remedíur
og efni
Grasalækningar
Úr Iffríkinu
■O
=1
o
Teygjur
Nudd Hljóðbylgjur Hnykkingar
Vatnsmeöferö Nálastungur
Gufuböö Hitameöferö
Osteópatla Leirböð Raförvun
Þ
P
Magneslum Melantonin
Trönuberjasafi - UTI
Olíur í eyra - OMA
Afrískt sveskjutré - BPH
Pendúlgreiningar
Viöbragöafræöi
Eyrnakerti
Höfuöbeina- og
spjaldhryggsjöfnun
Bowen-nudd
Árunudd
Frumöskurs-
meöferö
Geimveru-
læknar
Gegnumsýni
M öils-
ðlæknir
Endurheimt
lingar minni meöferð
Lithimnulestur
Draumaráöningar
Endurfæöingarmeðferö
Heilagt Læknandi
vatn dýrðlingar
HandanhugleiÖsla
Hinn himneski spádómur
Hómeópatla
Gerviskurðlækningar
Ristilskolanir
Höfuðkúpuboranir
Frelsun
Tímabylgja Núll Reiki Lófalestur
Chakras Heilun
And-alnæmi
Númeraspár Raflínuótti
Rafsviösjöfnun
Jónabönd
Nanó-plástrar
blóöflokka-
fæði
Heilagt strlö -
gegn vestrænni
bólusetningu
Margfaldir
Seglameðferð dagskammtar
Kristallar vítamlna og
steinefna
Mfkroskópistar
Sýru-
basa-fæöi
Þungt
vatn
Natúrópatla
Ayurvedic
remedlur
Kjarnaoliur
Saga Pro
FoodDetective
fæöuóþolspróf
Blómadropar
Aloa vera
Sveppir
Skfriífisber - PMS
Palmettorunni - BPH
Brenninetlusafi - BPH
llmollumeðferð
Olíur með
efnum
<
LD
O
Djöflasæringar Gemsaótti
And-bólusetningar /7
And-lyQanotkun
Brennsludrykkir
(coffeine)
Kava Eitursveppir
Ricin Senecio
Lækning eða kukl?
Yfirlitsmynd um hinar
ýnisu „sérgreinar" hjá-
lækninga í samantekt
Svans Sigurbjörtis-
sonar.
eru meðferðir með einangruðum efnum
eins og magnesíum, háskammta vítamín-
um og fleiru úr fæðubótageiranum. Síðan
eru til ótal aðferðir og meðferðir sem eru
ýmiss konar blanda af ofangreindu, svo
sem höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun,
orkulækningar, heilun, miðlar og fleira."
Ekki vinsældakeppni eða smekksatriði
Á vefsíðunni upplyst.is má lesa ágætar
greinar raunvísindafólks og sérfræðinga
um óhefðbundna heilsustarfsemi, heil-
brigðismál og matvæli. Um markmið
síðunnar segir: „I desember 2012 var stofn-
aður vinnuhópur fagfólks sem hefur það
markmið að vekja athygli á og berjast gegn
ýmis konar bábiljum tengdum heilsu og
matvælum sem vaða uppi í samfélaginu.
Hópurinn kallast Upplýst og í honum eru
ríflega 20 sérfræðingar á ýmsum sviðum
heilbrigðisfræða og raungreina (læknis-,
lyfja-, líf-, lífefna-, sál-, erfða- og næringar-
fræði). Sumt það sem við beinum sjónum
okkar að stríðir beinlínis gegn lögum og
reglugerðum um neytendavernd, til dæmis
órökstuddar fullyrðingar um heilsufars-
áhrif á umbúðum matvæla, fæðubótarefna
eða á öðrum vörum eða þjónustu með
heilsufarslega tengingu. Hópurinn mun
veita hér og víðar vandaða og óháða al-
menningsfræðslu á þessu sviði.
í augum okkar lækna og háskólamennt-
aðra heilbrigðisstarfsmanna er næsta
augljóst hverjir eru gervivísindamenn og
kuklarar og hverjir ekki. Við skulum hafa í
huga að í augum sumra kuklara erum við
læknar kuklararnir. Það þykir ekki fallegt
í heimi hins opna hugarfars að segja að
einn hafi rétt fyrir sér og annar ekki. Allar
skoðanir eru þar jafn réttháar. Læknir sem
leggur út á völl rökræðunnar og gagn-
rýnir þá óhefðbundnu er fljótt sagður
hrokafullur, neikvæður og jafnvel illvilj-
aður. Það þjónar kuklinu vel að þvæla út
mörkin og eftir því sem kukl og kuklarar
tileinka sér vísindalegra tungutak og
blandast inn í vísindalegt umhverfi og
jafnvel inn í praktík heilbrigðisstarfsfólks
á heilbrigðisstofnunum verður æ erfiðara
að greina hvar mörkin liggja. Leikmenn
eiga æ erfiðara með að greina muninn. En
vísindi og lækningar eru í kjarna sínum
ekki vinsældakeppni, lýðræðismál eða
smekksatriði. Lífeðlisfræðileg ferli lúta
ákveðnum lögmálum sem hafa ekki marg-
ar andstæðar skýringar. Það er ekki hægt
að hafa mismunandi „skoðun" á slíku. Það
geta ekki allir haft rétt fyrir sér en verst er
þó þegar heilbrigðisstarfsfólk hefur hleypt
kukli inn í stofnanir sínar, háskólafólk
tekur að sér að verja kukl og háskólalært
fólk iðkar kukl. Afleiðingar kukls eru
fyrst og fremst fólgnar í skemmdum á
raunverulegri vísindalegri þekkingu fólks.
Það útheimtir mikla orku, tíma og peninga
að leiðrétta alls kyns haldvillur sem vaða
uppi og það er hrein sóun á mannauði að
hundruð ungs fólks eyði bestu árum ævi
sinnar með ærnum tilkostnaði í að læra
kukl. Jafnvel menntamálaráðuneytið hefur
lagt blessun sína yfir skóla í kukli með
því að kennslufræðilegi þátturinn stenst
einhver viðmið ráðuneytisins en faglegi
þátturinn er algjörlega látinn lönd og leið."
Svanur segir að lokum að ein algeng-
asta viðbáran við gagnrýni á kukl og
heilsusvindl sé hvort þetta sé ekki bara allt
í lagi ef fólk er ánægt. „Nei, því lyfleysu-
áhrifin eru skammvinn og það leiðir
krafta okkar frá leit að raunverulegum
lausnum. Ánægja fólks getur einnig breyst
í heilsufarslega martröð þegar í ljós kemur
að árangurinn er í rauninni enginn og
siðferðislega er þetta einfaldlega ekki
verjandi."
588 LÆKNAblaðið 2013/99