Læknablaðið - 15.12.2013, Page 51
LÖGFRÆÐI 6. PISTILL
Læknar eru hvattir til að koma á framfæri við ritstjórn eða
pistlahöfund ábendingum um efni sem þeir vilja að fjallað verði um.
Aðgangur að sjúkraskrám
Það teljast sjálfsögð mannréttindi að
sjúklingar eigi aðgang að eigin sjúkraskrá.
Það er því merkilegt til þess að hugsa að
það eru einungis 30 ár síðan fyrstu laga-
ákvæðin um þennan rétt voru lögfest.
Hér og í næsta pistli verður fjallað um
aðgang að sjúkraskrám, fyrst er það saga
lagaákvæðanna en í næsta efnisreglurnar
sjálfar.
Aðgangur sjúklinga að eigin sjúkraskrá
var fyrst lögfestur með lögum um kerfis-
bundna skráningu á upplýsingum, er
varða einkamálefni, nr. 63/1981 (tölvulög).
Með 2. mgr. 10. gr. laganna var opnað
fyrir aðgang sjúklinga að eigin sjúkraskrá.
Akvæðið var svohljóðandi:
Nú telur maður, að upplýsingar um hagi
sína séu ritaðar í sjúkraála eða önnur sjúkra-
registur eða sjúklingaskrár, og vill hann fá
vitneskju um efni þeirra. Skal hann þá óska
þess við heimilislækni sinn, eða annan þann
lækni, sem fjallað hefur um heilsuhagi hans,
að hann leiti eftir upplýsingum þessum frá
þeim, sem ábyrgur er fyrir skráningu. Þessi
aðili skýrir lækninum frá upplýsingunum,
svo að honum sé kleift að koma þeim á fram-
færi við viðkomanda.
I skýringum með ákvæðinu segir að
það eigi sér danska fyrirmynd. Reglan
styðjist við tvenns konar sjónarmið. í
fyrsta lagi væru skráðar upplýsingar
oft torskildar fyrir annan en læknis-
fróðan mann, og myndu því í mörgum
tilvikum koma að takmörkuðum notum
fyrir sjúklinginn sjálfan. í öðru lagi geti
beinlínis verið skaðlegt, eða að minnsta
kosti varhugavert, að sjúklingur fái beinar
upplýsingar um heilsuhagi sína. Því væri
nærlægast, að sá læknir, sem fjallað hefði
um heilsuhagi sjúklingsins, meti þetta.1
Löggjafinn taldi því ástæðu til að
stíga afar varlega til jarðar þegar þessi
nú sjálfsögðu mannréttindi voru fyrst
lögfest. Tölvulögin voru lögfest á ný með
lögum nr. 39/1985 og ákvæðið um aðgang
sjúklinga að eigin sjúkraskrá óbreytt í 10.
gr. þeirra.
Með læknalögum nr. 53/1988 var þessi
réttur sjúklinga rýmkaður verulega og
læknum gert skylt að afhenda sjúklingi
sjúkraskrána, alla eða að hluta. Sá fyrirvari
var þó gerður að afhendingin þjónaði
hagsmunum sjúklings. Léki vafi á nauð-
syn afhendingar eða ef ástæða þótti til
vegna ákvæða laganna um þagnarskyldu
var lækni heimilt að afhenda landlækni
sjúkragögnin sem trúnaðarmál til frekari
fyrirgreiðslu. I skýringum kom fram að
hér væri um að ræða nýmæli í lögum, en
ekki framkvæmd.2
Strax reis ágreiningur um hvort
aðgangsheimildin væri afturvirk, það er
hvort hún næði til sjúkraskráa sem færðar
voru fyrir gildistöku læknalaganna.
Umboðsmaður Alþingis fjallaði um hann
í máli nr. 79/1989 og taldi heimildina ná
til allrar sjúkraskrárinnar. Með lögum nr.
50/1990 var þó ákveðið að aðgangurinn
næði ekki til sjúkraskráa sem færðar voru
fyrir gildistöku laganna. Fór löggjafinn
þar aðra leið en lögð hafði verið til í frum-
varpi ráðherra. Fleiri breytingar voru
gerðar á 16. gr. læknalaga, meðal annars
sú að lögfest var að sjúkraskrá væri eign
þeirrar heilbrigðisstofnunar þar sem
hún var færð eða þess læknis sem hana
færði. Sömuleiðis var skýrt tekið fram í
lagatextanum að það væri afrit af sjúkra-
skránni sem sjúklingurinn fengi afhent en
ekki sjúkraskráin sjálf.
Agreiningnum um aðgang að sjúkra-
skrám lauk með setningu upplýsingalaga
Dögg
Pálsdóttir
lögfræðingur
Læknafélags íslands
DoggP@lis.is
nr. 50/1996.1 25. gr. laganna var felldur
brott sá hluti 2. mgr. 16. gr. læknalaga
sem bannaði aðgang sjúklinga að eigin
sjúkraskrá sem færð var fyrir 1. júlí 1988.
í athugasemdum vegna breytingarinnar
kemur fram að hún sé nauðsynleg meðal
annars vegna lögfestingar mannréttinda-
sáttmála Evrópu hér á landi með lögum
nr. 62/1994. Auk þess fælist í breytingunni
sú samræming að færa ákvæði læknalaga
um aðgang að eigin sjúkraskrá megin-
reglum upplýsingalaga varðandi aðgang
einstaklinga að upplýsingum um þá
sjálfa.3
Lög um réttindi sjúklinga nr. 74/1997
gengu í gildi 1. júlí 1997. Lagaákvæði um
sjúkraskrár voru í 14. gr. og var hún í
samræmi við 16. gr. læknalaga, eins og
henni hafði verið breytt með upplýsinga-
lögunum. Þó var sú meginbreyting gerð á
ákvæðinu að felld var brott reglan um að
sjúkraskrá væri eign heilbrigðisstofnunar
þar sem hún var færð eða þess læknis
sem hana færði. Þess í stað var lögfest að
sjúkraskrá skyldi varðveita hjá þessum
aðilum. í framsögu formanns heilbrigðis-
og trygginganefndar Alþingis kom fram
ástæða þessarar breytingar væri sú að
það væri siðferðilega ekki hægt að segja
að sjúkraskrá sem fæli í sér sjúkrasögu
einstaklingsins væri eign einhvers annars
en viðkomandi sjúklings.1
Heimildir
1. althingi.is/altext/103/s/pdf/0002.pdf - nóvember 2013
2. Sjá athugasemdir við 15. gr. í frumvarpi til læknalaga.
Alþt. 1986, A-deild, bls. 1175). í fullyrðingunni felst að
framkvæmdin hafi í raun verið önnur en tölvulögin
mæltu fyrir um.
3. althingi.is/altext/120/s/0630.html - nóvember 2013
4. althingi.is/altext/121/05/rl6252817.sgml - nóvember
2013
LÆKNAblaölð 2013/99 599