Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2007, Blaðsíða 173
TVÍHEIMAR
Geta tvíheimasambönd komið í veg fyrir myndun bandalaga eða hvatt
til þeirra? Ekki er til neitt skýrt svar við því. Margt Karíbahafseyjafólk sem
býr í New York hefor til dæmis varðveitt tilfinningalegt samband við
heimaeyjar sínar og hefur skapað sér sérstaka sjálfsmynd út frá menningu
sinni og stundum stétt, sem gerir það frábrugðið aírísk-amerískum íbú-
um, en með þeim deila þeir sömu efinslegu aðstæðum undirokunar vegna
kynþáttar og stéttar. Þessi viðbrögð verða sterkari vegna naumra auðfinda
og stigveldaðs þjóðfélagskerfis. Þetta er þó ekki sjálfsagt. Að einu leyti
getur meðvitund um tvíheimasjálfsmynd ýtt undir átakasambönd og til-
finningu um yfirburði gagnvart öðrum minnihluta- og farandhópum.42 Á
hinn bóginn getur sameiginleg saga um nýlendustöðu, brottflutninga og
kynþáttafordóma orðið grunnurinn að bandalögum, eins og bandalögum
„svarta“ Bretlands gegn Thatcherismanum, sem sameinaði afríska, afrísk-
karabíska og suður-asíska íbúa á áttunda áratugnum. En slík bandalög
slima og ný myndast þegar önnur tvíheimabandalög verða áberandi - tál
dæmis tryggð við íslam í deilunum um Salman Rushdie. Engin trygging
er fyrir samstöðu „efdrlendubúa“. Póbták innan tvíheima stjómast af að-
ferðum sameiginlegrar tjáningar sem og tjáningar sem er margklofin og
sundnrlaus. Um þetta segir Avtar Brah, sem hefur skrifað um deilurnar
um nöfrt á tvíheimasamfélögum í Bretlandi á síðari hluta níunda áratug-
arins: „Notkun orðanna „svartur“, „indverskur“ eða „asískur“ ákvarðast
ekki svo mjög af eðh merkingarmiðs þeirra heldur táknfræðilegri virkni
þeirra innan ólíkra orðræðna. Þessar ólíku merkingar vísa á mismunandi
pólitískar aðferðir og niðurstöður. Þær virkja til leiks ólíkar menningar-
legar og póhtískar sjálfsmyndir og setja hömlur á það hvar hægt er að
draga upp landamæri eins „samfélags““.43
42 Um spennuna milli íbúa ffá Karíbahafinu og afrísk-amerískra íbúa í New York sjá
Nancy Foner, „West Indians in New York City and London: A Comparative
Analysis“, Carabbean Life in New York City, bls. 117-30. Greining Diönu L. Velez
(„We Are (Not) in This Together: The Caribbean Imaginary in ‘Encancaranu-
blado’ by Ana Lydia Vega“, Callaloo 17,3/1994, bls. 826-833) á sögu efdr rithöf-
undinn Onu Lydiu Vega frá Puertó Ríkó, „Encancaranublado" {Encancaranublado
y otros cuentos de naufragio, Rio Piedras: Editorial Antillana, 1987, bls. 73-79),
dregur af mikilli skarpskyggni fram mismuninn efdr þjóðemi, menningu, kyn-
þætti, tungumáli, sem aðgreinir innflytjenduma frá Karíbahafi, sem og hvemig
þeir em allir setrir undir sama hatt í bandaríska kynþáttaflokkunarkerfinu. Hvort
þessi síðari endurstaðsetning þeirra á efrir að leiða til nýrra bandalaga eða átaka
innan tvíheimahagkerfisins, þar sem ríkir skortur og strit, á efrir að koma í ljós.
43 Avtar Brah, „Difference, Diversity and Differentation“, bls. 130-131.