Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2008, Page 26
ÞORSTEINN VILHJALMSSON
séð. Einna þekktastur þessara manna er danski stjórnmálafræðingnrinn
Bjom Lomborg sem lauk doktorsprófi frá Háskólanum í Kaupmaimahöfn
árið 1994 og hefur verið lektor í stjórnmálafræði við Háskólann í Arós-
um. Síðan hefur hann m.a. verið tengdur Verslunarháskólanum í
Kaupmannahöfn (Idandelshojskolen) þar sem hann veitir forstöðu stofhun
sem nefnist Copenhagen Consensus Center.28 Hann hefur skrifað nokkr-
ar bækur um loftslagsbreytingar-9 og önnur umhverfismál og heldur úti
eigin vefsíðu.30
Lomborg fellst núorðið á að loftslagið sé að breytast eins og flestir
vísindamenn halda fram og að breytingin sé af mannavöldum, þótt hann
hafi áður dregið þá niðurstöðu í efa. Nú telur hann hins vegar aðeins að of
mikið sé gert úr vandanum og brýnna sé að leysa mörg önnur vandamál,
svo sem fátækt, sjúkdóma, vatnsskort og svo framvegis. I þessum sam-
anburði gerir hann lítið úr afleiðingum loftslagsbreytinga en á hinn bóg-
inn mikið úr kostnaði og vanda sem mætir mönnum í aðgerðum gegn
þeim. Auk þess einfaldar hann nokkuð getu manna til að bæta úr ýmsum
öðrum brýnum vandamálum og gerir mikið úr möguleikum manna á því
sviði, miðað við skipulag mannlegs samfélags nú á dögum. Þegar maður
les tillögur hans um þetta er oft eins og ímyndaður viðmælandi Lomborgs
sé einhvers konar guðlegt yfirvald eða stalín sem ráði öllu og ekki þurfi
annað en að telja honum hughvarf til þess að tilteknar mnbætur nái ffam
að ganga í heiminum. Þessi mynd af valkostum og ákvarðanatöku í því
fjölþætta samfélagi margra valdamiðstöðva sem við búum við er satt að
segja dálítið barnaleg á köflum. Þannig blasir ekki við nein mótsögn í því
að vinna bæði að útrýmingu fátæktar og að umhverfismálum í senn eftir
því sem burðarmagn málaflokksins leyfir á hverjum tíma.
Hins vegar má Lomborg eiga það, þrátt fyrir einhæfhina í málflumingi
hans, að hann gegnir lykilhlutverki í umræðunni með því að benda á veilur
í máli þeirra sem lengst ganga í hópi umhverfissinna. Sumar af grunnhug-
myndunum í aðferðum hans virðast líka nýjar af nálinni og áhugaverðar,
til dæmis sú hugmynd að reyna að meta fjölda mannslífa sem bjargast
við tiltekin fjárúdát efdr mismunandi leiðum sem við eigum um að velja.
Þannig er það ekki út í hött að Lomborg nýmr nokkurs álits og virðingar
og fékk dl dæmis þá viðurkenningu frá breska dagblaðinu Guardian að
28 http://www.copenhagenconsensus.com.
29 Lomborg, [2000], 2001 og 2007.
30 http://www.lomborg.com.
24