Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2008, Side 102
GUÐNI ELISSON
segir hana snúast um peninga. Þetta er afar villandi samanburður, ekki
síst vegna þess að hrakspárorðræðan gengur út á að forða þjóðum heims
frá hörmungum, öfugt við þá tortímandi dómsdagsþrá sem t.a.m. stýi'ði
ákvörðunum Hiders síðustu mánuðina fyrir fall Þriðja ríkisins.60
Þrátt fyrir að bók Bookers og Norths, Scared to Death, sé gölluð að því
leyti sem hér hefur verið lýst er þrh ekki að neita að umræðan um lofts-
lagsbreytingar hefur um margt farið úr böndunum og hafa þar margir
gengið lengra en A1 Gore, sem er fremur ábyrgur í lýsingum sínum þvert á
það sem andstæðingar hans vilja vera láta. Höfundar greinarinnar „Warm
Words: How are we telling the chmate story and can we tell it better?“61
efast ekki um alvarlegar afleiðingar loftslagsbreytinga á jörðinni, en vara
við því að hrakspárorðræðan geti grafið undan getu okkar til að grípa
til aðgerða: „Almenningur hefur verið sHptur valdi vegna þess að rnálið
virðist einfaldlega of stórt. Og þegar hlutir eru farnir að hljóma eins og
vísindaskáldskapur verða þeir óraunverulegri en ella.“6- Slíka niðm'stöðu
vilja Ereaut og Segnit forðast í lengstu lög, því að þá sé verr farið af stað
en heima setið.63
60 Dómsdagshópamir eru reyndar weir. Báðir hópar trúa því að róttækar breytingar
á veðurfari muni líklega ógna lífi mannsins á jörðinni, en bregðast síðan tdð þeirri
vissu með ólíkum hætti og það hefur áhrif á afstöðu þeirra til loftslagstdsindanna.
I fyrri hópnmn eru ýmsir þeir sem láta sig umhverfisvernd varða og hafa þeir
verið fiTÍrferðarmeiri í umhverfisumræðu fjölmiðlaima. I þeim síðari eru bókstafs-
trúarmenn sem bíða í ofvæni endurkomu Krists, þeirrar stundar þegar þeir verða
hrifnir brott úr jarðlífrnu áður en jörðin gengur í gegnum þrengingamar miklu
sem leiða til ragnaraka. Sjá grein mína: „Þið munuð öll deyja: Lita dómsdagsspár
hugmyndir manna um loftslagsvísindi?“, Lesbók Morgunblaðsins, 19. apríl 2008, bls.
8-9.
61 Gill Ereaut og Nat Segnit: „Warm Words: How are we telling the climate stoty
and can we tell it better?“ Nákvæmari greiningu á hrakspárorðræðtmni má fimia í
grein minni „Nú er úti veður vont: Gróðurhúsaáhrif og íslensk umræðuhefð", sjá
sérstaklega bls. 12-18. Sjá einnig grein mína: „Þið munuð öll deyja: Lita dóms-
dagsspár hugmyndir manna um Ioftslagsvísindi?“, Lesbók Morgunblaðsins, 19. apríl
2008, bls. 8-9.'
62 Sjá: ,AIedia attacked for ‘climate porn’“. Sjá BBCNews, 2. ágúst 2006, http://www.
bbc.co.uk/ [sótt 6. mars 2007].
63 Ymsir hafa velt því fyrir sér hvers vegna gangi ekki betur að vekja almenning til
ritundar um loftslagsvandann, en eina forvitnilegustu greininguna er að finna í
S. Stoll-Kleeman, Tim O’Riordan og Carlo C. Jager: „The psychology of denial
conceming climate mitigation measures: evidence ffom Svdss focus groups“,
Global Enviranmental Change 11, 2001, bls. 107-17. Niðurstöður greinarinnar
eru settar í frekara samhengi af Mark Lynas í Six Degrees: Our Future On A Hotter
Planet. London, New York: Harper Perennial 2008 [2007], bls. 262-266, hér sér-
ioo