Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2008, Page 153

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2008, Page 153
SMALAKROKAR Seint hefði Wittgenstein orðið samxnála þeim Zahavi og Damasio um það sem ég kalla „íromsjálfHann hefði líklega sagt að vandséð sé hvern- ig ffumsjálfið geti vitað af sér nema það hafi á valdi sínu hugtök hvers beit- ingu aðrir geta prófað. Og er ekki þannig lagað sjálf furðu líkt venjulegri persónu sem hfir í samfélagi? Höfum við yfirleitt nokkra ástæðu til að ætla að til sé einhvers konar þokusjálf handan hlutbundinnar persónu með kennitölu og allt tilheyrandi? Austurríski heimspekingurinn hefði kannski ekki samsinnt þessum bollaleggingum. Aftur á móti er næsta víst að hann taldi sálina málræna og fylgdi því málháttarkenningunni. Líka er líklegt að hann hafi tahð málið vera félagslegt í eðli sínu (sú túlkun á hugsun hans er alla vega frjó).56 Málið byggist á reglubeitingu og aðrir verða að geta met- ið reglubeitingu okkar, annars getum við ekki vitað hvort við beitum regl- um rétt eða ímyndum okkur það. Þannig má nota, jafhvel misnota, kenn- ingar Wittgensteins til að styrkja þá kenningu Ricœurs að mál, sál, menning og samfélag séu samofin. Ekki hefði sakað að Ricœur hefði svar- að rökum gegn málháttarkenningunni, t.d. þeim rökum að mikilvægur þáttur í þekkingu okkar sé þögull, verði ekki gripinn með orðum. Eg þekki til dæmis andlit vina án erfiðleika en get ekki tjáð þá þekkingu í orðum svo fullnægjandi sé.5/ Þetta þýðir að innstöður okkar eru ekki bara málræns eða táknræns eðlis, það er einhver vídd í þeim sem er handan málsins. Það hjálpar reyndar ekki vitundarspekinni vitund því þögul þekking gemr ekki talist þekking nema við getum sýnt með hegðun okkar að við búum yfir þessari þekkingu, t.d. með því að benda á tiltekið andlit o.s.frv. Fjórði ásteytingarsteinn varðar meinta spennu milli samhljóms og mis- hljóms og frásöguna sem móteitur gegn henni. Svo virðist sem Ricœur telji að þess lags spennu sé aðeins að finna í sjálfsemdinni. En er ekki 56 Túlkun sú kallast „félagsviðhorfið“ (e. the community view) og er varin m.a. af norska heimspeldngnum Harald Grimen, „Kommentar til Olav Gjelsvik“, í Har- ald Grimen og Karl Knapskog (ritstjórar); Teori og narrasjon, Bergen: Ariadne, bls. 258-269. Ýmsir hafa andæft félagsviðhorfinu, t.d. John McDowell. Hann virðist telja að sjálfsskoðun geti vel átt sér stað þótt aðrir geti ekki leiðrétt mögulegar villur við þá iðju. En þau hugtök sem beitt er við sjálfsskoðun verða að vera þess eðlis að inntak þeirra sé öðrum skiljanlegt og aðrir menn geti beitt þeim. Athugið að McDowell viðurkennir eftir sem áður nauðsyn þess að félagslegur þátmr sé í greiningunni. McDowell, „One Strand in the Private Language Argument“, Mind, Value and Reality, Cambridge, Massachussetts og London, Englandi: Har- vard University Press, bls. 290. 57 Þessi rökfærsla er ættuð frá Michael Polanyi. Polanyi, Personal Knowledge, Chi- cago: The University of Chicago Press, 1958.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.