Þjóðlíf - 01.05.1988, Page 8
INNLENT
Upplýsingarnar um bílakaup fyrir stjórnar-
formann félagsins, samfara fregnum um
hallarekstur og uppsagnir hafa einnig hleypt
illu blóði í marga aðstandendur. Eftir aðal-
fund fyrirtækisins urðu ársreikningarnir
einnig ýmsum tilefni til efasemda um rekst-
urinn.
Alfreð Þorsteinsson varaborgarfulltrúi
Framsóknarflokksins spurðist fyrir um stöðu
Granda í borgarráði þegar í febrúarmánuði.
„Borgarstjórinn bað mig þá um að bíða
vegna aðalfundarins sem haldinn var í mars.
Eftir aðalfundinn lét borgarstjórinn sem allt
léki í lyndi bæði á borgarráðsfundi og á borg-
arstjórnarfundi. Síðan gerði ég sérstaka
fyrirspurn um málið, þar sem sagði m.a. að
skuldir fyrirtækisins hefðu hækkað um 67
milljónir á sl. ári og í raun hefði orðið 172
milljón króna tap á Granda og spurning hve-
nær fyrirtækið þyrfti að selja næsta skip
vegna rekstrarerfiðleika.Þessa bókun lagði
ég fram daginn áður en Grandi sagði upp
milli 50 og 60 manns", sagði Alfreð Þor-
steinsson.
I framhaldinu lagði Alfreð franr fyrirspurn
um viðbrögð borgarstjóra, hvort borgin ætl-
aði að auka hlutafé í fyrirtækinu, og ef það
yrði gert hvort væri nokkur eðlismunur á
slíku og beinu framlagi til BÚR á sínunr
tíma. A borgarráðsfundi þriðjudaginn 3. maí
svaraði borgarstjóri, og kvað borgina ekki
hafa nein áform uppi um aukningu hlutafjár í
Granda.
Rekstrarerfiðleikar í fiskvinnslu eru víða
mjög miklir og hafa orðið þyngri í skauti
fyrirtækjanna á þessu ári. Grandi er t.d. tal-
inn vera í þeirri stöðu að geta ekki greitt
niður lánin sem hvíla á fyrirtækinu. Fyrir-
tækið safni einfaldlega skuldum. Þetta hái
fyrirtækinu, þannig að það geti ekki fjár-
magnað nauðsynlegar endurbætur t.d. á
skipum. Viðbrögðin fram að þessu hafi verið
þær að segja upp fólki og selja eignir. Brynj-
ólfur Bjarnason telur hins vegar að skulda-
staðan sé mun skárri en aðrir heimildamenn
Þjóðlífs í sjávarútvegi vilja meina.
Skipasala
Grandi og BÚR undir stjórn Brynjólfs,
hefur selt þrjú skip á síðustu þremur árunr og
eitt verður selt á þessu ári. „Mesti skipasali
landsins", segja gagnrýnendur um Brynjólf.
Skipin sem Grandi á eftir eru við aldur og
þarfnast endurbóta.
Nýverið seldi Grandi togarann Ásþór á
130 milljónir til Grindavíkur. Þótti mörgum
sem óeðlileg leynd hvíldi yfir sölunni. Togar-
inn var ekkert auglýstur og telur Alfreð Þor-
steinsson að hér hafi nrjög óeðlilega verið
staðið að málum; fjöldi byggðarlaga hefði
haft áhuga á að kaupa skipið með tilheyrandi
kvóta og hægt hefði verið að fá 20 til 30
milljónum króna meira fyrir það á almenn-
um markaði. Reyndar segja gagnrýnendur
að almennt hvíli leynd yfir starfsemi fyrir-
tækisins. Varðandi skipasöluna á Ásþóri
segja sumir að skipið hafi verið selt á raun-
virði; skip hafi almennt farið lækkandi upp á
síðkastið. En sé það rétt er það heldur ekki
til að styrkja eiginfjárstöðu Granda. í því
sambandi má minna á, að lækkandi heims-
markaðsverð á flutningaskipum var á sínum
tínra talin ein helsta skýring á óförum Haf-
skips hf.
Erfiðleikar — arfur
frá sameiningu
Margir telja að rekstrarerfiðleikana og
stöðu Granda megi rekja til sameiningarinn-
ar fyrir rúmum tveimur árum. í orðaleik er
sagt að Davíð hafi náð ísbirninum í Búrið, en
húnarnir hafi sloppið. Staðið hafi verið að
sameiningunni þannig að hún hafi verið sem
hagkvæmust fyrir ísbjarnarmenn en BÚR og
borgin hafi fengið skellinn. Allt hafi verið
gert til að bæta hag ísbjarnarmanna.
I sameiningunni var talað um 4% vexti af
skuldum Granda en reyndin varð sú, að
vextir urðu 15% árið 1986 og 15% 1987,
þannig að fjármagnskostnaður varð mun
Davíð Oddsson: Skipaði sjálfur fulltrúa
borgarinnar í stjórn Granda. Fuiltrúar
minnihlutans fá fréttir af fyrirtækinu fyrst
ífjölmiðlum. Um bílakaupin handa Ragn-
ari Júlíussyni sagði Davíð: Eðlilegt og
alsiða.
meiri en reiknað hafði verið með. Sam-
kvæmt heimildum Þjóðlífs var einnig gerð
skýrsla, þar sem sagði að vextir af skuldun-
um sem Grandi yfirtók yrðu 15% frá byrjun,
sem þýddi að reksturinn gæti aldrei borið sig
ineð þeinr skuldum sem fyrirtækið tók á sig í
byrjun.
Þann 13. nóvember 1985 var Grandi stofn-
aður með sameiningu BÚR og Isbjarnarins
með 200 milljónum króna í hlutafé. Fjórum
dögum síðar er búið að færa upp eignir
Granda í 493 milljónir. „Einsdæmi í
fyrirtækjasögu á íslandi að eiginfé hafi hækk-
að um 73 milljónir á dag“, sagði heimilda-
maður um þetta atriði. Hlutaféð var inn-
borgað með skuldum og eignum. Forsvars-
menn fyrirtækisins kváðu Granda búa við
trausta eiginfjárstöðu. en traust eiginfjár-
staða skiptir ekki máli ef fyrirtækið getur
eftir sem áður ekki borgað skuldir.
Við sameininguna átti BÚR 75% í fyrir-
tækinu, ísbjarnarbræður 17% og Olís 7.5%
(í þann tíð áttu Isbjarnarmenn í Olís). BÚR
var selt inn í Granda á 400 millljónir, með 4
togara sem allir voru í lagi. Í upphafi voru
skuldir Granda 100 milljónir á bak við hvern
togara frá BÚR. Úm síðustu áramótin voru
skuldir Granda á bakvið hvern togara um 210
milljónir króna.
Sífellt minna fyrirtæki
Þegar Grandi var stofnaður kvaðst Davíð
Oddsson og borgarstjórnarmeirihlutinn í
Reykavík vera að setja á laggirnar eitt stórt
og voldugt fyrirtæki upp úr tveimur. En stað-
Hver kaupir aukið hlutafé?
Á aðalfundi Granda var samþykkt að
auka hlutaféð um 150 milljónir króna. Þar
sem borgin hefur ákveðið að auka ekki
hlut sinn er óljóst hverjir muni kaupa.
„Tíminn á eftir að leiða það í ljós“, sagði
Brynjólfur Bjarnason framkvæmdastjóri
þegar hann var spurður um þetta atriði.
Hann kvað stjórn fyritækisins eiga eftir
að taka ákvörðun um það hvernig hún fer
í söluna á hlutafénu.
í ársreikningum fyrir 1987 kemur fram í
skýringum að hlutaféð hafi verið aukið á
síðasta ári um 6.4 milljónir króna með
útgáfu nýrra hlutabréfa, og að seld hafi
verið hlutabréf að nafnvirði 5.5 mill. fyrir
um 12.4 mill. en hins vegar segir ekkert
um hver keypti. Jón G. Tómasson borgar-
ritari og endurskoðandi fyrirtækisins
upplýsti í samtali við Þjóðlíf, að þessi
aukning hafi verið tengd atriðum sem
fram komu vegna uppgjörs, þar sem í ljós
kom að lóð í eigu BÚR hafði ekki verið
metin. Jón kvað borgina ekki hafa þurft
að greiða krónu, og til einföldunar hefði
verið ákveðið að auka hlutaféð til sam-
ræmis og hlutur borgarinnar umreiknað-
ur í sama hlutfalli og áður.
8