Þjóðlíf - 01.05.1988, Qupperneq 9

Þjóðlíf - 01.05.1988, Qupperneq 9
INNLENT Aðalstöðvar Granda. Skrifstofu og stjórnunarkostnaður er mikill hjá fyrirtækinu: 47 milljónir á síðasta ári. Til samanburðar má nefna Útgerðarfélag Akureyrar sem er stærra fyrirtæki. Kostnaður á þeim bæ á síðasta ári nam 32 milljónum. reyndin er sú, að umsvif Granda hafa farið minnkandi, eru í dag minni en umsvif BÚR eins voru áður í útgerð. Fjöldi skipa er að vísu sá sami og áður en aflamagnið hefur rýrnað um 2500 til 3000 tonn. Áður átti BÚR um þriðjung í Síldar- og fiskimjölsverksmiðjunni en Grandi á nú um 65.3% í verksmiðjunni. Eignarhlutinn er bókfærður á tæplega 187 milljónir króna, en tapið á síðasta ári var ríflega 21 milljón króna. Par var ráðinn framkvæmdastjóri Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, sem áður var framkvæmdastjóri fulltrúaráðs Sjálf- stæðisfélaganna í Reykjavfk. Skuldum safnað í góðæri Grandi safnaði skuldum á sl. ári að upp- hæð um 67 milljónir, „í mesta góðæri sem staðið hefur um langa hríð í íslenskum sjáv- arútvegi". Þá er einnig bent á að á þessum tíma hafi ekkert heldur verið fjárfest eða framkvæmt nýtt. sem eigi eftir að skila arði síðar meir. Skuldir á bak við hvern togara eru 220 milljónir króna. Á síðasta ári tók Grandi viðbótar lang- tímalán að upphæð 170.7 milljónir króna eins og reyndar einnig árið 1986. Afborganir langtímaskulda á sl. ári voru samkvæmt árs- reiknigi 237 milljónir. Vaxtakostnaður á síð- asta ári var um 95 milljónir og gengistap varð 87 milljónir króna. Samtals voru afborganir og vaxtakostnaður því um 419 milljónir króna. Nærri má geta að sú upphæð gæti verið um hálfur milljarður króna í ár, þannig að af því má sjá hvert stefnir. Reyndar bend- ir Bynjólfur á, að gengistap greiðist ekki á sama árinu, heldu dreifist yfir lengra tímabil, en það breytir ekki heildarniðurstöðunni. Brynjólfur telur einnig að aðrar tölur um afborganir af lánum og vaxtakostnað í árs- skýrslunni gefi ekki rétta mynd af raunveru- legum skuldagreiðslum. „Málið er það að Grandi er búinn að vera rekinn í tvö ár rúm. Við höfum staðið við afborganir og vexti á þeim tíma og teljum okkur geta það áfram “ segir Brynjólfur. Hann kveður hálfan milljarð í greiðslu af- borgana og vaxtakostnaðar á þessu ári ekki vera rétta tölu. Fyrirtækið sé með 623 mill- jónir króna í eigið fé og yfir 1300 milljónir í langtímaskuldum. Eigið fé sem er yfir 30% af heildareignunum þyki alls ekki slærn staða. Á ársfundi SH í 1985 var öllum reglum breytt um greiðslu til félagsmanna. Inneign- arfé hafði verið óverðtryggt en varð verð- tryggt. Skömmu síðar var tilkynnt um sam- einingu ísbjarnarins og BÚR og stofnun Granda. Jón Ingvarsson ísbjarnarbróðir er í stjórn SH fyrir Granda. Hann fór vel út úr sameiningunni og er í stjórn Granda áfram þar sem hann hefur m.a. tekið ákvarðanir um uppsagnir verkafólks og kaup á bíl handa Ragnari Júlíussyni. „Pjóðin öll verður að taka þátt í erfiðleikunum sem leiða af verð- lækkun og lækkun dollars", heitir greinin sem Jón Ingvarsson skrifaði 6. maí í Morgun- blaðinu. Dýr yfírbygging Fjármagnskostnaður Granda er talinn vera um 175 milljónir á sl. ári. Yfirbyggingin þykir mikil hjá fyrirtækinu . Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður á sl. ári var 47 milljónir króna. Útgerðafélag Akureyringa er stærra fyrirtæki og var skrifstofu og stjórnunarkostn- 1348 milljónir í skuld Skammtímaskuldir Granda eru sam- kvæmt ársreikningi 388.384.928 og lang- tímaskuldir 960.487.289 þegar afborganir næsta árs hafa verið dregnar frá, eða skuldirsamtals upp á 1.348.872.217 krón- ur. í birgðum, skammtímakröfum og bankainnistæðum á fyrirtækið rúmlega 313 milljónir og fastafjármunir þess, þ.e. eignarhutir í öðum félögum o.fl. nema rúmlega 237 milljónum og fiskiskip 868 milljónum.vélarog tæki 182 milljónum og fasteignir332 milljónum. Eignir félagsins eru samtals metnar á 1.972.466.578 og sömuleiðis skuldir og eigið fé samkvæmt ársreikningnum. aður þar var um 32 milljónir á sl. ári. Stjórn- endur Granda eru líka með há laun (sjá rammagrein). Gagnrýnendur segja fyrirtækið þjást und- an flokkshagsmunum Sjálfstæðisflokksins og gæðinga á hans vegum.í þessu sambandi er líka talað um „sukk og spillingu“ hjá Granda. Til dæmis um það eru áðurnefnd kaup fyrirtækisins á bifreið fyrir 1.5 milljónir króna handa stjórnarformanni fyrirtækisins, Ragnari Júlíussyni skólastjóra (fyrrv. borg- arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins) og Helgar- pósturinn skýrði nýlega frá. Þetta er gjör- ningur sem fellur á sama tíma og forsvars- menn fyrirtækisins tilkynna uppsagnir verkafólks, rýrari kost í mötuneyti starfs- manna og fleira í þeim dúrnum. Eins og stað- festing á öllum verstu fordómum fólks um framkomu forstjóra og stjórnenda útgerðar- fyrirtækja. Davíð Oddsson borgarstjóri sagði á borgarstjórnarfundi 5.maí að það væri alsiða í fyrirtækjum af þessari stærðar- gráðu að bíll væri keyptur fyrir stjórnarfor- mann. Þegar verkafólkinu var sagt upp vís- uðu þeir Brynjólfur og félagar til þess, að hallarekstur væri á fyrirtækinu, afurðaverð færi lækkandi á markaði og ríkisstjórnin hefði ekki lækkað gengið. En þegar Ragnar stjórnarformaður var spurður um samhengið: uppsagnir verkafólks og bílakaup fyrir hann, kvað hann ekkert samhengi vera þarna á milli; ástæða uppsagnanna hefði aðallega verið vélvæðing fyrirtækisins. Stjórn Davíðs í stjórn Granda sitja Ragnar Júlíusson for- maður, Þórarinn V. Þórarinsson, Baldur Guðlaugsson, Þröstur Ólafsson og Jón Ingv- arsson áðurnefndur. Stjórnarmennirnir Ragnar, Þórarinn og Þröstur eru fulltrúar borgarinnar og skipaði Davíð Oddsson full- trúana sjálfur þrátt fyrir harðorð mótmæli 9 Skuldum vafinn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.