Þjóðlíf - 01.05.1988, Side 18

Þjóðlíf - 01.05.1988, Side 18
INNLENT Atvinnumenn snúa aftur Spáð í Islandsmótið í knattspyrnu. Einstaklingsframtak ífyrirrúmi. Miklar mannabreytingar hjáflestum liðum. Sama þróun er að verða í knattspyrnunni hérlendis og í handboltanum: Atvinnu- mennirnir eru á heimleið. Atli Eðvaldsson og Lárus Guðmundsson sem verið hafa í Þýskalandi um margra ára skeið leika með Lokastaðan í fyrra Valur 18 10 7 1 30-10 37 Fram 18 9 5 4 33-21 32 ÍA 18 9 3 6 36-30 30 Þór 18 9 2 7 33-33 29 KR 18 7 4 7 28-22 25 KA 18 5 6 7 18-17 21 ÍBK 18 5 6 7 22-30 21 Völsungur 18 4 5 9 20-32 17 Víðir 18 3 8 7 20-33 17 FH 18 4 4 10 22-34 16 Þjóðlífsspáin 1988 Víkingur Valur Fram KR Þór Leiftur ÍA ÍBK KA Völsungur íslandsmeistarar síðustu 10 ár 1978: Valur 1979: Vestmannaeyjar 1980: Valur 1981: Víkingur 1982: Víkingur 1983: Akranes 1984: Akranes 1985: Valur 1986: Fram 1987: Valur Val og Víkingi í sumar. Ómar Torfason kem- ur frá Sviss og verður í herbúðum Framara; Pétur Pétursson kom heim í fyrra og Ragnar Margeirsson verður unr kyrrt þótt hann færi sig um set á milli félaga, frá Fram til ÍBK. Þá hafa spurst þau gleðilegu tíðindi að Karl Þórðarson, Akranesi, ætli að taka fram skóna á ný. Aukgömlu jaxlanna munu marg- ir ungir og efnilegir leikmenn setja mark sitt á íslandsmótið í sumar, sem búast má við að verði skemmtilegra en oft áður. Síðustu fjögur árin hafa samtök leiknranna í fyrstu deild gengist fyrir könnun á rneðal þjálfara og leikmanna um lokastöðuna í ís- landsmótinu. Til þessa hefur spáin um ís- landsmeistara ávallt gengið eftir. Ef svo verður einnig að þessu sinni mun Fram hampa titlinum í haust. Niðurstöður könn- unarinnar voru á þessa leið: 1. Fram 269 stig 2. KR 250 stig 3. Valur221stig 4. ÍA 209 stig 5. ÍBK 176 stig 6. Þór 159 stig 7. Víkingur 144 stig 8. KA 99 stig 9. Leiftur 69 stig 10. Völsungur 51 stig Athygli vekur hve íslandsmeisturum Vals er spáð litlu gengi. Hlíðarendafélagið hefur misst eina sjö leikmenn síðan í fyrra, en þess ber að geta að enginn þeirra átti fast sæti í aðalliðinu. Varamannabekkurinn er hins vegar auður. I staðinn hafa Valsarar fengið markaskorarann Tryggva Gunnarsson frá KA. Hann skoraði 28 mörk með KA í 2. deildinni í hitteðfyrra. Á síðasta ári skoraði hann að vísu ekki nema fjögur mörk, — og varð samt markahæstur KA-manna. Nú ætti hann að hafa skólast í harðri keppni fyrstu deildar. Atli Eðvaldsson er Valsliðinu gífur- legur styrkur og mun án efa draga að marga áhorfendur. Það er engin ástæða til að ætla annað en Valsmenn verði í toppbaráttunni ■ ' *i. K I I. . i 1 Pétur Pétursson hefur svo sannarlega lífgað upp á fyrstu deildina. Sterkir ein- staklingar eru aftur farnir að setja svip sinn á fótboltann. undir stjórn nýs þjálfara, Harðar Helgason- ar. Framarar sýndu ágæta takta í Reykjavík- urmótinu en ýmislegt bendir til þess að þeim fari senn að daprast hið mikla flug sem þeir hafa verið á síðustu árin. Friðrik Friðriks- son, landsliðsmarkvörður er farinn til Dan- merkur. Ragnar Margeirsson og Einar Ás- björn Ólafsson til Keflavíkur, Janus Guð- laugsson til FH, og svona mætti áfram telja. Pétur Ormslev, kjölfestan í liðinu. þarf að eiga annað snilldarkeppnistímabil ef hlutirn- ir eiga að ganga upp. KR-ingar sýndu tennurnar í Reykjavíkur- mótinu og unnu fyrsta titilinn í 10 ár. „Ross er mættur" sögðu Vesturbæingar harla glaðir yfir að hafa fengið til sín Ian Ross sem þjálf- aði Val síðustu fjögur árin með frábærum árangri. Pétur Pétursson er hálft liðið á góð- um degi og reynsla hans er ómetanleg. Marg- ir efnilegir leikmenn eru í KR. til dæmis Rúnar Kristinsson sem valinn var efnilegasti leikntaður síðasta íslandsmóts. Páll Ólafsson markvörður, Þormóður Egilsson og Þor- steinn Halldórsson. Allir eru þeir rétt um tvítugt en engu að síður fastamenn í liðinu. Akurnesingar hafa orðið fyrir mikilli blóð- töku, misst báða helstu markaskorara sína, Sveinbjörn Hákonarson til Stjörnunnar og Valgeir Barðason til KA. Þeir skoruðu sam- anlagt 15 mörk í fyrra. Landsliðsmarkvörð- urinn Birkir Kristinsson hefur einnig yfir- 18

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.