Þjóðlíf - 01.05.1988, Page 19
INNLENT
Atli Eðvaldsson í landsleik gegn Skotum. Hann er einn reyndasti og besti knattspyrnumaður okkar og mun styrkja íslandsmeist-
ara Vals til mikilla muna.
|efið herbúðir í A og ver mark Fram í sumar.
í staðinn hafa Akurnesingar fengið hinn
efnilega Sigurstein Gíslason úr KR, Mark
Duffield frá KS og í markið kemur Ólafur
Gottskálksson úr KA. Og eins og áður sagði
ætlar kempan Karl Pórðarson að hefja leik
að nýju og eru það gleðitíðindi. Sumarið á
eftir að verða Akurnesingum erfitt, þótt
aldrei megi afskrifa þá. Þeir eiga ýmsa góða
leikmenn sem stíga sín fyrstu spor í fyrstu
deildinni í sumar. En höfuðverkefnið er í því
fólgið að búa til nýtt lið sem lætur að sér
kveða á komandi árum.
Akureyrarfélögin Pór og KA eru ekki lík-
leg til að blanda sér í toppbaráttuna í sumar.
Pórsarar verða sjálfsagt á svipuðu róli og í
fyrra, en þeir eru með mjög mistækt lið. Einn
daginn leika þeir eins og englar en geta svo
fallið um marga gæðaflokka. KA náði besta
árangri sínum frá upphafi í fyrra og hafnaði í
sjötta sæti. Sem fyrr sagði eru þeir Tryggvi
Gunnarsson og Ólafur Gottskálksson farnir
en í staðinn hefur KA fengið Antony Karl
Gregory úr Val og Valgeir Barðason úr ÍA.
Þeir eru líklegir til að skerpa framlínu liðsins
til muna, en KA skoraði fæst mörk allra liða í
fyrstu deild á síðasta ári. Fallbaráttan verður
að líkindum hlutskipti liðsins eins og endra-
nær.
Það eru fleiri lið af Norðurlandi. „Spútn-
ikliðið" frá Ólafsfirði, Leiftur. sem í áður-
nefndri könnun er spáð falli er líklegt til að
gera rósir. Fleimavöllur þeirra hefur gríðar-
lega mikið að segja og víst er um að Ólafs-
firðingar styðja lið sitt með ráðum og dáð.
Leiftur hefur ekki misst einn einasta leik-
mann en fengið fimm nýja sem efla liðið.
Ólafsfjarðarliðið er sýnd veiði en ekki gefin
fyrir hin ráðsettu og gamalgrónu fyrstu
deildar lið.
Völsungar frá Húsavík héldu sæti sínu í
fyrra með harmkvælum og hagstæðara
falli. ÍBK þykir leika heldur bragðdaufa
knattspyrnu og þrátt fyrir liðsstyrk frá Víði
og Fram er hætt við að liðið verði í fallbarátt-
unni.
Keflvíkingar áttu í miklu basli lengstaf í
fyrra sem endaði með því að þjálfarinn var
látinn fjúka. Þá tók Englendingurinn Frank
Upton við liðinu og forðaði því snarlega frá
falli. ÍBK
þykir leika heldur bragðdaufa knattspyrnu
og þrátt fyrir liðsstyrk frá Víði og Fram er
hætt við að liðið verði í fallbaráttunni.
Þá er aðeins ótalið eitt lið: Víkingar. Þeir
komu upp úr annarri deild í fyrra eftir
skamma dvöl og hafa nú að nýju fengið sem
þjálfara sovéska töframanninn Júrí Sedov.
Hann gerði Hæðargarðsliðið að íslands-
meisturum árin 1981 og 1982 — eftir tæpra
60 ára bið. Sedov er sveipaður goðsagna-
kenndum ljóma og því er engin tilviljun að
nýir leikmenn hafa þyrpst til Víkinga. Þar
ber hæst að Lárus Guðmundsson kemur frá
Kaiserslautern og mun án efa verða einn
helsti markavarðahrellir vertíðarinnar ef
honum tekst vel upp. Andri Marteinsson er
kominn í sitt gamla félag eftir ársvist í KR og
Guðmundur Hreiðarsson úr Val er mættur í
markið og svona mætti áfram telja.
Víkingar eru líklegir til stórafreka í fyrstu
deildinni og Íslandsmeistarakandídatar.
Baráttan um titilinn verður trúlega á milli
Reykjavíkurrisanna: Víkings, Fram, Vals og
KR.
Á botninum verður gríðarleg barátta ef að
líkum lætur, en Völsungar eiga erfitt keppn-
istímabil í vændum og verða sennilega á
botninum frá upphafi. í þeim selskap verða
einnig KA og ÍBK. Akurnesingar geta lent í
fallbaráttunni líka, vörnin var oft slök í fyrra
og nú er búið að vængstífa framlínuna. Leift-
ur er líklegt ti! að vera á sveimi um miðja
deild og gæti raunar blandað sér í toppbar-
áttuna. Þórsliðið siglir að líkindum lygnan
sjó án stórafreka.
Hvernig sem allt fer að lokum er eitt á
hreinu: Mótið nú verður skemmtilegt og
fjörugt og einstakir leikmenn setja meiri svip
á deildina en undanfarin ár. Og það eru um-
fram allt snjallir einstaklingar sem gera
knattspyrnuna skemmtilega, skora og sýna
kúnstir — og laða að áhorfendur.
Hrafn Jökulsson
19