Þjóðlíf - 01.05.1988, Side 21
INNLENT
Sigrún Helgadóttir líffræðingur vann árum saman hjá Náttúruverndarráði, m.a. við að
byggja upp þjóðgarðinn í Jökulsárgljúfrum. Hún hefur menntun á sviði þjóðgarða og
hefur haldið landvarðanámskeið fyrir Náttúruverndarráð. Stefán Benediktsson er
arkitekt og þekkir vel til fyrir austan. Hann var ráðinn þjóðgarðsvörður.
sumur samfleytt, frá 1974-78. Hún vann á
skrifstofu Náttúruverndarráðs frá 1983-85.
Par sá hún m.a. um að skipuleggja náms-
skeið fyrir landverði, ýmiss konar fræðslu og
útgáfu upplýsingabæklinga.
Engu að síður létu a.m.k. tveir ráðsmenn
ekki svo lítið að lesa umsókn Sigrúnar. Það
staðfestu þeir í samtölum við Þjóðlíf. „Ég las
ekki þessar umsóknir", sagði annar þeirra.
„Hins vegar spurði ég Gísla Gíslason um þær
og hann gaf mér upplýsingar um efni þeirra.
Út frá því og niðurstöðu nefndarinnar sem
ræddi við umsækjendur tók ég afstöðu“.
Náttúruverndarráð tók málið fyrir á tveimur
eftirmiðdagsfundum. Þar lágu umsóknirnar
fyrir — en þeim var ekki dreift til ráðsmanna
fyrir fundina, eins og tíðkast við mannaráðn-
ingar af þessu tagi hjá flestum stofnunum.
Kosningin um starfið var leynileg. Út á við
hafa ráðsmenn gefið þær einar upplýsingar
að Stefán Benediktsson hafi fengið hreinan
meirihluta, en Sigrún Helgadóttir ekkert at-
kvæði hlotið. Samkvæmt heimildum Þjóðlífs
féllu atkvæði þannig að Stefán hlaut fjögur
atkvæði og Jón Hjartarson þrjú.
Ráðningin varð þegar mjög umdeild.
Landverðir og Félag náttúrufræðinga álykt-
uðu gegn henni og átöldu að gengið hefði
verið fram hjá hæfu fólki með menntun og
reynslu. „Auðvitað var þetta í hæsta máta
ófagleg ráðning" , sagði einn ráðsmaður sem
studdi Jón Hjartarson í samtali við Þjóðlíf.
„Það er mikil óánægja með þessa ráðstöfun
og hún veltir upp þeirri spurningu hvernig
Náttúruverndarráð er skipað".
Ráðið er kosið á Náttúruverndarþingum
sem haldin eru þriðja hvert ár, en mennta-
málaráðherra tilnefnir formann og varafor-
„Stefán
sveit
fyrir
austan“
„Um starfið sóttu nokkrir karlar og ein
kona. Ráðningin var mjög vel undirbúin,
fyrir tveimur árum mótuðu Skaftafells-
nefnd og Náttúruverndarráð starfslýs-
ingu fyrir væntanlegan þjóðgarðsvörð“,
sagði Elín Pálmadóttir, varaformaður
Náttúruverndarráðs. „Enginn maður
hefði getað uppfyllt öll skilyrðin, svo
mikið er víst. I starfinu felst m.a. fram-
kvæmdastjórn og stjórn á fólki auk þess
sem þjóðgarðsvörður er fulltrúi Náttúru-
verndarráðs á Suðausturlandi. Þar af
leiðandi skiptir miklu að viðkomandi
kunni að umgangast fólk“.
Elín kvað Skaftafellsnefnd hafa rætt ít-
arlega við alla umsækjendur og m.a.
gengið úr skugga um að þeir myndu búa
fyrir austan fengju þeir starfið. „Nefndin
mælti síðan með Stefáni, enda er hann
öllum hnútum kunnugur á þessum slóð-
um. Hann er ákaflega vel kynntur í sveit-
inni, var þarna í sveit, og þekkir aðstæður
og lífríki út í ystu æsar. Austfirðingar hafa
enda látið Stefán teikna flest mannvirki
fyrir sig.“
„Kjarni málsins er“, sagði Elín Pálma-
dóttir, „að Sigrún hefur unnið þarna fyrir
austan og á skrifstofu Náttúruverndar-
ráðs í mörg ár. Samt fékk hún ekkert
atkvæði í Náttúruverndarráði. Það hefur
ekki nokkurn skapaðan hlut með kyn-
ferði að gera, en ekkert fær mig til að
úttala mig um hana persónulega“.
21