Þjóðlíf - 01.05.1988, Síða 28
ERLENT
sem stafaði af eiginmanninum og yfirfærðist
snarlega á hana.
Corazon Aquino hefur ekki átt sjö dagana
sæla frá því hún tók við. Menn skyldu líka
gæta að því að hún komst til valda vegna þess
að tveir voldugir Marcosarmenn, þeir Juan
Enrile og Fidel Ramos, sáu sér hag í því á
síðustu dögum Marcosar að söðla yfir. Aqu-
ino hefur þurft að gjalda dýru verði fyrir
aðstoð þess fyrrnefnda og Enrile hefur fyrir
æði löngu yfirgefið raðir Aquino og berst
gegn henni.
Pessi tvö ár sem hún hefur stjórnað hafa
einkennst af ólgu, mótmælaaðgerðum
Marcos-sinna, sem situr elliær og bitur í sinni
við pálmatrén á Hawaii og lætur valdagíruga
eiginkonu sína, Imöldu, ráðskast með sig.
Það er litlum efa bundið að mótmælaaðgerð-
ir Marcos-sinna eru ekki bara af hugsjón og
elsku til hins gamla einræðisseggs, heldur er
drjúgt fjármagn hans enn á Filippseyjum og
þar virðist mega kaupa alla og múta öllum.
Corazon Aquino hefur ekki reynst nægi-
lega skelegg — þó svo maður hafi einnig í
huga mikla erfiðleika hennar. Hún hefur
verið hikandi og óráðin og hik hennar hefur
oft kostað hana stuðningsmenn og byltinga-
tilraunirnar gegn henni eru orðnar æði marg-
ar. Það bætir heldur ekki úr skák, að hún
het'ur ekki þótt lagin að velja sér ráðgjafa
eftir að fór að síga á ógæfuhlið. Henni hefur
hætt til að velja sér já-menn til liðsinnis og
treystir sér ekki til að taka gagnrýni þeirra,
sem sjálfsagt vilja forsetanum vel á sinn hátt.
Enn hefur það svo aukið á flækjuna, að vara-
forseti hennar Salvador Laurel snerist gegn
henni og var þá snimmhendis látinn víkja. Sá
hefur nú gert bandalag við Enrile og ekki séð
fyrir endann á því, hvernig Corazon muni
reiða af. Hún er óumdeilanlega vinsæl meðal
almennings, en í þessum löndum dregur hylli
hersins lengra.
Hasina Wajid, leiðtogi Awami-bandalags-
ins í Bangladesh er dóttir Mujiburs Rahm-
ans, sem margir nefna föður Bangladesh.
Faðir hennar sem hafði verið dáður stjórnar-
andstöðuleiðtogi meðan landið taldist vera
Austur Pakistan, tók við völdum eftir að
Indverjar höfðu barið á Vestur Pakistönum
og tryggt, að Banglar fengju sjálfstæði.
Mujibur þótti ekki snjall stjórnandi eftir
að hann komst í valdastöðu. Hann var ótví-
ræður hugsjónamaður, en vandamál Bangla-
desh verða ekki leyst með orðagjálfri né
skrúðmælgi og Mujibur var ekki lagið að
hrífa menn með sér til verka, eftir að hann
var orðinn forsætisráðherra og síðar skipaði
hann raunar sjálfan sig forseta.
Það er engin ástæða til að draga góðan hug
hans í efa, en framkvæmdir urðu orðum
færri. Loks réðst herinn inn á heimili hans í
Dhaka 1975 og myrti hann, konu hans, þrjá
syni, tengdadætur og önnur skyldmenni sem
voru í húsinu. Hasina Wajid var þá í Vestur-
Þýskalandi með eiginmanni sínum. Hún
fékk ekki leyfi til að snúa heim fyrr en nokkr-
Indira Gandhi: stórmerkilegur stjórn-
málaforingi sem hafði tögl og hagldir í
næstfjölmennasta ríki veraldar.
um árum síðar, en fljótlega eftir heimkomu
hennar, tóku fyrrverandi samstarfsmenn
föður hennar að beina þeim tilmælum til
hennar að hún tæki upp baráttuna og byggði
Awamiflokk föður síns upp að nýju.
Hasina virðist hafa verið fús til þessa og
það blandast engum hugur um að hlýtt er á
málflutning hennar og hún nýtur verulegra
vinsælda í Bangladesh. Á hinn bóginn er
málefnaskrá hennar rýr og henni hættir til að
hafa uppi svona álíka orðskrúð og Mujibur
sáluga föður hennar. Það leysir ekki neinn
vanda að krefjast þess einhliða að óvinsæll
forseti, Mohammed Ershad, fari frá völdum,
ef ekki er eitthvað staðbetra og pottþéttara
sem við tekur. En hvað sem því líður nýtur
Hasina verulegs trausts. Sumir segja að átök-
in innan Awami hafi verið slík, að hún hafi
verið málamiðlunarforingi og aðrir ráði bak
við tjöldin. Sé svo er henni að minnsta kosti
leyft að láta líta út fyrir að hún sé foringinn
og ég hygg að hún trúi því alveg sjálf.
Upp á síðkastið hefur Khalidu Zia, leið-
toga Þjóðarflokksins, hins vegar vaxið veru-
lega ásmegin hvað varðar fylgisaukningu.
Hún er málefnalegri og skilmerkilegri að
margra dómi og hún hefur ekki verið jafn
reikul og tilfinningaþrungin í yfirlýsingum
sínum. Hún naut án efa í upphafi eiginmanns
síns, Ziaur Rahman, sem er að líkindum
merkasti stjórnmálamaður Bangladesh þessi
17 sjálfstæðisár. Hann kom á umbótum sem
menn bjuggu þar lengi að og sumir hafa orð-
að það svo að hann stjórnaði með höfðinu en
ekki hjartanu. Það er ekki sjálfgefið að slíkt
sé kostur í Bangladesh. Ziaur var myrtur í
borginni Chittagong vorið 1981.
Khalida er ekki jafnmikill málamyndafor-
ystumaður og Hasina. Sú síðarnefnda nýtur
meiri alþýðuhylli að því er virðist. En al-
þýðuhyllin hrekkur ekki nema skammt,
hvort sem er í Bangladesh eða á Filippseyj-
um. Þar hefur sá síðasta orðið sem mestum
og bestum tökum nær á hernum. Því er nú
verr og miður. En ætti maður að leyfa sér að
spá hlýt ég að vona að Khalida Zia verði
hlutskarpari en Hasina komi sú staða upp.
Það er altént mat mitt eftir að hafa hitt báðar
konurnar, lesið hvað þær hafa haft að segja
hin seinni ár og hlýtt á landa þeirra tjá sig.
Benazir Bhutto er miklu þekktari á Vest-
urlöndum en þær tvær konur sem ég hef
nefnt hér frá Bangladesh. Benazir nýtur föð-
ur síns, Zulifikars Ali Bhutto, sem var stjórn-
andi í Pakistan um langa hríð. Um hann má
segja nokkuð svipað og Mujibur Rahman í
Bangladesh. Hann hóf feril sinn eins og fleiri
til að-byrja með sem eldheitur hugsjónamað-
ur, komst til metorða og valda. Af ýmsu má
ráða, að sætleiki valdsins hafi villt honum
sjónir og svo fór að andstæðingar hans sök-
uðu hann ekki aðeins um spillingu og vald-
níðslu heldur og um að hafa skipulagt morð á
pólitískum andstæðingum sínum.
Þegar núverandi forseti, Zia ul Haq tók
við og ákvað að draga Bhutto fyrir dómstól,
brutust víða út mótmæli í Pakistan. Mesta
pólitíska skyssa sem Zia gerði var þó án efa
að láta fullnægja dauðadómi sem var kveð-
inn upp yfir honum. Með því varð Bhutto
píslarvottur í hugum milljóna landa sinna.
Eftir að Bhutto var handtekinn var ekkja
hans um hríð líklegur eftirmaður hans, en
það varð svo Benazir dóttir hans sem tók við
ppp-flokki föður síns. I fyrstu stjórnaði hún
flokknum erlendis frá, en fékk að snúa heim
1985. Henni var fagnað ákaft og hvar sem
hún fór um landið safnaðist að henni múgur
og margmenni sem hyllti hana. Eftir öllum
sólarmerkjum að dæma virtist tímaspursmál
hvenær Zia forseti neyddist til að láta undan
kröfu hennar og efna til kosninga. Fylgi
hennar hefur snarminnkað síðustu mánuði
og hún hefur ekki tréi við forsetann.
En það gildir eitthvað svipað um málflutn-
ing þessara tveggja dætra látinna píslarvotta,
Hasinu og Benazir. Þegar á líður kemur í ljós
að umbúðirnar eru kannski öllu meiri en
innihald orða þeirra. Það fer að bóla á efa-
semdum um hvort þessar konur séu í reynd
hæfar til forystu og hvort þær njóti stuðnings
út á uppruna en ekki eigin verðleika.
Jóhanna Kristjónsdóttir
Jóhanna Kristjónsdóttir blaðamaður
hefur hitt flestar þeirra kvenna sem
hún fjallar um í grein sinni. Jóhanna var
t.d. nýlega á ferð í Bangladesh þar sem
hún hitti að máli báðar konurnar sem
eru leiðtogar stjórnarandstöðunnar.
28