Þjóðlíf - 01.05.1988, Síða 30

Þjóðlíf - 01.05.1988, Síða 30
ERLENT Frakkland Le Pen með fylgi frá kommúnistum Jean-Marie Le Pen kom meira á óvart en nokkur annar frambjóðandi í fyrri umferð forsetakosninganna í Frakklandi. Þó Mitter- and og Chirac hafi orðið sigurvegarar fyrri umferðarinnar, þá er Le Pen stjarna kosn- inganna. Hann safnaði í kringum sig her hinna vonsviknu sem áöur og fyrr höfðu m.a. safnast í kringum Kommúnistaflokk Frakk- lands. Nýr pólitískur risi í Frakklandi — vin- ur litla mannsins með fasisku undirtónanna. Sigur Mitterands sunnudaginn S.maí í seinni umferð forsetakosninganna breytti engu þar um. í kosningunum 24. apríl fékk Le Pen 14.38% atkvæðanna, rúnrlega tveimur prós- entum minna en Raymond Barre og rúmlega 5% rninna en sjálfur „sigurvegarinn" Chirac. Þannig klauf hann upp fylgið á hægri vængn- um og skaut bæði samkeppnisflokkum og skoðanakönnunum ref fyrir rass. Ekki nóg með það, maðurinn sem var með 0.7% fylgi í forsetakosningunum 1974 náði í mikið fylgi á vinstri vængnum; í hefðbundnum héruðum, borgum og bæjarhlutum sósíalista og komm- únista. Frambjóðandi kommúnista, André Lajoinie hlaut reyndar minna fylgi en nokkru sinni frá því 1932 eða 6,76%. Víða náði Le Pen mestu fylgi frambjóð- enda. Marseilles, borgin sem áður var and- dyri nýlenduheimsveldis Frakka, næst- stærsta borg Frakklands, næst stærsta hafn- arborg í Evrópu er nú orðin liáborg Le Pens. Þar fékk foringi Þjóðarfylkingarinnar Front national, 28% atkvæðanna, meira fylgi en Mitterand forseti. Árangur Þjóðfylkingarinnar olli miklum usla. Úrslitunum var líkt við pólitískan jarð- skjálfta og „pólitískt Tsjérnobil". Hvað gerðist? Hefur stórveldið Frakkland alið upp 4,4 milljónir fasista og rasista á síðustu árum? Er franska þjóðfélagið, sem margir þjóðfé- lagsfræðingar telja það íhaldssamasta í Evrópu, að leysast upp pólitískt með harð- vítugum andstæðum blokkum ? Nei ekkert hefur breyst að þessu leytinu til segja fréttaskýrendur. Þá eiga þeir við að um 25% kjörfylgis hafi í 40 ár heyrt til svokallaðs mótmælendafylgis, sem vilji senda pótentát- um í fílabeinsturnum valdsins atkvæðaseðla sína til umhugsunar, litli maðurinn eigi ekki marga aðra möguleika en einmitt þennan. Áður og fyrr mun hinn fyrrum voldugi Kommúnistaflokkur Frakklands hafa safnað þessu „óánægjufylgi" saman. Meðan allt lék í lyndi fékk sá flokkur mest tæplega 29% atkvæða árið 1946. í fátækrahverfum og hefðbundnum verka- mannahverfum stórborganna bauð komm- únistaflokkurinn upp á eins konar andmenn- ingu með tilheyrandi hjartahlýju, barna- heimilum, íþróttafélögum, verkalýðsfélög- um og flokksdeildum. Síðar tókst Mitterand og félögum að splæsa saman í stóran flokk um lýðræðislegan sósíalisma með þeim af- leiðingum að stórveldi Kommúnista Frakk- lands hrundi saman; fylgjendur flokksins höfðu ekki nema að litlum hluta verið hug- myndafræðilegir samferðamenn kommún- ista. Kosningaúrslitin nú sýna í héraði eftir hér- að, að óánægðir kjósendur hafa horfið frá stuðningi við Kommúnistaflokk Frakklands yfir til Þjóðfylkingar Le Pens. Af þessari ástæðu telja margir fréttaskýrendur að ekki sé hægt einhliða að stimpla árangur Þjóð- fylkingarinnar sem stuðning kjósenda við hægri öfgaöfl, þrátt fyrir útlendingahatur Le Pens, þrátt fyrir stuðning hans við dauða- refsingu, þrátt fyrir kröfur hans um lög og reglu og alla þjóðrembuna. Blaðamaðurinn Anne Tristan skýrir fylgið á grundvelli andúðar fólks á því sem er að gerast; vegna húsnæðisneyðar. atvinnuleys- is, ótta við hryðjuverkamenn, og vegna þeirrar „tilfinnangar að í tölvuþjóðfélaginu sé ekkert pláss fyrir mann" hafi þeir sérstak- lega sem flosnað hafa upp í þjóðfélagsum- róti, hópast um Þjóðfylkingu Le Pens. Anne Tristan telst séfræðingur um Þjóð- fylkinguna. Hún fór að dæmi hins nafntog- aða blaðamanns, Gunters Walraffs og lét skrá sig undir fölsku nafni í starf á vegum Front national í fátækrahverfi í norðurhluta Marseilles, þar sem hún kynntist undirheim- um hreyfingarinnar í fimm mánuði. „Mér fannst þetta pólitískt fráhrindandi en mann- eskjulega var ég djúpt snortin. Þjóðfylkingin kemur þarna í stað samhjálpar hins opin- bera, trúar og pólitíkur", segir Anne Trist- an. í þessu ljósi kann Islendingum að þykja forvitnilegri sú blanda mannelsku, trúar og pólitíkur, sem sást móta fyrir í kringum Borgaraflokkinn fyrir kosningarnar í fyrra — eitthvað skylt því sem hefur verið að ger- ast í Frakklandi? Gömlu flokkunum í Frans sást yfir að orð- Le Pen: Marseilles hefur játað mér ást sína. hákurinn Le Pen reið sitt pólitíska net mark- visst á þessum grundvelli. og tókst sérstak- lega vel upp þar sem hægt var að umsnúa lífsótta og félagslegri neyð í útlendingahatur. Talið er að um 5 milljónir innflytjenda búi í Frakklandi. Þeir búa flestir í „gettóum", sérbýlum og oft í mestri neyð. Margir hafa komið „ólöglega" inn í landið. Hægri öfga- menn hafa sérstaklega haft horn í síðu hinna síðbornu, - um 900 þúsund Araba af annarri kynslóð sem er uppfull sjálfstrausts. Hroðafréttir um innflytjendur koma fram í ræðum þjóðfylkingarmanna og kynda undir þeirri skoðun að Frakklandi sé ógnað af þeim. Þannig hampa þeir þjóðsögum t.d. um gífurlegan félagsstyrk ríkisins við Afríku- mann sem eigi þrjár eiginkonur og yfir 20 börn. „Maseilles hefur játað mér ást sína", sagði Le Pen hlakkandi, en þar í borg búa um 150 þúsund „framandi menn" aðallega frá Norð- ur-Afríku, en þar býr einnig mikill fjöldi Al- sírfrakka, sem enn hafa ekki komist yfir eða sætt sig við að Frakkland hafi tapað nýlendu sinni árið 1962. Bæði Chirac og Mitterand reyndu að biðla til fylgjenda Le Pens þrátt fyrir allt, enda gat forsetatignin oltið á því fylgi. Meir að segja Mitterand: „Það þarf að draga úr fjölda innflytjendanna, — auðvitað!". Og þannig hafði Frakkland áttað sig á að með seinni umferð kosninganna er „le phen- oméne Le Pen". „vinur litla mannsins", fjarri því að vera úr sögunni. Byggt á Spiegel/Óskar Guðmundsson 30
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82

x

Þjóðlíf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.