Þjóðlíf - 01.05.1988, Qupperneq 31
ERLENT
Fæðast
feimin
Samkvæmt rannsókn nokkurra vísinda-
manna við Yale og Harvardháskóla bendir
margt til þess að börn sem bregðast við
umhverfinu með meiri hræðslu og eru feimn-
ari en jafnaldrar þeirra, búi yfir þessum eigin-
leikum þegar við fæðingu. Rannsakendur
könnuðu börn fra tveggja ára aldri til sjö ára.
Um 10% barnanna brugðust við óvenjuleg-
um aðstæðum með harkalegri og hræðslu-
kenndari hætti en óhræddir leikfélagar
þeirra. Hjartsláttur þeirra er örari meir að
segja í svefni, vöðvaspennan meiri og líkami
þeirra svarar áreiti með vaxandi framleiðslu
á streituhormón, „norepinephrin“. Það er
hald bandarísku vísindamannanna að með
þessum niðurstöðum sé sýnt fram á að
feimni frá fæðingu hafi lífefnafræðilegar
forsendur, sem leiði til meiri innilokunar og
útilokunar þessara barna. En til að afleiðing-
arnar verði svo alvarlegar þurfi stöðug
streita og áreiti að koma til...
Eyðni-vírusinn æ ógnvænlegri
Vísindamenn við Kaliforníuháskóla og Yale-
háskólann hafa uppgötvað, að Eyðnivírus-
inn verði stöðugt skaðvænlegri í líkama
sjúklingsins en breytist ekki að sama skapi í
þeim sem ekki verða veikir þrátt fyrir sýk-
ingu.
Hópur vísindamanna tók blóðprufur á
fjögurra ára tímabili úr hópi eyðni-smitaðra
manna, einangraði vírusinn og kannaði
breytingar á tímabilinu. Vírus úr manni sem
sýndi engin einkenni sjúkdómsins þrátt fyrir
smit var í lok rannsóknartímabilsins jafn
hættulegur og í byrjun.
Öðru máli gegndi um vírusinn í blóði
manna sem veiktust af eyðni á tímabilinu
(eða dóu á þessum tíma). Vírusinn tók ógn-
vænlegum breytingum; og varð þannig fær-
ari um að vinna gegn fleiri sellum en í upp-
hafi. Vírus, sem tekinn var úr sjúklingi tveim-
ur mánuðum fyrir dauða hans, gat unnið á
fjórum mismunandi frumusellum og fjölgað
sér gífurlega hratt. Átta mánuðum áður voru
vírusar úr sama sjúklingi nægilega hættu-
legir til að vinna á þremur sellum, en í upp-
hafi rannsóknartímabilsins áður en maður-
inn sýndi einkenni, gat vírus úr blóði hans
aðeins unnið á einni sellugerð.
Bandarísku vísindamennirnir draga marg-
ir hverjir þá ályktun af niðurstöðum þessarar
rannsóknar að eyðni-veiran búi yfir geni sem
stjórni hæfni veirunnar og þar með hversu
hættuleg hún er. Þetta gen gæti um síðir
reynst lykillinn að því að vinna gegn vírusn-
um....
Feimið barn í kjöltu móður.
PIZZA
BIGGA BAR
Líttu inn — eða
hringdu og
pantaðu.
Við höfum yfir 100
tegundir af pizzum og
getum gert fleiri ef þú vilt.
Veldu þína eigin pizzu — þú
átt það skilið.
BIGGA BAR
Tryggvagötu 18 (við
Akraborgarplanið).
Sími 28060.