Þjóðlíf - 01.05.1988, Side 38

Þjóðlíf - 01.05.1988, Side 38
MENNING hugsunar á hvaða tíma sem er. Þarna höfum við fólk sem hefur gefist upp á hlutverki sínu, í þessu tilviki uppeldishlutvekinu. Vopnin snúast í höndum þess og forsjáin verður að valdbeitingu. Bjargsmálið vakti fólk vissulega til um- hugsunar um misbeitingu valds þegar það kom upp árið 1965. Þá var það færeysk stúlka sem sakaði umsjónarkonur skólaheimilis Hjálpræðishersins og eina lögreglukonu um kynferðislega áreitni. Hún taldi sig einnig hafa verið beitta trúarlegri kúgun á heimil- inu. Umsjónarkonurnar hefðu með hjálp einnar lögreglukonu neytt hana til að af- klæðast og legjast á hnén og ákalla Jesúm. Þegar hún neitaði hafi lögreglukonan hótað að kalla á tvo karltyns og þurfandi lögreglu- þjóna. Þetta mun hafa verið í fyrsta sinn sem lögreglan þurfti að yfirheyra sjálfa sig — og ekki í það síðasta, eins og þeir vita sem fylgst hafa með fréttum síðustu mánuði. Nýársleikrit Sjónvarpsins árið 1987, „Líf til einhvers" eftir Nínu Björk Árnadóttur í leikstjórn Kristínar, vakti einmitt athygli fyrir opinskáa umfjöllun um hinar ýmsu meinlokur sem geta birst innan einnar fjöl- skyldu. Ýmsum þótti myndin — og þó sér- staklega tónlist Hilmars Arnar Hilmarssonar — erótísk. Einhverjir töluðu meiraðsegja um siðlaust klám. „Ég hef aldrei skilið þessa ádeilu á erótík í Lífi til einhvers," segir Kristín. „Ég minnist viðtals við unga skáldkonu fyrir síðustu jól. Þar sagði hún að samband mannsins við guð væri alltaf erótískt. Mér finnst þetta varpa miklu ljósi á samband mannsins við trú og við ákveðinn guðdóm. í Glerbrotum skín þessi afstaða í gegn. Stúlkan lendir inná upp- eldisstofnun þar sem ákveðin trúarvakning er höfð að leiðarljósi. Hún rekur sig brátt á þyrna trúarinnar og uppgötvar sér til hrell- ingar að oft er stutt á milli ofsa og trúar. 36

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.