Þjóðlíf - 01.05.1988, Síða 40

Þjóðlíf - 01.05.1988, Síða 40
MENNING Skák Meistararnir gömlu fara á kostum Gluggað í 350 ára gamla skák og rennt yfir „Skákina sígrænu" og „Skákina ódauðlegu" Skákdálkar Þjóðlífs voru í síðustu töluhlöð- um lagðir undir tölvuskák og frásagnir af baráttu rafeindaþursa um Þjóðlífsmeistara- titil. Efni skákþáttarins að þessu sinni er ekki sótt til neinna róbóta: við skoðum einhver jar frumlegustu og fegurstu skákir sem nokkru sinni hafa verið tefldar. Skákin er eins og tónlist og myndlist að því leyti að hún þekkir engin landamæri: góð skák er skoðuð af jafn nrikilli ánægju hvar sem er í heiminum. A sama hátt er skákin hafin yfir tíma, sem oft leikur listir hvers- dagsins grátt, og þess vegna er okkur kleift að tefla upp á nýtt skákir eftir meistara sög- unnar. Skáksagan er í raun stutt. nær ekki nema aftur á sjöttu öld eða svo. Það var þá sent einhvejir tveir Indverjar settust fyrst að tafli. Síðan þá hefur skákin tekið nokkrum breyt- ingum og í núverandi horf var hún konrin á 16. öld. Við þekkjum ekki meistara þeirra tíma, í öllu falli er ekkert varðveitt eftir þá. En árið 1600 fæddist á Ítalíu Giaohino Greco, fyrsti skákmeistarinn sem einhverjar sögur fara af. Hann ferðaðist víðsvegar um Evrópu og tefldi við flesta meistara sinnar tíðar og sigraði undantekningalaust. Taflmennska var þá með nokkuð öðrum hætti en nú, lítið var lagt upp úr því að byggja upp stöðu í rólegheitum og koma mönnun- um í vígstöðu áður en ráðist var til atlögu. Þvert á móti var hálft liðið oft ónotað: en fáeinir vesalingar héldu uppi hernaðarað- gerðunt. Skákin var sem sagt óþroskuð og óspillt —nú er búið að rannsaka nánast hverja byrjun út í ystu æsar og oft helsti lítið orðið aflögu fyrir sköpunargáfuna. Greco efnaðist bærilega af taflmennsk- unni, enda skörtuðu þá flestar hirðir skák- mönnum, rétt eins og trúðum og stjörnu- spekingum. Lítum nú á skák sem tefld var á Italíu fyrir 353 árum. Hvítt: N.N. Svart: G. Greco 1. e4 e5 2. f4 f5 3. exf5 Dh4+ 4. g3 De7 5. Dh5+ Kd8 6. fxe5 Dxe5+ 7. Be2 Rf6 8. Df3 d5 9. g4 h510. h3 hxg411. hxg4 Hxhl 12. Dxhl Dg3+ 13. Kdl Rxg4 14. Dxd5+ Bd7 15. Rf3 Rf2+ 16. Kel Rd3+ 17. Kdl Del+ 18. Rxel Rf2 mát. Burtséð frá laglegri taflmennsku er skákin athyglisverð fyrir það að allir mennirnir á drottningarvæng standa á upphafsreitum: á kóngsvæng er hins vegar umhorfs eins og eftir sprengjuárás. Menn fóru ekki að tala um heimsmeistara í skák fyrr en á sfðari hluta 19. aldar. Þá ákváðu þeir Wilhelm Steinitz (1836-1900) og Johann Hermann Zukertort (1842-1888) að heyja einvígi — sá sem sigraði skyldi kallast sterkasti skákmaður heims. Steinitz vann og TRVGdNG ÞAÐ VAR ORÐIÐ TRTGGING HF LAUGAVEG1178 SIMI621110 38
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82

x

Þjóðlíf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.