Þjóðlíf - 01.05.1988, Qupperneq 48

Þjóðlíf - 01.05.1988, Qupperneq 48
MENNING Og um forgengileg gögn í bókmenntasögunni — brunnin bréf Jóhanns Jónssonar „Himneski frelsari minn, Jesús Kristur, blessaðu alla, sem mér hafa verið góðir og taktu mig í þinn blessaða náðarfaðm“. Þessi voru andlátsorð Steinunnar Kristjánsdóttur sem lést 27.febrúar 1944 í Ólafsvíkurkoti. Konan var móðir Jóhanns Jónssonar skálds. Steinunn Kristjánsdóttir fæddist í Ytra Skógarnesi í Miklaholtshreppi 4. júlí 1869, dóttir hjónanna Kristjáns Gíslasonar bónda í Skógarnesi og Jóhönnu Gísladóttur. Stein- unn gerðist á unga aldri vinnukona á Snæ- fellsnesi og um þrítugsaldur var hún í vinnu- mennsku á Borgarholti, hjá Pétri Þórðarsyni bónda þar og konu hans Þóru Þórarinsdótt- ur, systur séra Árna á Stóra-Hrauni. Sú var árátta Þóru, að troða fólki í hjónaband, „til þessa sparaði hún hvorki mælsku né kænsku", segir Þorbjörg Guðmundsdóttir Ijósmóðir í ævisögu sinni, en þaðan er fróð- leikur í þessa grein tekinn. Þorbjörg var syst- urdóttir Steinunnar og samferðarmaður hennar löngum. Ævisaga hennar, Sól af lofti líður.., sem Halldór Pjetursson skráði, kom út1973. Samtímis Steinunni í vinnumennsku á Borgarholti var þar fullorðinn maður. Jón Þorsteinsson ekkjumaður 30 árum eldri en Steinunn og hafði átt tvær dætur í hjóna- bandi sínu. Er ekki að orðlengja það, að Þóru tekst að koma þeim Jóni og Steinunni í tilhugalíf. Ástarsamband þetta var ekki björgulegt. Jón var óreglumaður mikill, í skuld við sína sveit þannig að þau Steinunn gátu ekki gifst, nema hann greiddi þá skuld niður. Jón var sagður greindur vel, dulur í skapi, duglegur þegar þannig stóð á og eftirsóttur í vinnu, en hallur undir brennivín úr öllu hófi. Steinunn Vinirnir Jóhann Jónsson og Halldór Laxness. varð barnshafandi en barnið dó skömmu eft- ir fæðingu foreldrum þess til mikillar sorgar. Ekki skildu þau að skiptum, Jón og Stein- unn, en það fært í frásögu, að Steinunn átti forláta saumavél, sem í þann tíð var kjörgrip- ur og yfirleitt einungis í eigu efnaðri heimila. Þennan grip seldi Steinunn til að geta greitt sveitarskuld Jóns og þannig gifst ástmanni sínum. Næst voru þau hjá sr. Eiríki Briem i vinnu- mennsku á Staðastað, þar sem Jóhann Jóns- son fæddist. Upp úr því voru þau í lausa- mennsku víðar um Snæfellsnes, flýjandi und- an fátæktinni og óreglu Jóns. Þau fluttust til Ólafsvíkur, þar sem Jón komst í fasta vinnu hjá Einari Markússyni, föður Maríu Markan og dró verulega úr drykkjuskapnum. Til viðbótar eignuðust þau hjónin börnin Sigurð. Guðlaugu. Dýr- unni og Sigríði. Þau tvö fyrrnefndu dóu ung en stúlkurnar tvær lifðu. Þegar hér var komið sögu var Jón orðinn all fullorðinn og farinn að heilsu. Síðustu árin var hann ósjálfbjarga en Steinunn ann- aðist hann af mikilli natni og fórnfýsi. Jó- hann sonur þeirra var þá kominn suður til Reykjavíkur. Þau bjuggu í hreysi, sem kallað var Rimabær. Eftir lát Jóns voru dæturnar í kotinu teknar í fóstur, Sigríður til hálfsystur sinnar af fyrra hjónabandi Jóns, en Dýrunn af Steingrími Jónssyni rafmagnsveitustjóra. Steinunn Kristjánsdóttir hafði ekki skilið við armæðuna; hún þurfti að leita eftir fram- færslustyrk og þola þá niðurlægingu fátæks fólks fyrr og síðar sem sárast svíður undan. Síðar lenti hún nokkur ár í lausamennsku og loks sem eins konar ráðskona hjá Kristjáni Þórðarsyni frá Rauðkollsstöðum, og bjuggu þau þar sem hét Ólafsvíkurkot. í þessu koti bjuggu þau við sæmilegt atlæti í rúmlega 15 ár. þar til Steinunn dó. Á þessu tímabili hitti Halldór Laxness þessa konu eins og síðar segir frá. Síðustu árin var hún heilsutæp og leið miklar kvalir síðustu mán- uðina. Þorbjörg frænka hennar sat löngum yfir henni og var hjá henni á banabeði og nam andlátsorð hennar þau, sem þessi grein byrjaði á. Það sem nútímamenn vita um ævi Jóhanns Jónssonar er ekki svo ítarlegt, utan náttúr- lega lýsingar Halldórs Laxness og um bernsku hans nánast ekkert nema að hann hafi verið uppfæddur í „öreigð og þjóðfélags- legu umkomuleysi" í einu mesta fátæktar- Pasturslítil kona -móðir skáldsins 46
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.