Þjóðlíf - 01.05.1988, Side 63

Þjóðlíf - 01.05.1988, Side 63
HEILBRIGÐISMÁL Hákarlalýsi gegn krabbameini Umfangsmiklar sænskar rannsóknir og nið- urstaða gamals Austfirðings renna stoðum undir notagildi hákarlalýsis í baráttunni gegn krabbameini. „Hákarlalýsi er selt víða erlendis sem nátt- úrumeðal og ýmsir aðilar hafa rannsakað hvernig það dugar gegn krabbameini. Það læknar alls ekki krabbamein, en það virðist hjálpa ónæmiskerfinu. Batahorfur sjúklinga sem nota lýsið fyrir og eftir geislameðferð eru meiri en annarra og þeir eru fljótari að ná sér. Við höfum verið að skoða þessi mál og eigum dálítið af hákarlalýsi en óhreinsað er það hins vegar ekki hæft til manneldis og enn sem komið er eigum við ekki þann tækjabún- að sem þarf. Lýsið inniheldur meira af víta- mínum en ráðlegt er að neyta og því m.a. er nauðsynlegt að hreinsa það“, sagði Baldur Hjaltason, efnafræðingur hjá Lýsi hf í samtali við Þjóðlíf um notagildi hákarlalýsis í barátt- unni gegn krabbameini. Að sögn Baldurs er það sérstaklega lýsi úr Grænlandshákarli sem þykir gefa góða raun og auka fram- leiðslu hvítra blóðkorna. Ævar Jóhannsson, félagi í Heilsuhringn- um, hefur kynnt sér sænskar rannsóknir á hákarlalýsi sem staðið hafa á fjórða áratug. Megin niðurstöður þeirra eru að lýsið dragi úr óheppilegum áhrifum geislameðferðar á heilbrigða vefi í kringum krabbameinsæxlið og einnig virðist það efla ónæmiskerfið. Sænskir læknar sem tóku þátt í rannsóknun- um kváðu áríðandi að gefa hákarlalýsið í nokkurn tíma áður en geislameðferðin hefst og halda því lengi áfram eigi árangur að nást. Hákarlalýsið hefur til þessa einkum verið notað gegn krabbameini í móðurlífi og nið- urstöður Svíanna gefa góð fyrirheit. Lang- tímaathugun sýndi að tæplega helmingur kvennanna sem fengu lýsið lifðu fimm árum lengur en aðrar sem ekki notuðu það. Enn er margt á huldu um eiginleika lýsis- ins en auk Svía hafa Japanir, Sovétmenn og fleiri rannsakað það. Þeirri skoðun vex nú víða fiskur um hrygg að mataræði hafi meiri áhrif á ýmsa sjúkdóma en áður var talið. Þannig gaf bandaríska Krabbameinsfélagið út bók ekki alls fyrir löngu um mataræði og krabbamein og niðurstöðurnar þar eru í þá veru að stóran hluta krabbameins megi rekja til óheppilegs mataræðis. Ævar Jóhannsson hefur rifjað upp að fyrir mörgum árum sagði gamall Austfirðingur frá því í viðtali að hann hefði farið í gegnum kirkjubækur í Múlasýslum og kannað dánar- mein fólks yfir Iangan tíma. Af þeim mátti ráða, að hans sögn, að í sjávarplássum þar sem hákarl var áður fyrr mikið notaður til matar var krabbamein óþekkt. Inn til sveita hins vegar, þar sem hákarl var lítið á borð- um, var krabbamein þegar um áramótin al- geng dánarorsök. „Hann dró þá ályktun af þessu að í hákarli væri eitthvert efni sem hindraði krabbamein“, segir Ævar. „Þetta var vitanlega ekki vísindaleg könnun en gef- ur samt athyglisverðar vísbendingar. Það þarf að rannsaka þetta mál, áður en hægt er að slá einhverju föstu, og í þessu tilviki væri það tímafrekt verkefni en mjög áhugavert“. Ofl SAMVINNA GERIR GÆFUMUNINN Ef þú þarft að vinna mikið við Ijósritun bygg- ist árangurinn ágóðri samvinnuvið Ijósritunarvélina þina. Er nokkuð sem þreytir þig meir en tíðar bilanir og löng bið eftir viðgerðarmanni? Með Nashua Ijósritunarvél erþessum áhyggjum af þér létt. Lág bilanatíðni Nashua og fljótog örugg viðgerðar- þjónusta Optima gerir gæfumuninn. U SuðurlandsbrautlO - Simi84900 61

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.