Þjóðlíf - 01.05.1988, Qupperneq 73

Þjóðlíf - 01.05.1988, Qupperneq 73
UPPELDI börn. Segjum að eitthvert eitur í andrúms- loftinu eða hangikjötinu valdi því að flestallir íslendingar verði ófrjóir og hætti að eignast börn. Myndi það snerta þennan mann á ein- hvern hátt? Vissulega. Þegar hann væri orð- inn gamall væru flestir komnir yfir miðjan aldur. Það væri lítið um lækna með nýjustu kunnáttu sem líkleg væri til að lengja í hon- um líftóruna. Sennilega væri allt efnahagslíf þjóðarinnar í kaldakolum, þannig að hafi maðurinn okkar áður verið auðugur er frem- ur líklegt að nú sé harðara í ári hjá honum, sé hann þá ekki kominn á vergang. Sem sagt, það eitt hvort það 'fæðast börn eða ekki skiptir mig reyndar heilmiklu máli. Þetta vekur óneitanlega grunsemdir um að ann- arra manna krakkar komi jafnvel slíkum manni við. Hugsum okkur nú að það fæðist börn eins og áður. Varðar það kunningja okkar eitt- hvað hvernig þau eru? Já, reyndar. Ef upp- eldi þeirra misferst víða, þá kann svo að fara að einhver skeri sundur hjólbarðana á fína bílnum hans, brjóti stóru rúðurnar í glæsi- legu versluninni hans. Og þegar til lengri tíma er litið er skelfilegt að hugsa til þess hvers konar fólk hann neyðist til að ráða í vinnu: þjófótt, latt, sinnulaust, dópað, heilsulaust. Eða yngri keppinautarnir í við- skiptunum: ófyrirleitnir og prinsipplausir. Þó að sjóndeildarhringur hans sé þröngur eru þó fáeinir hlutir auk eigin persónu sem honum er ekki alveg sama um: til dæmis íþróttafélagið hans, um það er honum ekki alveg sama. Og hann getur ekki neitað því að sér sé raun að sjá það fyllast af tómum skríl og ekkert ærlegt yngra fólk sem vill nokkra ábyrgð á skipulagsmálunum. Ekki er það gott. Hvernig sem á málið er litið er talsvert í húfi fyrir manninn í uppeldismálum. Nú er það í rauninni svo að fæstir eru eins rislágir í hugsun og kunningi okkar. Það er hvorki skylt né rétt að gera ráð fyrir slíku fólki og ganga út frá sjónarmiðum þess. En við höf- um séð að það varðar hagsntuni jafnvel slíks fólks að uppeldismál séu í lagi. Hvað um eðlilegt barnlaust fólk? Við deil- um með okkur margvíslegum verðmætum sem ná út fyrir okkar eigin persónu. Engum eða nánast engum er alveg sama um hvernig .nannlíf og menning verða hér í þessu samfé- lagi í framtíðinni, jafnvel þótt við sjálf verð- um komin undir græna torfu. Við viljum að fólkið í landinu búi við almenna farsæld og komi vel fram hvert við annað og við aðra; við viljum að í landinu ríki réttlæti. Sumum er það mikið kappsmál að skáklíf haldi áram að blómstra, aðrir láta sig það ekki svo miklu varða. En við viljum öll — barnlausir sem aðrir — að mannlíf og menning blómstri með einhverjum hætti og haldi áfram að gera það líka þegar við erum dauð, þótt okkur greini eitthvað á um í hverju það ætti helst að felast og á hvaða hluti beri að leggja mesta áherslu. Eitt er þó ljóst: algert skilyrði þess að nokkur hlutur gangi svo ekki sé sagt blómstri er að uppeldismál almennt séu í góðu lagi, ekki bara hjá sumum heldur sem víðast. Því allt ólag eitrar útfrá sér eins og skemmd epli í kassa. S I stuttu máli þá eru það allra hagsmunir að uppeldi sé almennt gott. Þess vegna er upp- eldi ekkert einkamál foreldra og barna þeirra. Þetta breytir ekki þeirri almennu reglu að það séu foreldrar sem að jafnaði beri meginábyrgð á uppeldi barna sinna og beri stærsta kostnaðinn þar af. Það er án efa besti hátturinn enda býður náttúran okkur að hafa hann á. En það er engin sanngirni að ætla þeim alla ábyrgð og allan kostnað. Ef menn vilja setja þetta upp eins og hagfræði- legt dæmi eins og nú er mjög í tísku þá gæti það verið á þessa leið: það er ósk okkar flestra að pípulagningamenn eftir tuttugu ár verði almennt flinkir og heiðarlegir og vissu- lega þætti okkur ekki verra ef þeir væru glað- lyndir, tillitssamir, víðsýnir og fróðir. Það eru bersýnilega hagsmunir okkar að þetta séu þeir almennt, ekki bara okkar pfpulagn- ingamaður, því varhugavert er að reiða sig á einn mann. En dygðugu pípulagningamenn- irnir öðlast ekki dygðir sínar alveg af sjálfu sér. Það liggur umtalsverð vinna þarna að baki, vinna sem kannski hófst við getnað ef ekki fyrr, alla vega ekki seinna en við fæð- ingu. Er ekki sanngjarnt borgari góður, að þú takir einhvern þátt í kostnaðinum við þessa vinnu? (Greinin er að stofni til erindi sem höfundur flutti á ráðstefnu Fóstrufélags íslands í aprílmánuði). 71
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.