Þjóðlíf - 01.04.1989, Qupperneq 10

Þjóðlíf - 01.04.1989, Qupperneq 10
INNLENT lög. í bréfinu til ríkissaksóknara fer hann fram á að Hallur verði dæmdur til refsingar, fangelsis til allt að þriggja ára og greiðslu miskabóta og lögfræðikostnaðar. Að auki er þess krafist að ummæli Halls verði dæmd dauð og ómerk. Að lokinni lögreglurannsókn ákvað ríkis- saksóknari að fara að ósk Guðmundar, lög- manns séra Þóris, og ákæra Hall. Ákæran var tekin fyrir í sakadómi Reykjavíkur 8. febrúar sl. Að undangenginni lögregluyfir- heyrslu ákvað ríkissaksóknari hins vegar að höfða ekki mál á hendur ritstjórn Tímans vegna birtingar á grein Halls. Virðist hann þar hafa tekið mið af 72. grein stjórnarskrár- innar sem kveður á um prentfrelsi. Verjandi Halls, Ragnar Aðalstcinsson, krafðist að málinu yrði vísað frá þegar við þingfestingu málsins. Taldi hann ómöglegt að koma við vörnum með skynsamlegum hætti þar sem ákæruatriðin væru svo óglögg, t.d. ummæli Halls um séra Þóri sem frímúr- ara. Ennfremur tilgreindi hann að að séra Þórir teldist ekki opinber starfsmaður í skiln- ingi 108. grein hegningarlaganna. í kjölfar þessa ákvað dómarinn að fresta dómsrann- sókn á málinu og gefa ríkissaksóknara kost á að tjá sig um frávísunarkröfuna. Frávísun hafnað Málið var á ný tekið fyrir 21. febrúar sl. og hafði þá ríkissaksóknari mótmælt frávísun- arkröfu Ragnars. Niðurstaða dómarans í málinu, Sverris Einarssonar, íþesum ágrein- ingi varð sú að varðandi túlkun hugtaksins „opinber starfsmaður“ myndi dómurinn taka afstöðu til þess við efnislega meðferð málsins, en hvað varðaði erfiðleika Ragnars við að koma vörnum við, taldi hann að sak- argiftirnar væru nægilega glöggar til að leggja mætti á þær efnisdóm, annaðhvort um sekt eða sýknu. Og með þessu var frávísun- artillögu Ragnars Aðalsteinssonar hafnað og málið tekið til dómsrannsóknar. Ákæra ríkissaksóknara hefur vakið harka- leg viðbrögð, og telja margir að hún feli í sér stefnubreytingu hjá ákæruvaldinu og að með henni sé gerð atlaga að ritfrelsinu í landinu. Blaðamannafélagið og Rithöfundasam- bandið hafa ályktað um málið og gagnrýnt málsmeðferðina. „Vörum við hættunni á rit- skoðun“, segir Lúðvík Geirsson, formaður Blaðamannafélagsins, í samtali við Þjóðlíf og í svipaðan streng tekur formaður Rithöf- undasantbandsins, Einar Kárason: „Ég tel embætti ríkissaksóknara vera komið inn á mjög hálar brautir". „Aðför að prentfrelsi“ I samtölum við blaðið hafa fölmargir aðrir tjáð sig um málið. „Aðför að prentfrelsinu" segir Indriði G. Þorsteinsson, ritstjóri Tím- ans, „Óeðlileg málaferli“, segir Sigurjón Pétursson, borgarfulltrúi. Á móti segir hins- vegar vararíkissaksóknari, Bragi Steinars- son, að „ritsóðar og ærumorðingjar hafi vað- ið uppi óátalið um nokkra ára skeið“. Og ennfremur segir hann að það sé full astæða til að spyrna við þessari þróun. Ástæða þessara deilna grundvallast í sjálfu sér ekki á þeim ummælum sem Hallur við- hafði um séra Þóri og störf hans, heldur miklu fremur það að ríkissaksóknari skuli skipta sér af deilum tveggja manna. Að mati þeirra sem gagnrýna þessi opinberu afskipti, er eðlilegt að séra Þórir leiti réttar síns með því að höfða sjálfur meiðyrðamál á hendur Halli. Um slíkt sé ekkert að segja því það sé sjálfsagður réttur manns sem telur æru sinni misboðið. Gagnrýnin felur því ekki í sér neitt mat á ummælum Halls, heldur alfarið á máls- meðferðinni. Akæra RIKISSAKSÓKNARI gjörir kunnugt: að höfða ber fyrir sakadómi Reykjavíkur opinbert mál á hendur Halli Magnússyni, blaðamanni, Hraunbæ 126,Reykjavík fæddum þar í borg 8. apríl 1962, fyrir ærumeiðandi ummæli um opinberan starfsmann, séra Þóri Stephensen, dóm- kirkjuprest í Reykjavík, og aðdróttanir í hans garð í grein er ákærði ritaði undir fullu nafni og birtist í dagblaðinu Tímanum, 158. tölublaði 72. árgangs, þann 14.jú!í 1988, bæði starfi séra Þóris sem dómkirkjuprests og út af tímabundnu starfi hans á vegum Reykjavikurborgar sem staðarhaldari í Viðey. [ grein ákærða felast ærumeiðandi aðdróttanir í garð séra Þóris og meiðyrði og greinin er í heild ósvífin, móðgandi og sett fram og birt á ótilhlýðilegan hátt og af illfýsi. Einstök ummæli, sem ákært erfyrir, eru þessi: A. Inngángsorð Séra Þórir, sem skipaði sig sjálfur staðar- haldara í Viðey, er nú farinn að láta hendur standa fram úr ermum þar. Ekki er athæfi hans kristilegt, enda hafa pólitískar skoð- anir hans og ráðríki ætíð komið á undan kristilegum náungakærleik sem þessi dóm- kirkjuprestur í raun og sanni ætti að hafa að leiðarljósi.“ B. I meginmáli greinar: 1. Það hvarflaði ekki að séra Þóri að hafa samband við ættingja þeirra er síðast voru jarðsettiríkirkjugarðinum í Viðey. Ónei, þeir hefðu kannske verið mót- fallnir vilja séra Þóris. Slíkt h'ðst ekki. 2. Hvað ætli verði næsta stórvirki séra Þór- is, sjálfskipaðs staðarhaldara í Viðey. Að malbika göngubraut í kringum eyna? Byggja sumarbústað fyrir sig og fjölskyldu sína í hlaði Viðeyjarstofu? Mála kirkjuna í Viðey heiðbláa, lit íhaldsins? 3. Séra Þóri var á sínum tíma hlíft við þeirri skömm að almenningur fengi að vita að hann hefði sjálfur skipað sig staðarhaldara í Viðey og að borgarráð bjargaði honum fyrir horn með því að ráða hann staðarhaldara í Viðey, eftir að dómkirkjupresturinn hafði komið sér í fjölmiðla og skýrt frá hinni nýju nafnbót. 4. Reyndar hefur hann sýnt í stólræðum sínum, þar sem hann blandar saman pólitík inn í orð Guðs, og með spjöllum í Viðey að hann er alls óhæfur til að gegna þessum embættum. Þess vegna ætti hann að víkja. 5. Undirritaður veit að greinarkorn þetta verður honum ekki til framdráttar, allra síst þegar ljóst er að það kemur við kaunin á háttsettum frímúrara. C. ímeginmáli greinar og áréttað innatt til- vitnunar undir mynd af greinarhöfundi: Greinarkornið er ritað í heilagri reiði, reiði yfir ófyrirgefanlegu skemmdarverki á hei- lögum stað sem skinheilagur maður ber ábyrgð á. Öll framangreind ummæli þykja varða við 108.gr. almennra hegningarlaga nr. 19,1940. Þess er krafist: 1. Að ákærði verði dæmdur til refsingar. 2. Að framangreind ummæli verði sam- kvæmt 1. mgr. 241. gr. almennra hegn- ingarlaga dærnd dauð og ómerk. 3. Að ákærði verði samkævmt 1. mgr. 264. gr. sömu laga dæmdur til greðslu miska- bóta. 4. Að ákærði verði dæmdur til greiðslu alls sakarkostnaðar. Skrifstofu ríkissaksóknara, Reykjavfk, 11. janúar 1989. Bragi Steinarsson e.u. 10
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.