Þjóðlíf - 01.04.1989, Síða 37
ERLENT
Ku-Klux-Klan maður
á þing
Nýverið var David Duke, 38 ára
gamall öfgamaður, kosinn á þing
fyrir repúblíkana í Lousiana.
Hann vann yfirburðasigur í kosn-
ingum, þrátt fyrir að menn eins
og Ronald Reagan og George
Bush hefðu lýst yfir andstöðu
sinni við hann og varað kjósend-
ur við honum. Duke er talinn
meðal leiðtoga Ku-Klux-Klan
hryðjuverkasamtakanna gegnd
hörundsdökku fólki í Bandaríkj-
unum. í kosningabaráttunni not-
aðist Duke m.a. við kenningar
fyrrverandi leiðtoga bandarísku
nasistahreyfingarinnar, George
Lincoln Rockwell, og prédikaði
um yfirburði hvíta kynstofnsins.
Stjórnendur Repúblíkanaflokks-
ins saka þennan þingmann sinn
um að kynda elda kynþáttahat-
urs og skaða flokkinn. Komið
hefur til tals að reka hann úr
flokknum, en fram að þessu hef-
ur það ekki gengið...
Duke sigurvegari í kosning-
um.
Sex milljónir múslima
Engin trúabrögð hafa aflað sér
jafn hratt vinsælda og Múha-
meðstrú í Bandaríkjunum. Að
vísu eru flestir þeirra sex milljóna
muslíma sem búa í Bandaríkjun-
um inflytjendur, en engu að síður
játar a.m.k ein milljón hörun-
dsdökkra Bandaríkjamanna
Múhameðstrú. Á hinn bóginn
hafa hinir róttæku Múhameð-
strúarhópar, sem kveiktu elda á
sjöunda áratugnum meðal svert-
ingja í Bandaríkjunum, orðið þýð-
ingarlitlir á síðustu árum....
Gamla kvikmyndastjarnan og kynbomban Birgitte Bardott er
orðin54áragömul og hefur lengi veriðeinsetukerling, —meinað
sér um þátttöku í kvikmyndum og sama og ekkert komið fram
opinberlega. Nú hefur hún ákveðið að rjúfa þessa einangrun.
Hún mun stjórna sjónvarpsþætti mánaðarlega í þágu dýra-
verndunarsjónarmiða á franskri einkastöð.
Evrókratar í asbesti
Ráðherranefnd Evrópubanda-
lagsins lendir oft í miklum kostn-
aði vegna þess hers starfs-
manna sem vinnur hjá banda-
laginu. Nú hefur nýr kostnaður
bæst við vegna húsnæðismála.
Þannig er mál með vexti, að á
sjötta áratugnum þegar höfuð-
stöðvarnar í Brussel voru byggð-
ar, með rými fyrir 3000 starfs-
menn, var notast við asbestplöt-
ur. Eins og alkunna er, eru þær
taldar hættulegar og valda hugs-
anlega krabbameini. Af þeim
ástæðum þarf að breyta hús-
næðinu verulega og er áætlaður
kostnaður talinn nema um 100
milljónum þýskra marka. Starfs-
menn bandalagsins eru á sum-
um vesturlandatungum nefndir
„evrókratar", í stíl við „bírókrata“(
skrifstofublækur)...
Lítilsvirðing við
konur —eða list?
Þeir sem standa fyrir 12. frönsku
leiklistarvikunni, „Perspectives“,
í Saarbrucken í V-Þýskalandi
lentu í ritskoðun á dögunum.
Halda átti hátíðina í mai nk., en
þá ná hátíðahöld vegna 200 ára
afmælis frönsku byltingarinnar
hámarki víða um lendur. Grafíkl-
istamaðurinn Tomi Ungerer
gerði veggmynd fyrir aðstan-
dendurna — „La conception de
l’empire" — „tekið á móti keisara-
veldinu" og á að sýna Napoleon
og Marianne. Þeirra stellingar
voru helsti óviðurkvæmilegar að
mati yfirborgarstjórans, „hún er
niðurlæging fyrir konuna", sagði
hann og vildi ekki myndina sem
veggspjald. Forstöðumaður
leiklistarvikunnar kvað bannið
vera „ritskoðun" og mótmælti
harkalega. Listamaðurinn sjálfur
sagði í rími á þessa leið:„ Að sýna
er bannað — það geta margir
dauðir sannað”.
Spiegel/óg
Tekið á móti keisaraveldinu.
Hin forboðna veggmynd.
LVMfsuumunsvu*ícH> rrtrsfirssr—*
PERSPECIWES 89
e- iT5mu.H m.uu myvb * 3 uu
LA rtueemtt/ Pf *.’€***£
Þrælar New York
borgar markaðssettir
Drottning „uppa“-bókmenntanna
í Bandaríkjunum, Tama Jan-
owitz, 31 ársgömul, hefurgengið
langt í markaðssetningu á bók
sinni, „Þrælar New York borgar”.
í sömu viku og kvikmynd byggð á
sögunni var frumsýnd í mars-
mánuði, var opnaður dans- og
veitingastaður undir nafninu
„Slaves of New York“, þar sem
leikin verður tónlist úr myndinni,
og sérstæðan klæðnað og þess
háttar getur að líta...
Tana Janowitz rithöfundur.
Engir kossar og
faðmlög
Dóttir forseta Fillipseyja, Kristina
Aquino hefur átt í útistöðum við
móðursína. Dóttirin krafðist þess
að fá að taka tilboði um að leika í
kvikmynd, en móðirin lét sig ekki
fyrr en á nýafstöðnu 18 ára af-
mæli bamsins. Dóttirin má leika í
rómantfskri kvikmynd, þó með
skilyrðum; „engir kossar og eng-
in faðmlög”...
37