Þjóðlíf - 01.04.1989, Page 46
MENNING
Umdeilda Anna
Fórnarlamb
peningahyggju og
fjölmiðla?
— Um líf og list fiðluleikarans
Anne-Sophie Mutter, óskabarns
Þýskalands, sem um þessar
mundir er stöðugt undir smásjá
fjömiðla vegna einkalífs síns.
Eftirlæti tónleikagesta, óskabarn Þýska-
lands, dýrkuð eins og hálfgyðja. Fiðluleikar-
inn Anne-Sophie Mutter, einungis 25 ára,
nýgift. Sömuleiðis áhugaefni fjölmiðla, og
senniiega aldrei eins og núna. Persónuleg mál
fiðluleikarans hafa fyllt síður ýmissa þýskra
blaða undanfarið og jafnvel vikuritið „Der
Spiegel“ sá ástæðu til að gera þeim rækileg
skil.
Hún spilaði í Háskólabíói í nóvember
1985, þá 22 ára að aldri. Þetta var illviðris-
kvöld í Reykjavík, vindgnauð smó meðfram
bíóhurðinni, og á meðan hljómaði fiðlukon-
sert Jóhannesar Bralims í öllu sínu veldi,
þunglyndislegur og stórbrotinn. „Aldrei hef-
ur þessi konsert hljómað fegurra í þessu
landi, ekki einu sinni af plötu“, sagði gagn-
rýnandi eins Reykjavíkurblaðsins og bætti
við að „ vel mæti segja mér að að Mutter væri
besti fiðluleikari í heimi, svo frábærlega spil-
aði hún. “ „ Blómfrjó í kalskólgi tæknidauð-
ans“, sagði annar. Gagnrýnin var öll á einn
veg; annað eins tónævintýri höfðu menn
varla heyrt.
Síðan eru liðin rúm þrjú ár. Anne-Sophie
Mutter hefur haldið áfram sigurgöngu sinni
um tónhallir heimsins. Hvort sem salurinn
heitir Háskólabíó, Berlínarfílharmónía,
Festivalhöll eða Carnegiehöll, — alls staðar
er hún eftirlæti áheyranda, miðarnir seljast
upp mörgum vikum áður en hún birtist á
staðinn.
Anne-Sophie Mutter fæddist 29. júní 1963
í smábænum Wehr, við svissnesku landa-
mærin, og ólst þar upp í kaþólsku, fremur
íhaldssömu umhverfi. Hún er stolt bæjarins,
heiðursborgari og gata hefur verið nefnd í
höfuðið á henni. Ellefu ár eru nú liðin síðan
hún spilaði þriðja fiðlukosert Mozarts í Fíl-
harmóníunni í Berlín undir stjórn Herberts
von Karajan og vakti fáheyrða athygli, varð
fræg á einni nóttu, einungis fjórtán ára göm-
ul. Hljómplata með þessum sama konsert
seldist í gríðarlegum upplögum og hin unga
fiðlustúlka var þegar orðin óskabarn Þýska-
lands.
Líf Mutter hefur síðan verið óslitinn
frægðarferill. Upptökur hennar hafa selst í
stórum upplögum. Enginn fiðluleikari í
heiminum hefur gert jafnmargar upptökur
svo ungur að aldri.
Brestur í samstarfi við
Karajan — vandamál í
einkalífinu
Flestar upptökur sínar hefur Anne-Sophie
Mutter gert undir stjórn Herberts von Kara-
an. Hún hefur verið ein af hinum svonefndu
„skjólstæðingum“ hins áttræða hljómsveitar-
stjóra og líklega þekktust þeirra. Spurningin
er hins vegar sú hvort Anne-Sophie Mutter
hefur notið góðs af handleiðslu Karajan.
Ýmsir gagnrýnendur hér í Vestur-Þýska-
landi hafa efast um það. Þykir mörgum sem
Mutter hafi ekki náð að sýna sínar bestu
hliðar undir stjórn Karajan og er lífleysi og
ofurfágun hins aldna hljómsveitarstjóra
kennt um. „Mutter gegn Karajan“ sagði einn
gagnrýnandi fyrir skömmu og átti við nýjustu
sameiginlegu upptöku þeirra og þær gjör-
ólíku túlkunaraðferðir sem þar væri greini-
lega að merkja.
En Anne-Sophie Mutter hefur átt í annars
konar vandræðum síðustu vikurnar. I jan-
úarmánuði gekk hún að eiga lögfræðing frá
Munchen, Detlev Wunderlich að nafni, sem
meðal annars hefur sinnt viðskiptum fyrir
Herbert von Karajan. Wunderlich, sem er 53
ára að aldri, var áður giftur einni ríkustu
konu Þýskalands, Renate Thyssen, barna-
barni iðnjöfursins Fritz Thyssen, sem á sín-
um tíma var einn helsti fjármálamaðurinn á
bak við uppgang þýskra nasista. Wunderlich
er þekktur lögfræðingur í Vestur-Þýska-
landi, og kunnur fyrir óbilgirni í réttarsal.
Skömmu eftir brúðkaup Mutter og Wund-
erlichs, birti kvöldblað í Múnchen þær frétt-
ir, að fjölskylda Mutter hefði verið mjög
óánægð með ráðahaginn og viljað koma í veg
fyrir brúðkaupið. Dagblaðið „Bild Zeitung"
komst fljótlega í spilið og tók að birta ná-
kvæmar fréttir af ástamálum fiðluleikarans,
sem og af deilum hennar við fjölskyldu sína.
Og síðan hvert blaðið á fætur öðru.
Anne—Sophie Mutter fiðluieikari varð
fræg á einni nóttu, einungis fjórtán ára
gömul. Af mörgum talin óskabarn þýsku
þjóðarinnar.
Haft var eftir fiðluleikaranum að faðir
hennar hafi alltaf reynt að hagnast á henni,
og látið hana fjármagna hvaðeina, sem fjöl-
skyldan girntist; sportbfla o.s.frv. Hins vegar
var haft eftir bróður fiðluleikarans að allt
hefði verið í sómanum fram í ágúst 1988, allt
þar til systir hans kynntist Detlev; Detlev
hafi semsé spillt öllu.
Þýsk blöð hafa borið þjóðinni skilmerki-
legar fréttir af þessum málum síðustu vikurn-
ar. Jafnvel Spiegel birti langa grein um An-
ne-Sophie Mutter, einkalíf hennar og list;
sagði söguna af henni og Detlev Wunderlich,
og allt það sem því fylgdi, og tíndi síðan
saman neikvæða gagnrýni um leik hennar en
þagði um jákvæða gagnrýni. Blaðamaður
Spiegel, sem raunar hefur aldrei látið að sér
kveða sem tónlistargagnrýnandi, felldi að
lokum þann dóm um Anne-Sophie Mutter,
að hún „þarfnaðist lífsreynslu, þarfnaðist
mótvægis við súkkulaðihliðar“ frægðar og
frama til að verða raunverulegur listamaður
en ekki aðeins undrabarn! Athyglisvert er,
að á sama tíma og Spiegel birti grein sína,
komu dómar um nýjustu upptökur Mutter í
tónlistarblöðum hér í landi, og fékk hún þar
mjög góða dóma fyrir leik sinn, sem þótti
46