Þjóðlíf - 01.04.1989, Blaðsíða 55
ÞJÓÐFÉLAGSMÁL
Konur sækja stöðugt fram samkvæmt rannsóknunum.
Konur á leið framúr
Rannsókn á valdi þjóðfélagsþegna í Svíþjóð: þjóðfélagsþegn ung vel menntuð kona sem
Nú er hinn virki og baráttuglaði skrifar bréf og tékka.
Þjóðfélagsþegnarnir hafa aidrei verið eins
virkir og nú og möguleikarnir til þess að hafa
áhrif á lífsumhverfið hafa heldur aldrei verið
betri. Aukin almenn menntun og vaxandi
sjálfstæði og þátttaka kvenna á öllum sviðum
þjóðlífsins hefur fjölgað leiðum til áhrifa en
nýju leiðirnar liggja utan flokkanna og hefð-
bundinna fjöldasamtaka. Þetta eru nokkrar
af niðurstöðum áfangaskýrslu sem komin er
út á vegum sænsku valdarannsóknarinnar.
„Undir yfirborðinu heldur uppreisnin
gegn hverskyns valdsmennsku áfram. Þátt-
taka í kosningum fer minnkandi, vantrúin á
stjórnmálaflokkum og pólitíkusum vex, al-
menningur lætur ekki draga sig í pólitíska
dilka jafn eindregið og áður, stjórnmála-
flokkar og ýmsar „gamlar“ þjóðmála- og
hagsmunahreyfingar eiga í erfiðleikum með
að fá fólk til liðs við sig.
Allt þetta gætu verið merki um að hið
pólitíska fulltrúalýðræði sem við búum við,
sé í alvarlegri kreppu. En stöðnun flokkanna
Einar Karl
Haraldsson skrifar:
þarf ekki að hafa í för með sér hnignun lýð-
ræðisins. Þvert á móti sýnir þessi könnun að
þjóðfélagsþegnarnir eru upp til hópa vel að
sér og áhugasamir um stjórn opinberra mála.
Og fólk beitir sér og er virkt, þegar það
hentar því sjálfu.“
Eitthvað á þessa leið fórust Leif Lewin,
prófessor í stjórnmálafræði við Uppsalahá-
skóla orð, þegar hann byrjaði námsstefnu
um nýútkomna bók „Medborgarnas makt“
14. febrúar sl. í Miðstöð félagsvísinda og
húmanískra fræða í Uppsölum.
Bókin sem hér um ræðir er áfangaskýrsla
úr sænsku valdarannsókninni sem þingið
pantaði 1985 og á að ljúka með birtingu yfir-
55