Þjóðlíf - 01.04.1989, Side 56

Þjóðlíf - 01.04.1989, Side 56
ÞJÓÐFÉLAGSMÁL litsskýrslu um mitt næsta ár. Áður eru komn- ar út þrjár áfangaskýrslur í bókarformi. Sú fyrsta var greinasafn um valdahugtakið í rit- stjórn Olof Petersson, sem stýrir könnuninni (Maktbegreppet). Sú næsta var samin af Ol- of Petersson og fjallaði um vald líkingamáls- ins (Metaforernas makt) og sú þriðja er eftir Barbara Czarniawska-Jorges og gæti á ís- lensku kallast Aðhafst með orðum (Att handla med ord). Bækurnar eru gefnar út af Carlssons förlag. Skýrslan um vald þjóðfé- lagsþegnanna er afrakstur víðtækrar könn- unar á því hvernig vísindalega valið úrtak fólks sem býr í Svíþjóð lítur á lífsaðstæður sínar, virkni í þjóðlífinu og möguleika sína til þess að hafa áhrif í þjóðfélaginu. Fyrirmyndarfólk Svíar Niðurstöður könnunarinnar draga upp mynd af Svíum, og í stuttu máli má segja að þeir séu til fyrirmyndar í flestum greinum borgaralegra dyggða. Finnski prófessorinn Erik Allardt missti það út úr sér á námsstefn- unni að kannski væri hin kratíska yfirdrottn- un svo mikil í sænsku þjóðlífi að það væri nánast kvöð að vera virkur borgari, eins og í ónefndum austlægari ríkjum. Gudmund Hernes, sá sem stjórnaði könnun á valdi í Noregi á sl. áratug, vitnaði í fleyg orð John Reeds sem hann skrifaði frá Rússlandi 1917: „I have seen the future, and it works“. (Ég hef séð framtíð, sem gengur upp). En þetta var kannski meira sagt til þess að stríða sænsku rannsóknarmönnunum vegna þess að kannanir af þessu tagi hafa tilhneigingu til þess að staðfesta fullvissu um eigið ágæti. Kannanir á valdi í Bandaríkjunum leiddu meðal annars í ljós fyrir rúmum tveimur ára- tugum að þau eru mesta lýðræðisríki heims og vissu margir fyrir þar í landi. Engin þjóð, nema ef vera skyldi Banda- ríkjamenn, er eins vel rannsökuð í bak og fyrir og Svíar. Kosningarannsóknir Sören Holmbergs hafa til að mynda leitt í ljós að kjósendur eru ekki eins heimskir og ætla mætti að áróðursmenn héldu þá vera, þegar atgangurinn er sem mestur í stjórnmálunum. Meirihluti kjósenda gerir sér skýra grein fyrir þeim viðfangsefnum sem komast að í kosningabaráttu og kýs flokk eftir því hvaða skoðanir hann hefur á þeim. Meirihluti kjós- enda tekur málefnalega afstöðu til flokka og greiðir ekki atkvæði út frá einföldum buddu- sjónarmiðum heldur með tilliti til þess hvað er álitið best fyrir heildina í bráð og lengd. í nýju könnuninni er allt þetta staðfest. Sú hugmynd að heimur fari versnandi stenst ekki heldur. í samanburði við fyrri rann- sóknir á kjörum láglaunafólks kemur f ljós að almenn lífskjör batna, en bilið milli verka- fólks og millistéttarfólks minnkar ekki. Menntun og stéttarleg staða er enn ákvarð- andi um þjóðfélagsstöðu. Verkamaðurinn á enn erfitt uppdráttar í samanburði við hinn skólagengna. Ný þekking og rétt skólun er lykillinn að því að geta beitt áhrifum sínum í upplýsingaþjóðfélaginu, þar sem oftar er spurt hvað kanntu? og hvað geturðu? heldur en um hvaða próf menn eru með upp á vas- ann. Einstaklingsbundin afskipti Gamla tuggan um að kjósendur hafi engin áhrif milli kosninga er rekin ofan í maga þeirra sem hana hafa í munni. Svíar eru að jafnaði í rúmlega þremur félögum og þó að Norðmenn séu í heilum fjórum félögum hver, þá eru þegnar Svíaríkis bærilega af- skiptasamir milli kosninga. Sem búandi (leigjandi eða íbúðareigandi), neytandi, sjúklingur eða aðstandandi fólks sem nýtur umönnunar í heilbrigðiskerfinu, sem for- eldri smábarns, foreldri skólabarns og sem vinnandi einstaklingur (dæmi sem tekin eru í skýrslunni), hefur sænskur ríkisborgari ýmsa möguleika á að beita sér og gerir það líka meira en margan grunar. Það er bara það að ekki er víst að hann geri það á hefðbundinn hátt eða eftir þekktum formúlum. Fólk hefur svo margvísleg lífsáform. Það kannski beitir sér af fítonskrafti sem smábarnaforeldrar í dagvistarmálum og hefur afskipti af skóla- málum meðan börnin ganga í skóla, en er svo afskiptalaust um þjóðmál þar til það fer að gera kröfur fyrir hönd ellilífeyrisþega. Sumir eru virkir í því sem skýrsluhöfundar kalla „litla lýðræðið" sem næst er fólki, en láta sig litlu skipta „stóra lýðræðið“ sem snýr að flokkum og fjöldasamtökum, eða þá öfugt. Og til er að fólk skipti um vígvöll í afskiptum sínum milli „stóra“ og „litla“ lýðræðisins á mismunandi aldursstigum. Skýrsluhöfundar leggja mikla áherslu á að ekki sé ætíð hægt að finna skýrt munstur eða samband í athöfnum fólks og áhrifavilja og þeir vilja ekki oftúlka niðurstöður sínar. Það verður til þess að hver og einn verður að sækja í skýrsluna það sem hann eða hún er að leita að og hún er sannarlega náma upp- lýsinga fyrir allt áhugafólk um lýðræði og þjóðfélagsmál. Eins og áður hefur komið fram eru hefð- bundin stjórnmálafskipti í stöðnun eða aftur- för. Það færist hinsvegar í vöxt að fólk hafi einstaklingsbundin afskipti með því að skrifa greinar, taka þátt í umræðum, standa á rétti sínum gagnvart yfirvöldum, skrifa undir yfir- lýsingar og efna til mótmæla í einu eða öðru formi. Hinar virku kynslóðir sem eru að taka við hafa meiri hæfileika til stjórnunar og ein- staklingsbundinnar skoðanamyndunar held- ur en þær kynslóðir sem eru að skila af sér. Þær höfðu lítið sjálfstraust og litla getu til þess að gera sig gildandi sem einstaklingar. Það er einmitt áhyggjuefni að pólitíska flokkakerfið og hagsmunasamtök þeirra sem minna mega sín í þjóðfélaginu skuli vera á undanhaldi, þegar verkafólkið og hinir eldri í þjóðfélaginu þurfa sýnilega á þeim að halda til þess að rétta hlut sinn í samkeppninni við áhrifasterka einstaklinga nýju kynslóðanna. Konur sækja fram Eftir því sem hærra dregur í þjóðfélags- stiganum sitja fleiri karlar í valdastólum en konur. I flokkunum, verkalýðsfélögunum og á forstjórastólunum eru karlar á fleti fyrir. Stjórnmálafræðingurinn Torbjörn Larsson hefur nýverið haft á orði að vilji menn finna valdaleysi í þjóðfélaginu eigi að líta til vinnu- staða þar sem konur eru í meirihluta. Þar sem eru konur, þar er valdaleysi. Þessi mynd er vissulega rétt í aðalatriðum, en drættirnir eru of grófir. Og fyrst og fremst er myndin að breytast, því að konur fara geyst. Utan fundasala stjórnarráðanna, flokks- kontóra og forstjóraskrifstofa standa konur orðið jafnfætis körlum í hvers kyns ákvarð- anatöku og skoðanamyndun. Þetta gildir ekki aðeins- um það svið sem nær yfir fjöl- skyldulíf og umönnun um þá nánustu, heldur eru konur komnar framúr körlum í stjórn- málaathöfnum sem liggja utan hins hefð- bundna fulltrúalýðræðis. Frá því 1968 hafa konur verið virkari í hverskyns mótmælaað- gerðum heldur en karlar. Hinn dæmigerði andófsmaður er nú á dögum ung vel mennt- uð kona í þjónustugeiranum. Áður var and- ófsmaðurinn frekar karl en kona, frekar verkamaður en skrifstofumaður, frekar óskólagenginn en langskólagenginn og frek- ar eldri en yngri. Nú er hinn virki og baráttuglaði þjóðfé- lagsþegn ung vel menntuð kona sem skrifar bréf og tékka. Tékkana sendir hún „Björg- um börnum“, eða Greenpeace og bréfin birtir hún í blöðum eða dreifiritum. Svo fer hún í mótmælastöðu, þegar sá gállinn er á henni. Ungar konur hafa öðlast sjálfstraust og aukið jafnrétti innan sinnar kynslóðar, og þær sýna nú mun meiri dirfsku í pólitískum athöfnum en karlar, sem leita í skjól hefð- bundinna þjóðfélagsstofnana og formlegrar ákvarðanatöku. Og engin merki eru sjáanleg um að framsókn kvenna sé að linna. Einmitt þegar þetta er skrifað eru kratakonur í Sví- þjóð að gefa út bók um árangurinn af tengslanetum kvenna. Þannig eru konur úr bæjafélaginu Jarfalla að leggja undir sig hverja toppstöðuna á fætur annarri í sænska stjórnarflokknum eftir að hafa um árabil stutt við bakið hver á annarri með aðferðum sem þær hafa sumpart þróað sjálfar, en sumpart fengið að láni úr vopnabúri valda- karla. Ný stjórnmálaumræða Er glasið hálffullt eða hálftómt? spurði marxistinn og Gautaborgarprófessorinn i fé- lagsfræði, Göran Thernborn, á Uppsala- stefnunni. Hann hefur lengi búið í Hollandi og gat frætt viðstadda á því að þar hefði 56

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.