Þjóðlíf - 01.04.1989, Side 75

Þjóðlíf - 01.04.1989, Side 75
BILAR Torsen mismunadrif. Torsen drifið var fundið upp til þess að nota það í dráttarvögnum sem drógu risaflug- vélararnar C5A. Flugherinn var ekki sáttur við það að dráttarvagnarnir spóluðu með ferlíkin aftan í sér. Úr furðuheimi drifsins Skyldi nokkur þjóð í heiminum búa við eins fjölbreytt úrval bifreiðategunda og vér íslendingar? Okkur hefur ekki ennþá tekist að kaupa bfla frá Ástralíu og Kína enda hafa þær þjóðir ekki útflutning bfla á sinni stefnu- skrá eftir því sem ég kemst næst. Bílakaup- menn eru ótrúlega seigir í því að ná í varning sinn. Þeir hafa teygt sig suður eftir allri Am- eríku og eru komnir allt suður til Brasilíu. Til glöggvunar skal hér bent á að það eru einnig framleiddir bflar í Argentínu. Þar sem bflaframleiðsla var áður með þjóðlegum einkennum þá er hún nú orðin fjölþjóðlegt fyrirbæri. Þeir sem nálgast miðj- an aldur og eldri muna það að bflar höfðu sín séreinkenni. Dæmi: franskir bflar voru vél- arvana, höfðu mjúka og slaglanga fjöðrun og svo voru þeir öðruvísi en margir bflar t.d. að því leyti að gírstöngin stóð einhvernveginn beint út úr mælaborðinu og ekki fyrir séð hvað gerast myndi ef tekið væri í gripinn. Bflar voru einnig einskonar vörumerki eða þjóðartákn. Hver man ekki franskar spennumyndir í svart/hvítu með Jean Gabin þar sem kænir bófaforingjar í rykfrökkum áttust við áþekk- ar „týpur“, verði laganna og geystust um götur stórborganna í náttmyrkri og rigningu á fráum Citroen traction avant. Hver vildi t.d. ekki sjá aftur tilþrifin í myndinni Rififi sem seinna varð fyrirmynd margra spennu- mynda? Skúli spyrna í fararbroddi í þessum kvikmyndum var fátt sem líktist þeim raunveruleika sem við þekktum og þess vegna lítil hætta á því að þær yrðu fyrir- mynd að öðru en kannski glæfralegum akstri en í þann tíð var fátt um Citroen bfla hér í höndum frískra manna að frátöldu eintakinu sem Skúli spyrna átti, en Skúli hefur verið um langa hríð bifreiðaeftirlitsmaður svo það er ekki viðeigandi að rifja upp þær sögur. Það má skoða fleiri dæmi, stóru krómslegnu drekana frá U.S.A., veikbyggða en sprett- harða ítalska bfla, klossaða enska bfla sem voru erfiðir í viðgerðum, sterkbyggða ein- falda sænska bfla og svo mætti lengi telja, en að margra mati var eins og þjóðarsál við- komandi framleiðslulanda birtist í bflunum sem þau smíðuðu. Þá fóru japönsku bflarnir að birtast. Framhjóladrif í gömlum glœpamyndum og aðskiljanleg náttúra drifknúinna bifreiða. Þekking skrásetjarans á Japan, fólkinu sem þar býr og menningu þess er ekki nægi- leg til þess að slá því föstu hvort bflarnir þeirra lýsi þjóðarsálinni. Einhvernveginn er það svo að manni finnst hugmyndafræðin á bak við þetta allt saman hafa breyst þannig að hún komi ekki lengur úr þjóðarsálinni heldur úr hugum þeirra sem hugsa óháð landamærum og gömlum gildum. Eftir þessari pípu dansa nú allir þeir sem bfla framleiða og ekki nokkur lifandi leið að geta sér til um uppruna bfls á gerð hans og einkennum. Margir kannast við bflana frá Ford og GM sem framleiddir eru með sama útliti í fjölda landa austan hafs og vestan. Ekki er hjá því komist í þessu sambandi að upplýsa þá skoðun margra að þrátt fyrir al- þjóðlegt yfirbragð leynist,, karakter" fram- leiðslulandsins undir skinni bflanna sem síð- an birtist okkur í t.d. áræðanleika í langvar- andi kuldum og hugsanlega endingu (það síðasttalda er kannski hégómi á tímum ein- nota hluta). Mismunadrif Svo vikið sé aftur að Citroen bílunum sem fyrr voru nefndir þá komu þeir fyrst fram árið 1934. Bæði útlit þeirra og gerð öll braut blað í bflaframleiðslu. Þeir voru með fram- drifi sem er óbreytt í grundvallaratriðum enn í dag og notað er í öllum bflum, þá voru þeir ekki með grind heldur með sjálfberandi yfir- byggingu og þannig eru nánast allir fólksbfl- ar í dag. Fleira má telja, svo sem stangafjöðr- un sem margir nota nú og hefur þá kosti að taka lítið rými miðað við gorma eða blað- fjaðrir. Fleira mætti telja, en aksturseigin- leikar þessara bfla voru best sannaðir í kvik- myndunum eins og fyrr var nefnt. Agæti framdrifsbfla t.d. í snjóakstri þekkja flestir, en það helgast m.a. af því að allur þungi vélarinnar og aflrásarinnar hvflir á framhjólunum sem jafnframt eru þá drif- hjól bflsins. Því má skjóta hér inn að ef sett er sama farg og nemur þyngd vélarinnar aftur í bfl með afturhjóladrifi hlýtur akstursgetan í snjóakstri að skána til muna. Það liggur í augum uppi að ef hægt er að sameina kosti framdrifs og afturdrifs í drifi allra hjóla þá er það besti kosturinn. í slíkum bfl sem fer um þar sem viðspyrna er léleg gerist fátt sögulegt annað en það að svo lengi sem þrjú hjól hafa sæmilegt grip er komist úr sporunum. 75

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.