Læknablaðið : fylgirit - 15.04.2009, Blaðsíða 2

Læknablaðið : fylgirit - 15.04.2009, Blaðsíða 2
VISINDI A VORDOGUM FYLGIRIT 60 Vísindaráð Landspítala Vísindaráð er framkvæmdastjóm til ráðgjafar um vísindastefnu og vísindastarf á sjúkrahúsinu gagnvart háskólastofnunum og öðrum. Vísindaráð er skrifstofu kennslu, vísinda og þróunar til ráðgjafar um þau verkefni hennar sem snúa að háskóla- og vísindastarfi og þróun heilbrigðisvísinda Vísindaráð á aðild að úthlutun styrkja úr Vísindasjóði Landspítala samkvæmt reglum sjóðsins, og semur matsreglur í samræmi við alþjóðlegar viðmiðanir og með hliðsjón af matsreglum íslenskra háskóla. Vísindaráð hefur það hlutverk að sjá um kynningu á vísindastarfi á spítalanum og er til ráðgjafar við veitingu viðurkenninga fyrir vísindastörf á spítalanum. Arlega eru haldnir vísindadagar, Vísindi á vordögum, þar sem markverðar vísindaniðurstöður eru kynntar í fyrirlestmm og á veggspjöldum fyrir starfsfólki spítalans, fræðimönnum og almenningi. Einnig eru þá veitt verðlaim til vísindamanna og styrkir veittir úr Vísindasjóði Landspítalans. Vísindaráð Landspítala er skipað sjö mönnum til fjögurra ára. Verkefnastjóri Vísindaráðs er Sigríður Sigurðar- dóttir, skrifstofu kennslu, vísinda og þróunar. Vísindaráð Landspitala Gísli H. Sigurðsson yfirlæknir og prófessor (formaður) - skipaður af læknaráði Rósa Björk Barkardóttir yfirnáttúrufræðingur (varaformaður) - skipuð af forstjóra Landspítala Eiríkur Öm Amarson forstöðusálfræðingur og dósent - skipaður af forstjóra Landspítala Guðrún Kristjánsdóttir hjúkmnarfræðingur og prófessor - skipuð af hjúkrunarfræðideild HÍ Jón G. Jónasson yfirlæknir og prófessor - skipaður af læknadeild HÍ Magnús Karl Magnússon sérfræðilæknir og prófessor - skipaður af læknadeild HÍ Sigríður Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur og lektor - skipuð af hjúkrunarráði Varamenn Einar Stefánsson yfirlæknir og prófessor - skipaður af læknadeild HÍ Gunnar Guðmundsson aðstoðaryfirlæknir og aðjúnkt - skipaður af læknadeild HÍ Helga Bragadóttir hjúkrunarfræðingur og lektor - skipuð af hjúkrunarráði Herdís Sveinsdóttir hjúkrunarfræðingur og prófessor - skipuð af hjúkrunarfræðideild HÍ Inga Þórsdóttir forstöðumaður og prófessor - skipuð af forstjóra Landspítala Magnús Gottfreðsson yfirlæknir og dósent - skipaður af læknaráði Þórður Helgason heilbrigðisverkfræðingur - skipaður af forstjóra Landspítala 2 LÆKNAblaðið 2009/95

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.