Læknablaðið : fylgirit - 15.04.2009, Blaðsíða 18

Læknablaðið : fylgirit - 15.04.2009, Blaðsíða 18
VISiNDI A VORDOGUM FYLGIRIT 60 Aðferð: Tvö rýnihópaviðtöl fóru fram við átján ljósmæður á fæðingargangi og í Hreiðri á Landspítala. Urtak var valið með þægindaaðferð. Gögn voru greind í þemu og undirþemu með menningarbundinni nálgun. Niðurstöður: Fæðingarstaður og áhættuhugsun í umhverfi hafa áhrif á sjálfræði ljósmæðra og kvenna til ákvarðanatöku um umönnun í fæðingu og traust á innri þekkingu ljósmæðranna. Þær töldu yfirsetu mikilvæga vegna möguleika til að mynda gagnkvæmt samband, byggt á trausti, milli konu og ljósmóður. Það skapaði öryggistilfinningu og tækifæri til að nota klíníska færni og innri þekkingu til að ákveða bestu umönnun fyrir hverja konu. Ef slíkt samband myndaðist ekki fannst þeim það draga úr öryggistilfinningu. Verklagsreglur sem brjóta í bága við þekkingu ljósmæðra og mismunandi hugmyndafræði skapaði óöryggi og tilfinningu um að vera undir smásjá. Það hafði einnig áhrif á sjálfræði þeirra og kvenna til ákvarðanatöku um umönnun í fæðingu. Ályktun: Ljósmæður lýstu ákveðnu ferli þar sem þær fara út fyrir ramma reglna en þá er ákvörðun byggð á gagnreyndri þekkingu, klínísku mati og samráði við konuna. Það eru í raun gagnreynd vinnubrögð en ljósmæður virðast ekki alltaf sjá leiðir til að vinna þannig. Efla þarf rannsóknir innan ljósmóðurfræðinnar á því hvernig hægt er að stuðla að eðlilegum fæðingum í fæðingarumhverfi um leið og velferð og öryggi konunnar og fjölskyldu hennar er höfð að leiðarljósi. V-27 Lyfjanotkun á hjúkrunarheimilum á íslandi. Þriggja ára aftursæ rannsókn Helga Hansdóttir, Pétur G. Guðmannsson Öldrunarsviði Landspítala helgah@landspitali.is Markmið: Að lýsa lyfjanotkun á hjúkmnarheimilum á íslandi yfir þriggja ára tímabil. Aðferðir: Lyfjafyrirmæli frá byrjun 2002 til lok 2004 voru skoðuð. Upplýsingar um heildarlyfjanotkun voru skráðar auk upplýsinga um stöðuga notkun á rannsóknartímanum, tímabundna notkun og notkun á lyfjum eftir þörfum, nokkra algengra lyfjaflokka. Niðurstöður: Upplýsingum frá 10 hjúkrunarheimilum var safnað um 1408 einstaklinga, 909 konur og 499 karla sem er u.þ.b. 60% af skráðum hjúkrunarheimilisrýmum á Islandi. Meðal aldur var 83 ár. Heildar lyfjanotkun var 8,88 (±4,0) í byrjun en jókst til 9,91 (±4,3) að meðaltali, lyf notuð skv. þörfum voru ekki meðtalin. Konur notuðu að meðaltali einu lyfi fleiri en karlar (8,24 vs 9,23 p<0,001). Notkun geðlyfja var mikil en einungis 12,2% karla and 6,4% kvenna fékk aldrei nein lyf af flokki geðlyfja (p<0,01). Sefandi lyf, þunglyndislyf og kvíðastillandi/svefnlyf voru oftar gefin konum en körlum (39,1% vs 31,7% p<0,01; 70% vs 61,5% p<0,01; 86,6% vs 80,2% p<0,05). Konur fengu oftar lyf sem lækka sýrustig magans en karlar (46,9% vs 38,1% p>0,01), D- vítamín (72,3% vs 59,1% p<0,00), kalk (47,8% vs 15,2% p<0,00), þvagræsilyf (64% vs52,3% p<0,00), skjaldkirtiLandspítalaor món (22,4 vs 8% p<0,02), ópíöt (32,1% vs 27,7% p<0,00), and paracetamól (72,3% vs 61,3% p<0,00). Karlar fengu oftar lyf gegn sykursýki (14%vs 5% p<0,00); warfarin (10,6% vs 5,1% p<0,00); kólesteról lækkandi lyf (7,8% vs 4% p<0,01); parkinsonslyf (13,8% vs 8,4% p<0,05). Það var ekki significant munur á körlum og konum í notkun blóðflögu hemjandi lyfja (30,5%); lyfjum við hjartsláttartruflunum (digoxin/amidarone) (15,8%), lyfjum gegn háþrýstingi (35,4%), beta blokkerum (37,1%); gigtarlyfjum (17,1%), sérhæfðir cox-2 hemjarar (13,7%), astmalyfjum (16,1%) né glákulyfjum (15%). Ályktun: Lyfjanotkun á hjúkrunarheimilum á íslandi er mikil og eykst með tímanum. Konur nota fleiri lyf en karlar, sérstaklega geðlyf. V-28 Spádómsþættir fyrir lifun skv. mælitækinu interRAI Palliative Care (PC) á íslandi Sigríður Helgadóttir1, Valgerður Sigurðardóttir2, Ingibjörg Hjaltadóttir1, Guðrún Dóra Guðmannsdóttir1, Pálmi V. Jónsson1 ^Öldrunarsviði Landspítala,2 líknardeild lyflækningasviðs II Landspítala sigrihe@lsh.is Inngangur: Mikið hefur verið rannsakað um spádómsþætti fyrir lifun en þetta er fyrsta birta rannsóknin sem gerir það með interRAI PC. Markmið: Tilgangur rannsóknarinnar var að finna út hvaða þættir í InterRAI PC spá fyrir um lifun á 1 ári og athuga hversu vel spá lækna og hjúkrunarfræðinga um lifun samræmdist raunlifun. Aðferðir: Framsýn þýðisrannsókn á sjúklingum skráðum í líknarþjónustu á tímabilinu 15.10.2003-15.04.2004. Notast var við interRAI Palliative Care (PC) við upplýsingaöflun. Tölfræðileg úrvinnsla var gerð með Kaplan-Meier greiningu í SPSS. Niðurstöður: Af þeim 124 sjúklingum (64 konur og 60 karlar) sem voru þátttakendur í rannsókninni voru 15 enn á lífi e. 1 ár. Meðalaldur sjúklinga var 71 ára (SD 13). 116 sjúklingar voru með krabbamein. Miðgildi lifunar var 41 dagar (95% CI 30- 52). Marktækilegan mun var að finna á lifun milli verkjahópa. Verkjalausir lifðu lengur en þeir sem fundu fyrir verkjum. Ekki var að finna mun á lifun eftir styrkleika verkja. Aðrir marktækir þættir voru minnkuð hreyfifærni í rúmi og flöktandi meðvitund. Lifunarspá lækna og hjúkrunarfræðinga passaði vel við raunlifun þegar andlát var yfirvofandi, eða innan 6 vikna. Ályktanir: Sjúklingar í þessari rannsókn voru misleitur hópur og interRAI PC mælitækið hentar almennt frekar illa við að spá fyrir um lifun. V-29 Lífsgæði kæfisvefnssjúklinga samanborið við slembiúrtak íslendinga á höfuðborgarsvæðinu Björg Eysteinsdóttir1, Bryndís Halldórsdóttir', Bryndís Benediktsdóttir1, Þórarinn Gíslason', Greg Mashlin2 Allan I. Pack2 'Svefnrannsóknir Landspítala, ^Centre for Sleep and Resiratory, University of Pennsylvania School of Medicine, Philadelpia, USA bjorgey@\andspitali.is Inngangur: Kæfisvefn orsakast af síendurteknum öndunar- truflunum í svefni, súrefnisfalli og dagsyfju. Þetta ástand getur haft neikvæð áhrif á geðslag, dagsform, árvekni og lífsgæði 1 8 LÆKNAblaðið 2009/95

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.