Frjáls verslun - 01.07.2008, Side 62
62 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 8
s t j ó r N u N
v
ita starfsmennirnir þínir hver
stefna fyrirtækisins er? Og gætir
þú svarað því á einfaldan hátt
hver væri stefna fyrirtækis þíns ef
þú værir skyndilega spurður að
því? Það er nú það.
D. Collins og M. Rukstad héldu því fram
í aprílhefti Harvard Business Review að það
væri staðreynd, sem fáir þyrðu að tala um,
að mjög margir stjórnendur gætu varla lýst
því á einfaldan hátt hver stefna fyrirtækisins
væri. Og það segði sig sjálft að ef stjórnendur
ættu erfitt með að segja á einfaldan hátt hver
stefnan væri, þá væri nær útilokað að aðrir
starfsmenn gætu það.
En ef svo vildi til að þeir gætu lýst stefn-
unni þá væri sjaldgæft að aðrir starfsmenn
lýsi henni nákvæmlega eins og afleiðingin
væri sú að engin ein stefna væri höfð að leið-
arljósi í starfi fyrirtækisins.
Stefna er ekki það sama og hluverk, gildi
eða sýn. En þessu er oft ruglað saman. Þetta
þrennt er engu að síður mikilvægt og hjálpar
fólki að gera hlutina rétt. Það er að segja að
leysa verkin á réttan hátt. Hlutverk, gildi
og sýn hjálpa hins vegar lítið við að ákveða
hver þessi verk eru. Þar af leiðandi gera þau
starfsmönnum lítið gagn þegar þeir standa
frammi fyrir erfiðum ákvörðum í sínum
daglegu störfum.
tvö góð dæmi:
Sölumaður á fjölmiðli er hjá stórum við-
skiptavini sem er búinn að þrýsta verði mikið
niður. Á sölumaðurinn að taka stórum samn-
ingi á mjög lágu verði eða sleppa þessum
viðskiptum?
Starfsmaður hafði í langan tíma unnið að
nýrri virðisaukandi þjónustu fyrir viðskipta-
vini fyrirtækisins en var á síðustu metrunum
sagt að hætta þar sem verkefnið væri ekki í
takt við stefnu fyrirtækisins. Reiður hugs-
aði hann: „Af hverju sagði mér það enginn
í upphafi?“
Í fyrirtæki með 300 starfsmenn og óljósa
stefnu eru í raun 300 mismunandi stefnur í
gangi! Þetta skapar ekki aðeins mikla gremju
á meðal starfsfólks heldur veldur þetta einnig
gríðarlegri sóun á tíma og fjármagni. Rétt
eins og Don Quixote, sem réðst til atlögu við
vindmyllurnar, ráfa starfsmenn í allar áttir í
góðri trú um að þeir séu að vinna í takt við
stefnu fyrirtækisins.
Á samdráttartímum líkt og nú þurfa
öll fyrirtæki að horfa inn á við. Þau þurfa
að setja alla athyglina á undirstöðurnar og
skera burt alla óþarfa rekstrarfitu. Stór liður
í þessu er að það sé mjög skýr og einföld
stefna sem allir starfsmenn þekkja, skilja og
umfram allt vinna eftir. Þetta getur ráðið
örlögum fyrirtækja þegar þau fara í gegnum
þann öldugang sem nú gengur yfir íslenskt
efnahagslíf.
Rukstad og Collins setja hugtökin upp
þrepskipt:
Efst kemur hlutverk. Af hverju erum •
við til?
Næst koma gildi. Hverju trúum við og •
hvernig hegðum við okkur?
Því næst kemur sýnin. Hvað ætlum við •
að verða?
Þá er það stefnan. Hver er stefna okkar í
samkeppninni? Hún þarf að vera sett fram
á einfaldan og skýran hátt, með 35 orðum
eða færri.
Hvert ertu að fara?
eða ertu að
fara eittHvað?
D. Collins og M. Rukstad halda því fram að ef stjórnendur fyrirtækja
eiga erfitt með að segja á einfaldan hátt hver stefnan sé, þá sé nær
útilokað að aðrir starfsmenn geti það. og þótt einhverjir starfsmenn
geti lýst stefnunni er afar ólíklegt að þeir lýsi henni eins.
TExTI: guðmundur arnar guðmundsson • MyND: geir ólafsson