Frjáls verslun - 01.09.2009, Qupperneq 131
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 0 9 131
Saga okkar er stutt og mjög viðburðarík,“ sagði Liv Bergþórs-dóttir, framkvæmdastjóri Nova. „Við byrjuðu að skoða mark-
aðinn árið 2006 og komumst að þeirri niðurstöðu að við ættum
mikið erindi inn á hann.“ Nova upplifði sitt blómaskeið árin 2007
og 2008 en þá kom hrunið og menn gerðu sér grein fyrir að það
þýddi ekki að bíða eftir að efnahagsástandið batnaði.
Við sumum fyrirtækjum blasti dauði en með því að grípa inn í
var hægt að koma í veg fyrir dauða hjá Nova. „Við slíkar aðstæður
þarf að þjappa starfsfólkinu saman og byrja upp á nýtt. Það þýðir
ekki að hjakka í sama farinu. Tækifærin koma og það er hægt að
komast í gegnum endurreisn,“ sagði Lív og benti á að það væri
hrikalega skemmtilegt að byrja upp á nýtt og að kvíði stjórnist oftar
en ekki af því að fólk hefur nóg að gera. „Hafir þú nóg að gera þá
sérðu ekki kvíðann. Það versta sem hægt er að gera starfsfólkinu er
að það hafi ekki nóg að gera þegar það mætir í vinnuna.“
Nýjar leiðir
Allt snýst þetta um breytingastjórnun að hennar mati og nú er Nova
að fást við meiri breytingar en nokkru sinni fyrr. „Þetta snýst ekki
um að koma öllu í fyrra horf. Það á að gera hlutina allt, allt öðru-
vísi. Markmiðið er að byrja upp á nýtt og fara nýjar leiðir og gera
starfsfólkinu grein fyrir því að við erum EKKI að reyna að koma
öllu í fyrra horf. Starfsfólk sem maður hefði ekki getað fengið með
sér í breytingar fyrir ári er farið að kalla eftir breytingum. Efnahags-
umhverfið er breytt, gildismatið er breytt, viðhorf starfsmanna til
breytinga eru gjörbreyttar, neyslumynstrið er breytt og sömuleiðis
tíska og „trend“. Við þetta skapast mörg tækifæri. Það er rosalega
gaman að fara í gegnum þessa sköpun.“
Liv ræddi um tæknibreytingarnar þar sem GSM símarnir eru
orðnir að litlum fartölvum. Hún sagði líka að auðveldara væri að
byrja með autt blað heldur en að þurfa að breyta því sem fyrir er og
Nova hefði ekki þurft að hugsa alla hluti upp á nýtt. Það þyrfti að
skoða hverjar væru þarfir neytandans og hvernig hægt væri að mæta
þeim með öðrum hætti en samkeppnisaðilar gerðu. Hún bætti við
í gamansömum tón að eitt hefðu þau hjá Nova ekki séð fyrir. Það
voru viðbrögð nágrannanna þegar Nova auglýsti opnun „stærsta
skemmtistaðar í heimi“ í hverfinu þeirra. Þeir hefðu áður verið þar í
sambýli við Hollywood og Broadway!
Ekkert nema tækifæri
Það mátti heyra á Liv að mikil bjartsýni ríkir hjá Nova og sveigj-
anleikinn er gríðarlegur. Framundan sjá menn ekkert nema tækifæri,
enda hefur meðal annars orðið sú breyting úti í þjóðfélaginu að fólk
er farið að velta fyrir sér hvað kostar að hringja, en lítið fór fyrir
slíkri hugsun fyrir rúmu ári. Það verður til þess að fólk er opnara
fyrir að prófa nýja hluti.. Markaðshlutdeild Nova hefur vaxið úr 9%
í 15% og markmið ársins 2010 er að komast aftur á blómaskeiðið
og ná viðunandi arðsemi. „Nova á mikið inni úti á markaðinum.
Mikilvægt er að halda í gleðina og vera óhræddur við að vera öðru-
vísi því á endanum skilar það meiri árangri.“
mikill vöxtur á skömmum tíma
Í byrjun árs 2007 voru starfsmenn Nova,
stærsta skemmtistaðar í heimi, 5 en eru nú
85. Fyrirtækið þjónar 50 þúsund viðskipta-
vinum. Nova er ekki aðeins ungt fyrirtæki
heldur er starfsmannahópurinn líka ungur,
meðalaldurinn 30 ár.
Liv Bergþórsdóttir, framkvæmdastjóri Nova.
Þjappa verður
starfsfólkinu
saman og byrja
upp á nýtt
Liv Bergþórsdóttir,
framkvæmdastjóri Nova