Frjáls verslun - 01.09.2007, Page 21
F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 7 21
Forsíðuviðtal
„Skólinn minn í Oregon, Lewis and Clark College, var mjög lítill
skóli. Aðeins um 1300 nemendur og þetta var mjög strangur skóli.
Við vorum í litlum bekkjum og kynntumst prófessorunum vel, en
kröfurnar voru miklar,“ segir Gísli.
Fylgdi lærimeistaranum til Finnlands
En Gísli stóð sig vel og fluttist yfir í University of Oregon þar
sem við tók doktorsnám í fjármálahagfræði og tölfræði. Sem
doktorsnemi byrjaði hann að taka þátt í kennslu við háskólann. Einn
aðalprófessorinn hans og leiðbeinandi í doktorsnáminu var finnskur
– Tarmo Pukkila. Árið 1991 var prófessorinn skipaður rektor við
háskólann í Tampere í Finnlandi. Lærisveinninn Gísli fylgdi með og
hélt áfram rannsóknum sínum og kennslu þar.
„Það voru ýmsar ástæður fyrir að ég ákvað að taka þessu boði um
að fara frá Bandaríkjunum til Finnlands og ljúka doktorsritgerðinni
þar,“ segir Gísli. „Eitt var að það rann smám saman upp fyrir mér að
lífið í Bandaríkjunum var ekki það sem það sýndist og sem Evrópubúa
saknaði ég ákveðins raunveruleika og persónulegra samskipta. Mér
fannst eins og ég væri búinn að vera nógu lengi þar svo að eftir sex ár
og ákvað ég að skipta um umhverfi.“
Gísli segir að þrátt fyrir þetta hafi menntunin frá Bandaríkjunum
reynst honum vel og það hafi verið góður skóli og undirbúningur fyrir
lífið. Þar hafi hins vegar verið lögð áhersla á önnur viðskiptaviðhorf
en þekkist í Evrópu – sum góð, en önnur ef til vill miður
góð. Meiri áhersla lögð á áræðni og einstaklingshyggju, en einnig
akademískan aga og að umhverfi viðskiptanna er ópersónulegt. Og
í Bandaríkjunum er meiri áhersla á hugarfar frumkvöðlanna en er í
Evrópu og á Norðurlöndunum.
„Ég held að við sem höfum lært í Bandaríkjunum lítum viðskipti
öðrum augum en þeir sem eru skólaðir í evrópsku eða norrænu
hefðinni,“ segir Gísli. „Það er munur þarna á og bandaríska hefðin
byggir á meiri áræðni. Menn eiga ekki að óttast að reyna eitthvað
nýtt.“
Sovétríkin í rústum
Í Finnlandi ríkti sérstakt ástand þegar Gísli koma þangað. Sovétríkin
voru fallin og Finnar þegar farnir að leita fyrir sér með viðskipti í
Norðvestur-Rússlandi og þá sérstaklega á St. Pétursborgarsvæðinu.
Um leið var kreppa í Finnlandi vegna falls Sovétríkjanna og endaloka
viðskipta við þau.
Eftir að Gísli kom til Tampere bauðst honum að taka að sér
ráðgjöf hjá fjárfestingasjóði sem hét Finnish Venture Capital. Þetta
var ráðgjöf vegna einkavæðingar í fyrrum Sovétríkjunum og þó
sérstaklega í Rússlandi og Eystrasaltslöndunum. Sjóðurinn var í eigu
stærri samsteypu og honum fylgdu töluverðar eignir að sögn Gísla.
„Ég vann við þessa ráðgjöf í einkavæðingu með náminu,“ segir
Gísli. „Við sem unnum þarna fengum að lokum að kaupa starfsemina.
Það leiddi af sér ný tækifæri. Við fluttum sjóðinn til Helsinki og tókst
að auka verðmæti eignanna verulega auk þess sem við kynntumst
aðstæðum í viðkomandi löndum - og þar vakti Lettland og Ríga
sérstaka athygli mína. Mér fannst ég koma heim til Ríga.“
Það hefur ekki verið mikil fyrirferð á Gísla Þór í fjölmiðlum. Fyrirtæki hans er þó með yfir 8 þúsund manns í vinnu víða í Evrópu en miðstöð
viðskipta hans eru í borginni Ríga, höfuðborg Lettlands. Hér er hann fyrir utan Hotel D'Angleterre.