Frjáls verslun - 01.09.2007, Blaðsíða 33
F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 7 33
DAGBÓK I N
West Ham var sögulegt.
Það hófst með kaupunum á
argentísku landsliðsmönnunum
tveimur, Macherano og Teves.
Koma þeirra vakti miklar
væntingar þar sem West Ham
hafði verið eitt kraftmesta
liðið í úrvalsdeildinni árið
áður, endaði í 9. sæti eftir
tvö ár í 1. deild og lék til
úrslita í ensku bikarkeppninni.
En þegar Björgólfur keypti
West Ham fyrir 90 milljónir
sterlingspunda í nóvember í
fyrra var það bæði höktandi
og óstöðugt. Í ársbyrjun var
árangur liðsins enn slakur og
því var knattspyrnustjóranum
Alan Pardew sagt upp og Alan
Curbishley, leikmaður West
Ham á árum áður, ráðinn í hans
stað. Ólgan í kringum kaupin
á argentínsku leikmönnunum
gerði ekkert til þess að bæta
ástandið og var mikið fjallað
um það hvort löglega hefði
verið staðið að verki. Málið
fékk mikla athygli í breskum
fjölmiðlum og beindi athyglinni
frá því sem var að gerast á
vellinum, sem gerði hinar
fyrstu og sviptivindasömu
vikur Curbishley í starfi síður
en svo auðveldari. Liðið hélt
áfram að tapa, stundum með
miklum mun, og þegar 11
leikir voru eftir var það neðst í
deildinni. En þá fóru hjólin að
snúast. West Ham vann níu
leiki af þeim 11 sem eftir voru
og tókst að halda sæti sínu í
úrvalsdeildinni.
Hreint lygilegt
Varla er á nokkurn hallað þótt
því sé haldið fram að Carlos
Teves hafi verið þungamiðjan í
sigrum liðsins á þessu tímabili
sem nú er kallað „Björgunin
mikla” (The Great Escape).
„Þetta var hreint ótrúlegt.
Þið getið ímyndað ykkur
álagið sem hlýtur að hafa
verið á Eggerti Magnússyni
fyrsta árið,“ segir Björgólfur.
„Um tíma var eins og allt,
og þá meina ég allt, væri
okkur andsnúið, en svo komu
augnablik og leikir þegar manni
fannst engu líkara en að engill
héldi verndarhendi yfir okkur
og gætti þess að boltinn lenti
ekki í markinu okkar megin.
Hugsið ykkur, liðið sem var í
frjálsu falli sama hvernig á það
er litið, sneri við blaðinu og
vann andstæðinga á borð við
Manchester United og Arsenal,
bæði heima og í útileikjum, og
við fengum næstum fjórðung
stiganna úr leikjum á móti
liðum af þessu tagi. Það segir
allt sem hægt er að segja.“
Leiðin á toppinn
Augu Björgólfs ljóma þegar
hann er spurður um metnað
sinn fyrir hönd West Ham.
„Takmark mitt er margþætt.
Í fyrsta lagi sé ég gríðarlega
möguleika í byggingu 60-
70.000 sæta leikvangs í
grennd við lestarstöðina
í West Ham, rétt austan
við fjármálahverfið í City.
Stuðningsmenn okkar eru
óstöðvandi. Þeir standa með
liðinu í blíðu og stríðu. Ég
get varla lýst þeirri upplifun
að heyra þá syngja, hrópa og
hvetja liðið sitt – andrúmsloftið
er hreinlega rafmagnað.
Eftirspurn eftir miðum á
heimaleiki West Ham er mikil
og ég er sannfærður um það
að við getum fyllt 70.000
sæta leikvang. Líka hefur verið
sérstaklega ánægjulegt að
finna hversu vel okkur nýju
eigendunum hefur verið tekið.“
Þegar vonir og væntingar
á vellinum eru annars vegar
segir Björgólfur fyrir öllu að
gera skammtímasjónarmiðum
og langtímamarkmiðum
jafnhátt undir höfði. „Í
augnablikinu er markmiðið
að halda ferðinni áfram
af krafti og öryggi og
fikra sig síðan smátt og
smátt upp í hóp efstu liða
í deildinni. Stöðugleikinn
í liðinu er fyrir öllu, hann
gerir langtímauppbyggingu
auðveldari. Ef horft er til
næstu fimm ára gerum við
okkur vonir um eitt af efstu
sætunum í úrvalsdeildinni
og reglulega þátttöku í
Evrópukeppnum og að liðið
muni í framhaldi af því
leggja einlæga áherslu á að
vinna titla,“ segir Björgólfur
Guðmundsson af staðfestu og
bjartsýni.“
Björgólfur Guðmundsson, stjórnarformaður Landsbankans.