Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2007, Blaðsíða 46

Frjáls verslun - 01.09.2007, Blaðsíða 46
46 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 7 - Stjórnmálamenn sem núna eru 35(+/-) eru ef til vill í nánari tengslum við atvinnulífið en fyrri kynslóðir, segir reyndur fjölmiðlamaður. Margir þeirra búa að reynslu úr atvinnulífinu þótt ekki sé úr erfiðisvinnu. Hvaða fólk er þetta? En hverjir tilheyra hinni nýju kynslóð sem nú er áberandi í fjölmiðlum? Í ríkistjórn Geirs H. Haarde eru tveir ráðherrar sem falla undri þessa skilgreiningu á 35(+/-). Það eru þeir Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, og Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra. Síðan kemur allvænn hópur fólks sem verið hefur áberandi í þingstörfum og sveitarstjórnarmálum: Sigurður Kári Kristjánsson, Katrín Jakobsdóttir, Katrín Júlíusdóttir, Birkir Jón Jónsson, Ágúst Ólafur Ágústsson, Bjarni Benediktsson, Birgir Ármannsson, Róbert Marshall, Björn Ingi Hrafnsson, Gísli Marteinn Baldursson, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, Kjartan Magnússon, Oddný Sturludóttir, Dagur B. Eggertsson, og Svandís Svavarsdóttir er með í þessum hópi hinna nýju og veltalandi. Upptalningin er fjarri því tæmandi og á næstu árum eiga sjálfsagt einhverjir eftir að hverfa úr þessum hópi áberandi einstaklinga og aðrir á þeirra aldri að koma inn. En kynslóðaskiptin eru að verða greinileg. einsleitur hópur Tveir þeirra sem Frjáls verslun hefur rætt við hafa sagt: Takið eftir hvað þetta fólk er líkt í aðferðum sínum, alveg óháð flokkum. Bæði Samfylking og Sjálfstæðisflokkur laða að sér sams konar fólk. Og þetta á líka við um Framsóknarflokkinn að nokkru, en miklu síður Vinstri græn. En það er ekki klár stéttamunur á flokkunum. Það er ef til vill áherslumunur í málflutningi og ósamkomulag um sum mál – eins og til dæmis Evrópumál – en fólkið er glettilega líkt og býr að svipaðri menntun. Kemur oft úr sömu skólunum og hefur tekið þátt í sömu ræðukeppnunum. Og hvað er svona líkt? Og þá koma upp viss atriði. Unga fólkið í pólitíkinni á að baki markvisst starf í stjórnmálaflokkunum, í ungliðahreyfingum og ekki síst í prófkjörum. Það er skólað í flokksstarfinu. Þessu fylgir einnig að hin nýja kynslóð virðist meira upptekin af hinni pólitísku aðferð en sjálfri pólitíkinni. Unga fólkið kann að stíga pólitíska dansinn meðan allir dansa í takt og fylgja reglunum. En ef einn refur skýst inn á dansgólfið riðlast allur dansinn. foringjadýrkun Annað er tilhneiging til foringjadýrkunar. Meðal ungra sjálfstæðismanna beindist þessi dýrkun að Davíð Oddssyni og hann er enn sá sem allir líta upp til. Í Samfylkingu beinist þessi dýrkun að Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og í Framsóknarflokknum að Halldóri Ásgrímssyni. Vinstri græn borgarbörn eiga hins vegar að sögn erfiðara með að líta á Steingrím J. Sigfússon sem leiðtoga sinn. Fullyrt er að það sama eigi við um Össur Skarphéðinsson. Þeir tilheyra liðinni lopapeysu-stúdenta-pólitík og eru ekki eins töff nú og þeir voru á æskuárunum. - Margir af hinni nýju kynslóð virðast hugsa sem svo: Ég finn mér leiðtoga og fylgi honum meðan ég er að klifra þrep af þrepi í flokknum og get svo velt leiðtoganum þegar ég er sjálf/ur kominn á toppinn, segir einn viðmælandi Frjálsrar verslunar. reglur um valdabrölt Og þá þriðja sameiginlega einkenni hinnar nýju kynslóðar: Það er metnaðurinn. Unga fólkið er upptekið af því að vinna sig áfram í flokknum, mynda bandalög, fara í prófkjör og reyna að komast nokkrum sætum hærra en síðast. Eða að verða aðstoðarfólk ráðherra, komast í borgarstjórn, komast í ráðherrastól og komast í formannsslag. En engum hefur dottið í hug að pólitískur frami fáist ókeypis Það verður að byrja á að sleikja frímerki á flokksskrifstofunni og vinna sig upp úr þeirri stöðu. k y n s l ó ð a s k i p t i í takið eftir hvað þetta fólk er líkt í aðferðum sínum, alveg óháð flokkum. Bæði samfylking og sjálfstæðisflokkur laða að sér sams konar fólk. Dagur B. Eggertsson, Svandís Svavarsdóttir og Björn Ingi Hrafnsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.