Frjáls verslun - 01.09.2007, Blaðsíða 42
42 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 7
einn. En það var ekkert óheiðarlegt við
þetta,“ segir Ingibjörg.
skortur á samstöðu
Signý Jóhannesdóttir bendir á að meðal
verslunarmanna gnæfi Verslunarmannafélag
Reykjavíkur - VR - yfir önnur félög. Nær
90 prósent af félögum landsambandsins eru
félagar í VR. Og VR er að mati Signýjar vel
skipulagt og samstætt félag. Það er því ekki
erfitt að ná samstöðu innan Landsambands
íslenskra verslunarmanna ólíkt því sem er hjá
Starfsgreinasambandinu.
Iðnaðarmenn hafa með sama hætti lengi
haft áhrif innan ASÍ umfram það sem
félagafjöldinn segir til. Og þegar þessi tvö
sambönd – iðnaðarmenn og verslunarmenn
– leggja saman kemur það í hlut sjálfs
verkalýðsins í verkalýðshreyfingunni að láta
í minni pokann.
„Okkur gengur bara illa að standa saman,“
segir Signý.
segir ekki öðrum hvað þeir eigi að kjósa
Kristján Gunnarsson, formaður Starfs-
greinasambandsins, tekur undir margt
af því sem Signý segir. Það er ekki sama
samstaðan í SGS og er meðal iðnaðarmanna
og verslunarmanna.
„Ég get ekki farið á milli manna og
sagt þeim hvað þeir eigi að kjósa,“ segir
Kristján. „Þeir virðast gera það í hinum
samböndunum. Ég segi bara hvað ég ætla að
kjósa en sný ekki upp á handleggina á fólki
og segi því að kjósa eins og ég. Ég reyndi að
þruma yfir okkar fólki fyrir ASÍ-þingið en
það er erfitt að segja öllum fulltrúunum frá
53.000 manna samtökum að gera nú allir
eins.“
Kristján segir að þegar að kosningu
kom hafi ekki allir fulltrúarnir frá
Starfsgreinasambandinu verið í salnum og
þannig hafi atkvæði glatast. Fulltrúar hinna
sambandanna séu greinilega undir meiri
aga. Og hann minnir á að hann hafi sjálfur
fallið fyrir Ingibjörgu R. Guðmundsdóttur í
varaforsetaslag vegna þess að ekki mættu allir
til að kjósa.
„Signý verður líka að horfast í augu við
það að hún er ekki allra,“ segir Kristján. „Það
vildu ekki allir af okkar fólki kjósa hana. Hún
kemur þrátt fyrir allt frá litlu félagi. Ekki það
að full samstaða hefði trúlega ekki dugað til
hvort eð er en það hefði verið styrkur fyrir
okkur að geta sýnt samstöðu.“
forsetaslagur í vændum
Og hvað svo? Hvenær verður næsta orrusta?
Við spyrjum Signýju Jóhannesdóttur að því:
„Það liggur í loftinu að það verða átök
um forystuna á næsta landsfundi að ári,“
segir Signý. Þegar kosið var milli hennar
og Ingibjargar R. Guðmundsdóttur núna
var gefið í skyn að þetta væri síðasta árið
sem Ingibjörg byði sig fram til varaforseta.
Því töldu margir ósanngjarnt að skipta um
varaforseta nú. Að ári kemur upp ný staða
þegar finna þarf nýjan varaforseta.
„Mér finnst líka liggja í loftinu að Grétar
Þorsteinsson hyggist ekki halda áfram sem
forseti, segir Signý. „Hann hefur ekki sjálfur
sagt að hann ætli að hætta en það er samt
tilfinning mín að hann verði ekki áfram,“
segir Signý.
Reynist það rétt þarf að finna
bæði varaforseta og forseta á næsta ári.
Það hefur verið tekist á um minna í
verkalýðshreyfingunni til þessa.
Ingibjörg R. Guðmundsdóttir segir
að á næsta ári hætti hún sem formaður
Landsambands íslenzkra verzlunarmanna.
Það muni gerast 20. september árið 2008.
Eftir það hyggst hún vinna fyrir VR. Það er
sem sagt eftir tæpt ár og skömmu áður en nýr
forseti ASÍ verður væntanlega kosinn. Ætlar
Ingibjörg að bjóða sig fram til forseta að ári
og verða fyrsta konan í forsetaembætti ASÍ?
Þeirri spurningu svarar hún einfaldlega: „Eitt
ár er langur tími.“
forsetaefni
En ætlar Signý Jóhannesdóttir að bjóða sig
fram næst?
„Það veit ég ekkert um. Við erum núna að
vinna að sameiningu verkalýðsfélaganna við
Eyjafjörð. Við vitum ekki hvað kemur út úr
þeirri vinnu en það er verkefnið núna og svo
eru lausir samningar um áramót og hjá ríki
og sveitarfélögum í mars svo það er í mörgu
öðru að snúast en að hugsa um kjör á forystu,
segir Signý en útilokar ekkert.
„Það sem við vitum er að það verða miklar
breytingar á forystunni. Það liggur í loftinu
en hvernig þau mál fara vitum við ekkert
um,“ segir Signý.
Kristján Gunnarsson, formaður SGS,
spáir því einnig að slagur verði um forystuna
á næsta ári.
„Ég veit það eitt að hvorki ég né Signý
verðum forsetar. Það er alveg víst,“ segir
Kristján. „Grétar Þorsteinsson er góður
drengur og það veltir honum enginn en
þegar hann hættir - og mig grunar að það
verði á næsta ári - þá verða átök bæði um
forsetann og varaforsetann. Hvernig það
fer veit ég ekki. Allir sem ég hef hingað til
mælt með hafa fallið. Við sjáum hvað gerist
næst.“
erfiðar kjaraviðræður
En hlutverk verkalýðshreyfingarinnar er
ekki að standa í innbyrðis baráttu og slag
um áhrifastöður. Hvað með baráttuna fyrir
bættum kjörum? Þar spáir Signý heitum
vetri. Kjarasamningar stórs hluta launþega
lausir um áramót og í mars.
á t ö k i n í a s í
Kristján Gunnarsson:
„Við hjá sgs finnum fyrir því að
okkur hefur verið hafnað. Það
vilja ekki allir hafa okkur við
borðið og þó erum við stærsta
sambandið innan asÍ og það
sem vex örast. Það getur komið
að því að við verðum ekkert
við borðið; kjósum bara með
fótunum og göngum út.“
siGný jóhannesdóttir:
„Það eru margir smákóngar,
sumir ungir en þó einkum
gamlir. Þeir hafa ekki allir
mestan áhuga á samstöðu.
Þetta er sundurleit hjörð.“