Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2007, Blaðsíða 48

Frjáls verslun - 01.09.2007, Blaðsíða 48
48 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 7 Nýríkir auðmenn hafa sprottið upp, gömlum sjálfstæðismönnum til armæðu. Þjóðfélagið er gjörbreytt á tæpum tveimur áratugum og margar þessara breytinga er hægt að rekja til aukins frelsis á valdatíma Davíðs Oddssonar. - Sjálfstæðisflokkurinn hefur misst pólitísk tengsl við framsæknustu fyrirtækin í landinu. Áður voru fyrirtækin og flokkurinn nátengd en nú eru sjálfstæðismenn búnir að eyða miklum kröftum síðustu árin í að berja á nýjum kapítalistum. Það hefur leitt af sér að það myndaðist tómarúm milli fyrirtækja og stjórnmála en nú er Samfylkingarfólkið í óðaönn að fylla þetta tómarúm. Það eru að myndast náin tengsl milli Samfylkingar og útrásarfyrirtækjanna. Þetta á eftir að hafa mikil áhrif á íslensk stjórnmál á næstu árum, segir einn viðmælandi. gerendur fremur en hugsjónamenn Um leið er bent á að það er ört minnkandi munur á ungu samfylkingarfólki og ungu sjálfstæðisfólki. Í báðum flokkum eru stjórnmálamenn sem vilja vera gerendur. Þeir vilja koma einstökum málum fram. Þarna er bent á ráðherrana Guðlaug Þór Þórðarson og Björgvin G. Sigurðsson sérstaklega. Þeir leiti uppi einstök vandamál og reyni að leysa úr þeim. Ná árangri svo fólk taki eftir. Guðlaugur veðjar á lyfjaverslunina í þessu skyni, Björgvin á neytendaverndina. Þetta einkennir nýju kynslóðina óháð flokkum. Um leið virðist gömul og góð fyrirgreiðslupólitík minna áberandi. Einn viðmælandi okkar sagði að Davíð Oddsson hefði tæmt biðstofur fyrirgreiðslupólitíkusanna. Líka sína eigin biðstofu og hún var þéttsetin. Þetta er þróun sem er hinni ungu kynslóð í hag svo lengi sem það heldur. ungur ávítar, gamall víkur Þessi munur er meðal annars ljós af samanburði á vinnubrögðum í anda Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar og Alfreðs Þorsteinssonar annars vegar og ungliðanna hins vegar. Vilhjálmur og Alfreð af þeirri kynslóð sem var vön að gera vinum og vandamönnum greiða; láta einn fá bitling hér annan stöðu þar. Þetta gróf smám saman undan trúnaði milli Vilhjálms og ungliðanna. Gamla kynslóðin fylgir öðrum leikreglum en sú nýja. Þarna kom líka berlega í ljós að unga fólkið í Sjálfstæðisflokknum kunni best við málflutning Svandísar Svavarsdóttur frá Vinstri grænum. „Gjör rétt, þol ei órétt!“ er eitt af gömlu slagorðum sjálfstæðismanna og nú var það Svandís – þessi úr óvinaliðinu – sem benti á að borgarstjórnarmeirihlutinn færi ekki rétt að í Orkuveitumálinu. Þarna kemur aftur að þessu sama atriði: Leikreglurnar skipta hina nýju kynslóð miklu máli. Það má ekki ota sínum tota og hygla sínum skjólstæðingum nema það sé í samræmi við reglurnar. Svandís sagði að ekki væri farið eftir reglunum og þá fyrst tók unga fólkið við sér. Mikil áhrif Hannesar Hólmsteins Um leið situr ungt fólk í Sjálfstæðisflokknum undir háðsglósum fyrir að vera bláeygt og saklaust. Og það í miklu ríkari mæli en til dæmis samfylkingarfólkið. Og sjálfstæðisfólkið virðist líka meira upptekið af kenningum og hugmyndum. - Skýringin á þessu heitir Hannes Hólmsteinn Gissurarson, segir einn viðmælenda okkar. Hannes hefur haft gríðarlega áhrif á þessa kynslóð – ásamt Davíð Oddssyni. Í augum ungu kynslóðarinnar er Hannes Hólmsteinn sigurvegari í hugmyndabaráttunni milli frjálshyggju og sósíalisma. Þetta hefur gert unga fólkið óþarflega sjálfsöruggt. Um leið og talað er um reynsluleysi og sakleysi er fullyrt að hin nýja kynslóð sé metnaðargjörn og einstaklingarnir fylgnir sér. Það sem gildir er að berjast til metorða. Í fljótu bragði virðist sem þessi sjónarmið rekist á. pólitíkin eins og hún er Þetta þykir þó samrýmanlegt ef haft er í huga að innan Sjálfstæðisflokksins hefur heil kynslóð vaxið upp í skjóli Davíðs Oddssonar. Hann sá um að berja á andstæðingunum. Og einnig hitt að þessi kynslóð er vön því að allir fylgi reglum í flokksstarfinu. Þar takast á hópar eða klíkur: Gísli Marteinn er með sitt fólk úr Breiðholtinu og aðrir fylgja Birni Bjarnasyni og svo framvegis, en allir fylgja reglunum. Starfið fyrir flokkinn hefur oft byrjað í skóla, jafnvel í grunnskóla, en oftast í menntaskóla. Þessar lýsingar minna mjög á starfið í valdaflokkum í öðrum norrænum ríkjum. Þar er að vísu oftast um sósíaldemókrata að ræða en aðferðirnar eru þær sömu: Hópur fólks myndar flokkskjarna; fólkið í kjarnanum kemur þar til starfa þegar á ungaaldri; það æfir sig innanflokks í pólitískri bardagalist, það berst í góðu um stöður á framboðslistum og um valdastöður; og er að lokum orðið svo vel þjálfað að það getur stjórnað landinu. Og af og til er einhver stunginn í bakið af illri nauðsyn og í bróðerni og hverfur þá af leikvelli. Kynslóðin 35(+/-) er ef til vill bara til merkis um að íslensk pólitík fylgir nú loksins alþjóðlegum stöðlum um leikreglur, starfsaðferðir og bræðravíg. k y n s l ó ð a s k i p t i í p ó l i t í k Við höfum fangað jólaandann í nýjar og glæsilegar umbúðir – sem við nefnum Kaffiskrín – og bíður andinn nú eftir því að honum verði hleypt út. Í Kaffiskrín er tilvalið að setja úrval af vörum frá Kaffitári sem munu gleðja alla kaffiunnendur. Starfsfólk Kaffitárs mun veita frekari upplýsingar um þessa jólagjöf sælkerans í kaffihúsum/verslunum Kaffitárs eða í síma 420 2700. www.kaffitar.is Hleyptu jólaandanum út - leggur heiminn að vörum þér h2 h ön nu n Hvað um það? innan viðskiptalífsins á Íslandi er farið að ræða um þessa kynslóð sem harða og heimtufreka – en að sama skapi duglega og metnaðarfulla. sumir taka svo djúpt í árinni að segja að hún geri meiri kröfur til annarra en sjálfrar sín.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.