Frjáls verslun - 01.09.2007, Page 32
32 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 7
DAGBÓK I N
Björgólfur segir í viðtali við
Moment, sem Landsbankinn
gefur út, að eins og margir
aðrir strákar hafi hann
spilað fótbolta langt fram
á unglingsár. Hann æfði
með KR í Reykjavík og varð
Íslandsmeistari með liði sínu
í yngri flokkunum. „Ég hætti
samt iðkun áður en ég kom
upp í meistaraflokk. Það var
svo margt fleira sem heillaði
mig þá, eins og nú. Margir vina
minna héldu hins vegar áfram
að spila og urðu síðarmeir
kjarninn í sigursælu liði KR
um og eftir 1960. Þeir urðu
líka Íslandsmeistarar nokkrum
sinnum, ég man ekki hversu
oft. Þetta tímabil í sögu
félagsins er reyndar oft kallað
gullöldin,“ segir Björgólfur.
Á þessum tíma hafði KR
unnið sér rétt til þátttöku í
Evrópukeppni félagsliða. Fyrsti
leikurinn var við Liverpool
á Anfield Road og var það
jafnframt fyrsti Evrópuleikur
Liverpool. „Ég man eftir
þessum leik. Nokkrir í hópnum
voru byrjaðir að fylgjast með
ensku knattspyrnunni og ég
man að okkur þótti mikið til
okkar félags koma, að mæta
þessum ensku risum.“
Björgólfur rifjar upp að
West Ham hafi verið áberandi
á þessum árum og kveðst
þá þegar hafa verið orðinn
aðdáandi liðsins. „Þetta var
lið sem fólki varð virkilega
tíðrætt um. Þeir urðu enskir
bikarmeistarar árið 1964 og
nokkrir liðsmanna, einkum
Bobby Moore, Geoff Hirst
og Martin Peters, gegndu
þýðingarmiklu hlutverki í
landsliðinu þegar Englendingar
urðu heimsmeistarar tveimur
árum síðar. Þeir voru stjörnur
í okkar augum og fyrirmyndir
og svo sannarlega flinkir á
vellinum.“
Félag með mikla sögu
Björgólfur segir að þetta
tímabil hafi verið gullöld West
Ham, alveg eins og hjá KR.
„Eða, við getum orðað það
þannig að þetta hafi verið
fyrstu gullaldarár West Ham.
Síðara gullaldartímabilið er
í þann mund að renna upp,“
segir hann brosandi.
Björgólfur segir að ensku
knattspyrnuliðin séu stolt af
arfleifð sinni og beri feikilega
virðingu fyrir leikmönnunum
sem bæði öfluðu sjálfum sér
og félögunum sínum frægðar á
árum áður.
„Ég gat því ekki annað
en orðið spenntur þegar ég
fór á leiki West Ham og hitti
fyrrverandi leikmenn á borð við
Sir Trevor Brooking og Billy
Bonds. Báðir mæta á flesta
heimaleiki West Ham og eru
nánast í dýrlingatölu meðal
aðdáenda liðsins.“
„Mér hefur alltaf þótt
fótbolti fram úr hófi spennandi
og óútreiknanlegur leikur og ég
er ekki hissa á því að hann hafi
náð jafnmikilli hylli um heim
allan og raun ber vitni. Aldnir
sem ungir, konur jafnt sem
karlar og af öllum kynþáttum
dá þessa íþrótt. Það stundar
hana, horfir á hana í sjónvarpi
og styður liðið sitt af lífi og
sál. Þannig að þegar tækifæri
gafst til þess að eignast liðið
fyrir ári síðan, sá ég strax
að þarna gæti ég sameinað
áhuga minn á fótbolta og
viðskiptum. Fáar atvinnugreinar
í afþreyingargeiranum hafa
vaxið jafnmikið og fótbolti
og því hugsaði ég með mér,
þetta er gott viðskiptatækifæri
og möguleiki á því að gera
eitthvað nýtt og spennandi.“
Björgólfur bendir líka á að
West Ham sé að mörgu leyti
einstakt félag með mikla sögu
að baki. Unglingastarf þess er
kraftmikið og hefur á síðasta
áratug lagt rækt við leikmenn
á borð við Frank Lampard, Rio
Ferdinand, Joe Cole og Michael
Carrick og fleiri landsliðsmenn.
Það má með sanni segja, að nú
þegar útlendingar ráða ríkjum
í breskri knattspyrnu sé West
Ham eitt „enskasta“ liðið í
úrvalsdeildinni.
Ótrúlegur viðsnúningur
Síðasta keppnistímabil hjá
Sameinar áhugann á viðskiptum og knattspyrnu
„Björgólfur Guðmundsson, stjórnarformaður Landsbankans, keypti enska fótboltafélagið West Ham United í nóvember í
fyrra. Þau viðskipti komu engum á óvart – að minnsta kosti ekki þeim sem þekkja manninn á bak við kaupin. Björgólfur
er kunnur að því hérlendis að vilja láta gott af sér leiða – ekki síst fyrir dálæti sitt á menningarlegum og listrænum
viðfangsefnum og góðgerðarmálum – og var kjörinn vinsælasti auðmaðurinn í útbreiddasta dagblaði landsins í fyrra. Einna
frægastur er hann samt fyrir áhuga sinn á íþróttum og þar er fótboltinn efstur á blaði.
1. nóvember
Hér kemur skemmtilegt viðtal Moments, blað Landsbankans, við Björgólf Guðmundsson:
Björgólfur hefur haldið með West Ham frá unga aldri.