Frjáls verslun - 01.09.2007, Síða 45
F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 7 45
einkenni - einkenni sem ekki eru bundin við flokka endilega heldur
starfsaðferðir og stíl?
Össur Skarphéðinsson talar um Morfiskynslóðina og vísar þar
til þess að fyrstu æfingabúðir kynslóðarinnar sem nú er 35 (+/-)
er einmitt ræðukeppni framhaldsskólanna. Er það nógu góður
bakgrunnur fyrir upprennandi stjórnmálamenn?
Ungt og metnaðarfullt
Er Morfiskynslóðin fær um að stjórna landinu? Eða tekur nú við
tímabil þar sem eitt Orkuveitumálið rekur annað með bræðravígum,
svikum og pólitískum fléttum, sem fara úr böndunum? Við ætlum
að líta á liðið.
Allir sem Frjáls verslum hefur rætt við um 35(+/-) kynslóðina eru
á einu máli um tvö atriði.
Annað er:
- Það er að vaxa úr grasi ný kynslóð stjórnmálamanna sem hefur
tamið sér annan stíl en þeir sem nú eru komnir á miðjan aldur eða
eru þaðan af eldri.
Og hitt er:
- Metnaður þessa fólks er ofboðslegur.
En lítum betur á þessa nýju metnaðarfullu kynslóð.
Prúð og frjálsleg í fasi
Þessi nýja kynslóð ku líta stjórnmálin öðrum augum en hin fyrri og
þessi nýja kynslóð hefur átt fleiri kosta völ bæði hvað varðar menntun
og atvinnu en þeir sem fæddust á Viðreisnarárunum og fyrir þann
tíma. Íslendingar hafa í haust kynnst nýrri og metnaðarfullri kynslóð
stjórnmálamanna - og margir vita ekki hvort þeir eiga að hlæja eða
gráta.
Þegar spurt er nánar út í þessa kynslóð þá eru viðmælendur
okkar merkilega ósammála um flest annað en að kynslóðin sé ný og
metnaðarfull. Eldri viðmælendur segja að þetta sé kynslóð sem vaði í
peningum án þess að vita að sumir hafa ekki alltaf haft það gott.
- Nýja kynslóðin hefur alist upp í skjóli velstæðra og menntaðra
foreldra – og í skjóli Lánasjóðs íslenskra námsmanna, segir gamall
þingmaður. - Auðvitað virkar þetta fólk frjálslegra og glæsilegra og
gáfaðra en við sem vorum fyrsta kynslóðin sem ekki ólst beinlínis
upp í moldarkofum.
Þannig eru raddir hinna eldri. Hinir yngri segja:
Það er enginn munur á menntun og þjóðfélagsstöðu þeirra sem
núna eru að koma fram og þeirra sem verið hafa við völd. Þjóðfélagið
hefur breyst og þess vegna taka menn eftir kynslóðaskiptum núna.
k y n s l ó ð a s k i p t i í p ó l i t í k
Fulltrúar 35 (+/-) kynslóðarinnar eru m.a. (talið frá vinstri):
Dagur B. Eggertsson, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, Björn Ingi
Hrafnsson, Kjartan Magnússon, Svandís Svavarsdóttir, Gísli
Marteinn Baldursson og Hanna Birna Kristjánsdóttir.