Frjáls verslun - 01.09.2007, Page 54
54 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 7
Frjáls verslun birtir hér þrjár
fróðlegar greinar um útrás
íslensku fyrirtækjanna. Þetta eru
greinar sem unnar eru upp úr
lokaverkefnum þriggja nemenda
í meistaranámi við viðskipta- og
hagfræðideild Háskóla Íslands.
Þeir gerðu rannsóknir í
tengslum við lokaverkefnin
en þær eru hluti af hinu
viðamikla rannsóknarverkefni
Viðskiptafræðistofnunar Háskóla
Íslands á útrás íslenskra
fyrirtækja. (INTICE). Það verkefni
felst í mörgum stærri og smærri
rannsóknum og er ætlað að
gefa smám saman betri og meiri
upplýsingar um útrás íslenskra
fyrirtækja.
Nemendurnir þrír sem birta
hér greinar sínar eru Dögg
Gunnarsdóttir, Helga Harðardóttir
og Snædís Baldursdóttir. Dögg
skrifaði um íslenskan stjórnunarstíl
í útrásarfyrirtækjunum, Helga
um hraða ákvarðanatöku í
fyrirtækjunum og Snædís um
val á lykilstjórnendum við
erlendar starfsstöðvar íslenskra
útrásarfyrirtækja.
snædís Baldursdóttir skrifaði um val á lykilstjórnendum við erlendar starfsstöðvar íslenskra útrásarfyrirtækja. Hún kemst að
þeirri niðurstöðu að við ráðningar þeirra
vega persónueinkenni þyngra en menntun
og reynsla. Ennfremur kemur í ljós að ef
staða losnar erlendis er oftast byrjað að leita
að eftirmanni hans innan fyrirtækisins og
tiltölulega auðvelt þykir að finna góðan
íslenskan stjórnanda ef svo ber undir.
Rannsóknin var meistaraverkefni
greinarhöfundar í mannauðsstjórnun
við Háskóla Íslands og jafnframt hluti af
viðamiklu rannsóknarverkefni Viðskipta-
fræðistofnunar Háskóla Íslands á útrás
íslenskra fyrirtækja (INTICE). Rann-
sóknarverkefnið felst í mörgum stærri og
smærri rannsóknum og er ætlað að gefa
smám sama betri og meiri upplýsingar um
útrás íslenskra fyrirtækja.
Markmið rannsóknarinnar var að öðlast
innsýn í hvernig staðið er að ráðningum
lykilstjórnenda íslenskra útrásarfyrirtækja.
Sjónum var beint að erlendum starfs-
stöðvum. Meðal annars var kannað hvernig
lykilstjórnendur eru valdir með það í huga
hvort þeir komi úr öðrum störfum innan
fyrirtækisins eða utan frá og hvað einkenni
öfluga stjórnendur.
Jafnframt var val á stjórnendum sett
í samhengi við yfirtökur á erlendum
fyrirtækjum. Rætt var við níu stjórnendur
hjá Actavis, Glitni, Kaupþingi, Lands-
bankanum, Marel, Promens og Össuri. Við-
mælendur voru valdir út frá reynslu þeirra
af stjórnendaráðningum.
Þeir stjórnendur sem rætt var við
voru almennt sammála um að auðvelt
væri að meta persónuleika umsækjanda
strax frá byrjun. Þeir sögðust finna mjög
fljótt hvort hann hefði það sem þyrfti
til að sinna starfi sínu nógu vel. Þeir
töldu persónueinkenni og hugarfar öflugs
stjórnanda skipta mun meira máli en
menntun og reynslu.
Einn stórnendanna orðaði það
svo: „Þegar upp er staðið er þetta bara
spurningin um hvort ég geti hugsað mér
að vinna með viðkomandi og hvernig er að
sitja með honum og spjalla. Þetta er ekkert
flóknara.“
Einnig töldu þeir mikilvægt að
umsækjandi gæti tileinkað sér þau gildi
sem fyrirtækið starfar eftir. Annars gæti
hann ekki fallið inn í hópinn: „Það er
klárlega einn af þeim hlutum sem skipta
máli, meðvitað eða ómeðvitað, þegar fólk
er ráðið. Hvers konar vinnustað við viljum
búa til,“ sagði einn stjórnendanna.
SNæDÍS BALDURSDóTTIR:
Val á lykil-
STjórnendum
Snædís Baldursdóttir kemst að því í rannsókn sinni að
persónueinkenni vegi þyngra en menntun og reynsla
við val á lykilstjórnendum í erlendum starfsstöðvum
íslenskra útrásarfyrirtækja.
TexTi: SnædíS baldurSdóttir • Mynd: geir ólafSSon
Útrásin
rannsökuð
Snædís
Baldursdóttir.
Helga
Harðardóttir
Dögg
Gunnarsdóttir
Stjórnun útráSin