Frjáls verslun - 01.09.2007, Blaðsíða 64
64 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 7
s t j ó r n u n
Sævar Freyr Þráinsson forstjóri Símans, fæddist á Akranesi 1971 þar sem hann ólst upp og bjó allt þar til hann hélt til
náms í viðskiptafræði við Háskóla Íslands eftir
að hafa lokið viðskipta- og hagfræðinámi frá
Fjölbrautaskóla Vesturlands.
Sævar segist snemma hafa fengið áhuga
á viðskiptum, en sem unglingur stofnaði
hann og rak fyrirtæki með bræðrum sínum
sem seldi ávexti, grænmeti og heilsusælgæti
á útimarkaði á Akranesi yfir sumartímann.
Meðfram háskólanámi starfaði Sævar í
framleiðslufyrirtæki föður síns en hefur annars
starfað samfleytt hjá Símanum í 12 ár, að
undanskildu markaðsstjórastarfi hjá Nútíma
samskiptum í hálft ár. Sævar hefur meðal
annars komið að sölu- og markaðsmálum hjá
Símanum, stýrt lausnaþróun fyrirtækisins og
gegnt starfi framkvæmdastjóra farsímasviðs og
nú síðast framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs.
Hver eru helstu verkefnin sem liggja fyrir?
„Við stefnum að því að sinna alhliða ICT
þjónustu eða Information Communication
Technology eða fjarskipta- og upplýsingatækni
fyrir fyrirtæki af „íslenskri stærð“, þ.e. 250
starfsmenn eða færri. Stóru símafyrirtækin
úti í heimi líta á þetta sem of smáar einingar
þannig að það taki því ekki að sinna þeim. Við
þekkjum þessa stærð mjög vel hér að heiman
og erum hagvanir á þessum markaði og
sjáum mörg tækifæri þar á Norðurlöndum og
Bretlandi. Á einstaklingsmarkaðinum vinnum
við út frá stefnu sem heitir TIME (Telco,
Internet, Media & entertainment, Electronics)
sem gengur út á það að línurnar á milli ólíkra
þjónustuþátta eru sífellt að verða óskýrari og
samþáttun í fjarskiptum, samskiptaþjónustu
og afþreyingu er framtíðin.“ segir Sævar.
eftirsóttasti vinnustaðurinn
Næstu vikurnar ætlar Sævar að leggja
áherslu á að stilla saman strengina með
stjórnendum sínum í stefnu og áætlanagerð
Símans fyrir næstu ár. „Skýr fókus og
markmiðasetning er að mínu mati
lykillinn að árangri og stjórnendur
Símans munu ávallt leita leiða við að
vera leiðandi fyrirtæki á markaði.“
Hann segist stoltur yfir þeim meðbyr
sem hann finnur frá starfsmönnum og
mun leggja áherslu á þarfir starfsmanna
og vill gera Símann að eftirsóttasta
vinnustað landsins með því að búa því
spennandi starfsumhverfi, áhugaverð
störf og að tryggja jafnvægi á milli
einkalífs og vinnu. Þá hefur fyrirtækið
lagt mikla rækt við það síðastliðin ár
að efla stjórnendur sem Sævar segir að
skili sér í góðri þjónustu til starfsmanna
og þaðan aftur til viðskiptavinanna.
Hvað einkennir góðan stjórnanda?
„Það er að kunna að hlusta á fólk
og gefa því tækifæri á að nýta sína
hæfileika. Það er auðvitað ekki alltaf
svo að fólk fái öllum hugmyndum
sínum framfylgt, en mikilvægt er að
efla umboð fólks til athafna. Einnig
að hafa innri kraft til framkvæmda og
það sem ég kalla stundum að geta séð
fyrir horn, að vita hvers konar framtíð
ætlunin er að skapa,“ segir Sævar.
málaralist og knattspyrna
„Já, ég hef mikinn áhuga á knattspyrnu
og dunda mér við að mála í frístundum,
er reyndar ekki farinn að sýna neinum
nema konunni afraksturinn en það
kemur sjálfsagt að því einn daginn.
Við eigum þrjú börn saman, tólf ára
strák og sex og fjögurra ára gamlar
stelpur svo það er nóg að gera. Síðan
finnst mér gaman að fara í gönguferðir
og þar sem ég er nú aftur fluttur upp
á Akranes bregð ég mér stundum upp
á Akrafjallið, enda ekki langt að fara,“
segir Sævar að lokum.
Stillir saman strengi
Sævar Freyr Þráinsson, nýr forstjóri Símans.
SæVAR FREYR ÞRÁINSSON, NýR FORSTjóRI SÍMANS: