Frjáls verslun - 01.09.2007, Blaðsíða 78
78 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 7
„Eitt augnablik stendur óneitanlega upp úr í þeim mörgu og góðu
jólaminningum sem ég á,“ segir Hjördís Ásberg, framkvæmdastjóri
Manns lifandi. „Ég var þá fimm ára gömul og bjó norður á
Húsavík. Fjölskyldan er heima að taka upp jólapakkana á
aðfangadagskvöld þegar mamma þarf allt í einu að bregða sér
frá. Eftir smástund er mig farið að lengja eftir henni og því fer ég
fram að leita og niður stiga. Þegar ég er komin í miðjan stigann
birtist mamma með bláan og silfurlitan dúkkuvagn, sem bróðir
hennar hafði keypt í útlöndum. Ég stóð hreinlega á öndinni og
hrópaði upp yfir mig af gleði og hrifningu þarna í stiganum. Enginn
dauður hlutur hefur náð að gleðja mig jafn mikið síðar og þessi
dúkkuvagn. Strax og veður leyfði fór ég út að spássera með
vagninn og vakti auðvitað athygli. Þetta var flottasti dúkkuvagn
á Húsavík og þótt víðar væri leitað. Móðurbróðir minn var í
millilandasiglingum og gat því keypt hluti sem ekki fengust í
verslunum. Sonur minn fékk að leika sér með dúkkuvagninn síðar,
Hjördís Ásberg, framkvæmdastjóri
Manns lifandi:
Heimsins flottasti
dúkkuvagn
Jólin koma
en ég þurfti þó fljótlega að taka hann af honum, enda sá álíka
mikið á vagninum eftir nokkra daga í hans meðförum og öll árin
fram að því til samans. Mig minnir að hann hafi aðallega notað
vagninn í einhverja ærslaleiki og til þess að klessa á. Svo fékk
dóttir mín að leika sér með hann eftir að hún fæddist. Vagninn er
enn á vísum stað, þótt ekki sé hann uppi við. Ég hef bara ekki
tímt að henda honum.“
„Ég man vel eftir áramótunum þegar
ég varð 18 ára, en ég á afmæli á
gamlársdag,“ segir Auður Þórisdóttir
endurskoðandi. „Á þessum tíma ætlaði
ég mér að verða heilbrigðisstarfsmaður
og vann því á sjúkrahúsum með
skóla. Ég var beðin um að taka að
mér vakt á gamlárskvöld og eyddi
þar með áramótunum og nýársnótt
fjarri fjölskyldunni og vinunum með
sjúklingum á Grensásdeild. Ég borðaði
með fjölskyldunni og mætti síðan til vinnu
og man að mér þótti leiðinlegt að þurfa
að fara. Þeir sjúklingar höfðu farið heim
sem gátu, en þeir sem voru rúmfastir
urðu eftir í félagsskap starfsfólksins. Ég
hafði auðvitað ekki hugsað mér að eyða
áramótunum og 18 ára afmælinu með
þessum hætti, en þrátt fyrir það eru þessi
áramót í minningunni jákvæð og góð
upplifun sem mér verður oft hugsað til.
Þó svo ég hafi seinna meir tekið U-beygju
í starfsvali var þessi reynsla mín sem
heilbrigðisstarfsmaður mjög þroskandi
og hjálpaði mér til að átta mig á því sem
skiptir máli í lífinu.“
Auður Þórisdóttir, forstöðumaður endurskoðunarsviðs KPMG:
Áramót og afmæli á Grensásdeild
Hjördís Ásberg.
Auður Þórisdóttir.