Frjáls verslun - 01.09.2007, Blaðsíða 85
Lífsstíll
F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 7 85
aðeins fyrir tvo fullorðna aftur
í, en þannig fer líka vel um
þá og innstig/útstig í aftursæti
þokkalega auðvelt. Skottið er
rúmgott og stórt og gott hólf
undir því þar sem varadekk er
venjulega, en því er ekki fyrir
að fara í þessum bíl, aðeins
viðgerðasett ef springa skyldi. En
líkur á að springi eru hverfandi.
(Hvað er langt síðan það kom
síðast fyrir hjá þér, lesandi
góður?)
Aksturseiginleikar
Það er ekki margt út á
E350 að setja. Í stuttu máli
er bæði auðvelt og gaman
að aka þessum bíl. Hægt
að fara settlega eins og
sunnudagsbílstjóri með hatt
ef maður er í því skapinu
(og á hatt) eða bregða fyrir
sig dálitlum ralltöktum ef sá
gállinn er á. Staðalfjöðrun
mun vera hin þrautreynda
fjölliðafjöðrun MB, en
reynslubíllinn var með
loftfjöðrun (hægt að hækka
frá vegi ef vill). Á vegum með
bundnu slitlagi vinnur hún sem
hugur manns, en ekki laust
við að hún höggvi þegar farinn
er gamaldags malarvegur með
gamaldags skálarlaga holum.
En veggrip er eins og á verður
kosið, miðað við það sem látið
var á reyna í þetta sinn.
Reynslubíllinn var á
svokölluðum heilsárs-
hjólbörðum sem almennt
séð eru hvorki verulega góð
sumardekk né verulega góð
vetrardekk, þó notast megi við
þau í báðum tilvikum. Samt er
ekki hægt að segja að borið hafi
á vegarhljóði, en hámarkshraði
er bundinn við 240 km/klst. Ég
hélt mig innan þeirra marka.
Kostir / ókostir
E350 stendur undir
gamalkunnu orðspori Mercedes
Benz. Ég gæti sett hér á langa
loku um kostina en listi yfir
ókosti yrði stuttur. Ég held
að ég sleppi því í þetta sinn
að setja upp sérstaka plúsa og
mínusa.
Þess í stað set ég hér
almenna hugleiðingu um lit:
Er það virkilega svo að flottasta
stöðutáknið sé að aka á svörtum
bíl? Sem helst þarf að þvo og
bóna daglega ef hann á ekki
sífellt að líta út fyrir að vera
óhreinn? Mér finnst svartur
litur á bíl ekki einu sinni sérlega
fallegur og alveg nóg að hugsa
til þess að síðasti bíltúrinn
verður – næstum örugglega
– sem farþegi í kistu í svörtum
bíl.
Verð/virði
Byrjunarverð E350 er um 6,3
milljónir króna. Þegar búið er
að raða í hann valbúnaði eins
og var í reynslubílnum bætast
um tvær millur við. Og væri
þó hægt að bæta um betur.
Vissulega eru það æði margar
krónur, en miðað við ýmislegt
annað sem boðið er á hjólum er
það kannski ekki blöskranlegt.
Fer kannski fyrst og fremst eftir
því hve digur sjóður hangir
kaupandanum við belti, því
þegar öllu er á botninn hvolft
er þetta drossía hinna digru
sjóða.
SHH
Innstig/útstig úr baksæti er í góðu lagi
og fer vel um tvo í aftursæti. Leyfi er
fyrir þriðja farþega þar en þá er farið
að þrengjast allnokkuð.
Eins og annað er
stýri og mælaborð
með fáguðum
blæ en látlausum.
Hér er líka allt við
höndina – eða
jafnvel fingurna,
sbr. takkasafnið í
stýrishjólinu.
Skottið er rúmgott og lokuð geymsla undir því,
þar sem áður var vani að hafa varahjól er þess
í stað viðgerðapakki (frauð og dæla).
Ljósin á E-350 eiga skilið nokkurn kapítula. Þau
beygja fyrir horn eftir stefnu framhjólanna, eins og
tíðkaðist á gamla Citroën fyrir mörgum áratugum
en engir hafa treyst sér til að leika eftir síðan. Svo
er heimfylgdarljós og þessi ljósaklasi neðanvert í
húsum útispeglanna.
Það er auðvelt að umgangast MB E-class. Still-
ingar framsæta og stýrishjóls sumpart rafvirkar.