Frjáls verslun - 01.09.2007, Page 89
Fólk
F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 7 89
maGnús ólafsson
framkvæmdastjóri Áltaks
Áltak hefur á þeim tíu árum sem það hefur starfað boðið fyrirtækjum og einstaklingum heildarlausnir á
breiðum línum byggingarefna, til notkunar
bæði utan sem innan húss. Magnús Ólafsson er
annar stofnenda Áltaks og framkvæmdastjóri
fyrirtækisins: „Starf mitt felst í að vera í
sambandi við okkar birgja og viðskiptavini,
stefnumótun fyrirtækisins, markaðsmálum,
starfsmannamálum og ég sé að mestu leyti
um fjármálin. Birgjarir eru erlendir og það
kostar ferðalög. Ég er þó alltaf að reyna að
skera þann þátt niður í starfi mínu enda
tekur slíkt tíma frá fjölskyldunni og reyni ég
sem mest að sameina ferðir, er til að mynda
að fara á stóra sýningu í París þar sem margir
þeir sem ég hef viðskipti við eru þáttakendur
og þar styrki ég tengsl og leysi vandamál ef
þau eru fyrir hendi.
Starfsemin hefur aukist mjög mikið. Við
seldum fyrirtækið 2001 og keyptum það
aftur 2004. Strax árið eftir varð tvöföldun
á veltu. Í fyrra keyptum við Íslenska
verslunarfélagið og þá stækkaði fyrirtækið
enn frekar og við erum búnir að fimmfalda
veltuna síðan 2004 og ætlum okkur að
eflast enn meir. Það sem háir okkur núna
er of lítið húsnæði. Við erum búnir að
sprengja utan af okkur núverandi húsnæði
og leitum nú að lóð þar sem byggja mætti
hentugt hús undir starfsemina. Það þarf
að vera hagkvæmt í byggingu og rekstri og
sýna vel okkar lausnir. En það er nú ekki
gengið að lóðum fyrir atvinnustarfsemi á
Stór-Reykjavíkursvæðinu.“
Eiginkona Magnúsar er Dýrleif Arna
Guðmundsdóttir sem starfar í hugbúnaðar
deild Landsbankans og eiga þau þrjú börn.
„Við eigum sumarbústað í Úthlíð þar sem
erum við erum mikið, helst allar helgar yfir
sumarmánuðina og þegar tækifæri gefst á
öðrum tíma. Ég hef verið í golfi í nokkur ár
og nú er svo komið að við hjónin stundum
golf eingöngu á golfvellinum í Úthlíð þar
sem er kjörin aðstaða fyrir fjölskyldugolf.
Við erum meðlimir í Golfklúbbnum Oddi,
sem skartar einum flottasta golfvelli landsins,
en þó skömm sé frá því að segja, þá hef
ég ekki spilað þar síðustu tvö árin, sem
sýnir hversu mikið aðdráttarafl sveitin og
sumarbústaðurinn hefur á mig.
Við förum einnig reglulega í frí til
útlanda og fórum nýlega til Tyrklands,
bæði til Istanbul og Bodrum. Einstaklega
gaman að koma til Istanbul, sem er mikil
menningarborg. Þar mætast heimur kristni
og múhameðstrúar í borg sem nánast tengir
Evrópu og Asíu. Istanbul er mjög spennandi
borg og hafði hún mikil áhrif á mig og naut
ég þess að vera þar. Bodrum er strandbær
við Eyjahafsströndina og á að vera einn sá
flottasti en hann heillaði mig ekki eins og
Istanbul.“
Nafn: Magnús Ólafsson.
Fæðingarstaður: Reykjavík,
15. mars 1958.
Foreldrar: Erla Sch.
Thorsteinsson
og Ólafur Hersir Pálsson.
Maki: Dýrleif Arna
Guðmundsdóttir.
Börn: Sigurbergur, 13 ára,
Íris Lóa, 13 ára (fósturdóttir),
Erla María, 3ja ára.
Menntun: Viðskiptafræðingur.
Magnús Ólafsson: „Einstaklega gaman var að koma til Istanbul, sem er mikil menningarborg. Þar mætast heimur kristni og
múhameðstrúar í borg sem nánast tengir Evrópu og Asíu.“