Frjáls verslun - 01.09.2007, Blaðsíða 90
90 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 7
Spakleg orð um efri árin.
uMSjón: pÁLL bjarnason
Barnabörn eru leið guðs til að umbuna
okkur fyrir að verða gömul.
Mary H. Waldrip
Amma er manneskja sem er svo vitur að
hún getur látið eins og kjáni frammi fyrir
barnabörnum sínum.
Phil Moss
Gott er að mega lifa lengi, en betra er að
lifa vel.
óþekktur höfundur
Við höfum lagt meiri áherslu á að hjálpa
fólki að komast á efri ár en hjálpa því að
njóta þess að vera þar.
Frank A. Clark
Þegar ég var ungur dáðist ég mest að
gáfuðu fólki. Nú þegar ég er orðinn gamall
kann ég best við vingjarnlegt fólk.
Abraham joshua Heschel
spak mæli
Allir vilja verða gamlir, en enginn vill
vera gamall.
óþekktur höfundur
Eldra fólk er stundum svo minnugt að
það man allt, hvort sem það hefur gerst
eða ekki.
Mark Twain
Að hárum þul / hlæ þú aldregi, / oft er
gott það er gamlir kveða.
Hávamál
Fyrstu merki um að ellin nálgist
eru að menn gleyma nöfnum, svo
andlitum, næst gleyma þeir að loka
buxnaklaufinni og loks að opna hana.
leo Rosenberg
Að eldast er eins og að klífa fjall. Maður
verður svolítið móður, en útsýnið verður
miklu betra.
Ingrid bergman
Þú hættir ekki að hlæja af því að þú ert
orðinn gamall. Þú verður gamall af því
að þú ert hættur að hlæja.
Michael Pritchard
Þeir sem fara verst með tímann kvarta
fyrstir undan því hvað hann er skammur.
jean de la bruyére
Ef lífið væri réttlátt myndum við fæðast
gömul og verða ung þegar við höfum
safnað nógu miklu til að geta notið
þess.
jim Fiebig
Ég hef ekkert á móti því að verða
gamall. Ég er bara ekki vanur því.
Viktor borge
Það besta við að eldast er hvað það
tekur langan tíma.
Walters Kemp
Því nær sem dregur ævikvöldi, því
bjartari verða æskuminningarnar.
Commercial Appeal
Þú mátt ekki halda svo fast í fortíðina
að þú náir ekki tökum á nútíðinni.
jan Glidewell
allir vilja verða gamlir ...