Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2008, Side 5

Frjáls verslun - 01.10.2008, Side 5
6 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 8 RitstjóRnaRgRein Hann er ríkiskapítalisti Öreigar allra landa þurftu ekkert að sameinast; kreppan kom með ríkiskapítalisma á einni nóttu úti um allan heim. Hann er skattborgarinn og hann er hinn nýi milljarðamæringur Íslendinga. Stjórnvöld komu nýlega auga á hann í miðri kreppunni og ætla honum að draga vagninn og taka á sig þungar byrðar næstu árin. Þess vegna helgar Frjáls verslun honum forsíðuefnið að þessu sinni. Hann er tákn nýrra tíma; tákn um stórfelld og stóraukin ríkisafskipti. Það er mikið á hann lagt; honum er ætlað að standa við bakið á ríkissjóði sem er með um 3.000 milljarða króna fjármagnsþörf næstu þrjú árin. Lánshæfi ríkisins hefur hrunið og alþjóðleg mats- fyrirtæki telja núna minni líkur á að ríkið geti staðið við skuldbindingar sínar. Ég skil það vel, ég veit satt best að segja ekki hvernig ríkið ætlar að greiða þessi ósköp til baka. skattborgarinn er ríkiskapítalisti. Hann á þrjá ríkisbanka og eignast innan skamms hluti í hundr- uðum lífvænlegra einkafyrirtækja þegar bankarnir bjóða þeim að breyta skuldum í hlutafé svo þau verði ekki gjaldþrota og þúsundir missi ekki vinnuna til viðbótar. Ég styð þessa leið; hún örvar atvinnulífið; hún bjargar. Þetta er að vísu „eftir á“ björgun og nokkuð flókin. Ég hef lagt til að fjármagnskostnaður fólks og fyrirtækja verði lækkaður úr öllu valdi í kreppunni með afnámi verðtryggingar og lækkun vaxta til að forða þeim frá gjald- þroti; að lánastofnanir afskrifi hluta af lán- unum strax, framar í keðjunni. Þær þurfa þess hvort sem er síðar meir. En þetta er „fyrirfram“ aðgerð en ekki „eftir á“ björgun – ef einhverju verður þá bjargað. Hinn venjulegi kapítalismi hrundi á einni nóttu og við blasa ríkisbankar, ríkisfyrirtæki, ríkisheimili og ríkiskapítalisti. Það verður mjög flókið ferli þegar skipað verður í stjórnir þeirra mörgu einkafyrirtækja sem breytast í ríkisfyrirtæki á næstu mánuðum vegna skuld- breytinga. Bankarnir stofna eignaumsýslufélög utan um hlut sinn í þessum fyrirtækjum og flokkarnir koma sínu fólki að í þeim. Það verða margir sem ganga í stjórn- málaflokka á næstunni til að eygja von um stjórnarsetu í fyrirtækjum. Myndirnar af stjórnum nýju bankanna í blöðunum voru táknrænar og sögðu allt sem segja þarf. Það verða hrikaleg átök þegar ríkið ætlar síðar að losna út úr bönkunum og fyrirtækjunum. Hin stófellda ríkisvæðing í kreppunni er áfall fyrir okkur hugsjónamenn um frjáls viðskipti, lítil ríkisaf- skipti og mátt markaðsaflanna. Kapítalisminn er hrun- inn tímabundið. Það kallast ekkert annað en hrun hans þegar sett eru neyðarlög um eignaupptöku í fyrirtækjum, inngrip ríkisins á flestum sviðum fjármálalífsins, gjald- eyrishöft og nýjar leikreglur daglega sem koma í veg fyrir að frjálsir markaðir og markaðsöfl starfi eðlilega. Tapaði frjálshyggjan? Eflaust absúrd spurning í ljósi bankahruns- ins. Ég er samt enn þeirrar skoðunar að hlutverk rík- isins sé að setja starfsreglur en gera sig ekki gildandi í almennum rekstri. Ég er enn þeirrar skoðunar, þrátt fyrir fall útrásarvíkinganna, að frjáls viðskipti og dugmiklir, kraftmiklir, framsæknir einstaklingar séu besta leiðin til framfara. Ég er enn þeirrar skoðunar að frelsið sé besta, sanngjarnasta og skemmtilegasta leikaðferðin í viðskipta- lífinu. En það þarf augljóslega strangari umferðarreglur; ekki síst þegar kemur að rekstri banka. er eittHvert annað ráð í stöðunni en að láta ríkissjóð koma til bjargar? Ég held ekki. Það var of áhættusamt að sitja hjá og grípa ekki inn í og leyfa bönkunum þremur að stöðvast í óákveðinn tíma og láta helstu erlendu kröfuhafana taka við þrotabúunum eins og tíðkast almennt í gjaldþrotum. Ef bankakerfið hefði stöðvast í nokkra daga hefði atvinnulífið stöðvast og það eitt og sér hefði leitt til fjölda gjaldþrota og er ekki á það bætandi. Var hægt að sleppa hinu skilyrta láni Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins við að endurreisa gjaldeyrismarkaðinn? Sennilega ekki. Það lán er gæðastimpill og ávísun á fleiri lán. Opinn gjaldeyrismarkaður og sterkt bankakerfi er forsenda þess að hægt sé að endurreisa atvinnulífið. Þetta var líklegast skák og mát allan tímann. Hvað getum við lært? Við höfum fengið svar við einni spurningu; krónan er ónýt. Ísland getur ekki haldið úti sjálfstæðum gjaldmiðli. Það er alltof áhættusamt og heldur þjóðinni í skuldafangelsi verð- bólgu og verðtryggingar. Við fengum tvær kreppur í fangið á meðan aðrar þjóðir fengu eina. Við fengum gjaldeyriskreppu og venjulega kreppu. Það er skelfileg blanda; banvæn blanda og gerir mönnum erfiðara fyrir í hagstjórninni. Við getum sjálfum okkur um kennt. Við áttum að vera búin fyrir löngu að skipta krónunni út fyrir alvöru gjaldmiðil. Næsta skref er að skipta um gjaldmiðil – hvenær sem það verður hægt vegna strangra skilyrða Evrópusambandsins um lítinn fjárlagahalla, litla verðbólgu og litlar ríkisskuldir við að taka upp evru. Það er Heimskreppa. Okkar skattborgari er alls ekki eini skattborgarinn í heiminum sem stendur í ströngu þessa dagana. Það er alls staðar treyst á hann til að forða falli stórra fyrirtækja og banka. Öreigar allra landa þurftu ekkert að sameinast; kreppan kom með ríkis- kapítalisma á einni nóttu úti um allan heim. jón g. Hauksson

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.