Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2008, Qupperneq 7

Frjáls verslun - 01.10.2008, Qupperneq 7
KYNNING8 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 8 TAS er þjónustufyrirtæki á upplýsingatæknisviði sem á að baki tíu ára sögu, en hefur á þeim árum gengið í gegnum sameiningar og síðast árið 2007 í gegnum uppkaup frá Háspennugarði. Í gegnum tíðina hefur fyrirtækið verið rekið án skuldsetningar og getur þar af leiðandi tekist á við breytt rekstrarum- hverfi sem nú blasir við íslenskum fyrirtækjum. Að undanförnu hafa hundruð fyrirtækja verið heimsótt og ekki minni fjöldi af tilboðum hafa verið gerð og hafa umsvif fyirtækisins aldrei verið meiri. Fram- kvæmdastjóri TAS er Sigurður Álfhildarson: „Í því mikla brimróti sem ríður yfir landið nú um stundir höfum við tekið sérstaklega eftir því að fyrirtæki eru að leita eftir hagræð- ingu í rekstri. Umsvif TAS byggjast á innri vexti sem leiðir af sér að félagið er ekki með vaxtaberandi skuldir svo neinu nemi og hefur litla yfirbyggingu, sem leiðir af sér að við getum boðið hagstæðari verð til viðskiptavina. Okkar rekstur byggist á þremur stoðum, sem eru umsýsla, umsjón og rekstur tölvukerfa fyrir fyritæki og stofn- anir, hýsing gagnagrunna, póst-, gagnaþjóna, sem og endursala á hug- og vélbúnaði. Ekki skemmir svo fyrir að við erum á vakt allan sólarhringinn.“ Það var síðastliðið haust sem ákveðið var að fara í markaðsherferð og að sögn Sigurðar hefur hún gengið mjög vel þegar miðað er við aðstæður á innanlandsmarkaðinum: „Við einbeitum okkur að fyrirtækjum og stofnunum sem eru lítil og með- alstór og skemmst er frá því að segja að viðbrögðin við auglýsingum okkar hafa verið frábær. Þegar við vorum að byrja markaðsherferð- ina fór allt á hliðina í þjóðfélaginu en við ákváðum að halda áfram og vera ekkert að draga í land og það hefur komið í ljós að var rétt ákvörðun.“ Slökkvilið atvinnulífsins TAS býður lægra verð á útseldum tíma og rukkar eingöngu fyrir hverjar 15 mínútur (0,25 klst) til þeirra sem hafa þjónustusamning. Hröð þjónusta er í fyrirrúmi og öll mál greind á einni klukkustund og leyst innan eins dags undir eðlilegum kringumstæðum og er aðgangur að starfsmönnum allan sólarhringinn: „Ég get tekið sem dæmi að hringt var í okkur á mánudegi frá fyrirtæki sem var með netþjóninn sinn úti og ekki var hægt að fá þjónustu frá umboðsaðila fyrr en eftir fjóra klukkutíma. Við fórum í málið í hvelli og á innan við tveimur klukkutímum var netþjónninn kominn í gang. Þessi saga lýsir vel hvernig við nálgumst verkefnin. Við viljum vera slökkvilið atvinnulífsins. Það vita allir að þegar hringt er í slökkviliðið vegna bruna þá kemur það strax og það sama á við um okkur, við komum um leið og óskað er eftir þjónustu okkar. Og þá er vert að taka fram að sá sem kaupir af okkur þjónustu fær sinn viðskiptastjóra innan fyrirtækisins sem hægt er að hafa samband við hvenær sem er allan sólarhringinn. Sé um næturvinnu að ræða fer beiðnin úr símanúmeri hans á bakvaktina þannig að aldrei á að verða nein bið.“ Samningur við Iron Mountain Meðal þess sem er nýtt hjá TAS er samningur við Iron Mountain í Bandaríkjunum: „Iron Mountain er leiðandi í lausnum í öryggis- afritun, hvort heldur er fyrir útstöðvar eða netþjóna og lausnir sem byggjast á afriti Iron Mountain eru sérstaklega aðlagaðar viðskiptavinum. Afritun getur farið í gegnum Internetið eða innan staðarnets hvers fyrirtækis, sam- hliða því getur endurheimt gagna farið fram með sama hætti. Þjón- ustudeild TAS getur sinnt allri framkvæmd þjónustunnar, allt frá upp- setningu búnaðar og afritunartöku til flutnings afrita og afhendingu þeirra, allt eftir óskum viðskiptavina. Við höfum aðgang að gagnaveri félagsins í Evrópu en starfrækjum einnig gagnaver fyrir þjónustuna í Reykjavík.“ Vistun tölvukerfa Hýsing er miðlæg vistun tölvukerfa þar sem viðskiptavinur nálgast gögn yfir netið í gegnum viðeigandi tengingar. Hægt er að fá upplýs- ingakerfi, póstþjóna og gagnagrunna hýst í tækjasal TAS. Sigurður segir Með því að gera þjónustusamning geta menn litið á sérfræðinga TAS sem sína tölvudeild. Hröð og vönduð þjónusta við fyrir- tæki og stofnanir TAS hugbúnaðarþjónusta:
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.